Fréttablaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 6
6 21. júní 2010 MÁNUDAGUR
Eigum hágæða parket
frá Parador á lager
Bjóðum ölbrey úrval af parketi frá Parador. Einfalt
smellukerfi, auðvelt að leggja. Komdu í heimsókn
í Ármúla 32 eða hafðu samband í síma 568 1888.
Við hjálpum þér að finna réa gólfefnið.
Á rmú l a 32 · 10 8 Reyk j a v í k · S ím i 5 6 8 18 8 8 · Fax 5 6 8 18 6 6 · www .pog . i s
Parador
Eik þriggja stafa parket
Verð 4.988 kr. m2
Parador
Eik plankaparket
Verð 9.990 kr. m2
ENDINGAR-
GÓÐ ÞÝSK
GÆÐAVARA
V
E
R
T
·
1
3
3
3
3
Deilir þú þeirri skoðun forsæt-
isráðherra að full ástæða sé til
bjartsýni af hálfu Íslendinga?
Já 45,6%
Nei 54,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefurðu fylgst með sjónvarpsút-
sendingum frá heimsmeistara-
keppninni í fótbolta?
Segðu skoðun þína á visir.is
SLYS Franski kafarinn, sem lést í
gjánni Silfru á Þingvöllum á laug-
ardag, missti að öllum líkindum
köfunarbúnaðinn í átökum við að
bjarga unnustu sinni sem föst var
í helli í gjánni.
Þetta er mat Tobias Klose, sem
rekur fyrirtækið Dive.is, en hann
tók þátt í björgunaraðgerðunum.
Tobias talaði við unnustu
mannsins, sem einnig er frönsk,
þegar hún var komin upp úr
gjánni. Hún sagðist hugsanlega
hafa í óðagotinu sparkað í mann-
inn sinn, sem var beint fyrir
neðan hana í hellinum.
„Líklega hefur hún sparkað út
úr honum munnstykkinu og hann
ekki komið því upp í sig aftur.
Það var lélegt skyggni og hann
gat ekki andað, svo hann hefur
líklegast drukknað þarna, á ekki
meira en um þriggja metra dýpi,
og svo sokkið.“
Fólkið var á leið út úr helli
ofan í gjánni þegar gervilunga
sem konan hafði hangandi á sér
klemmdist á milli tveggja steina.
Leiðsögumaðurinn reyndi að losa
hana, en þegar það gekk ekki fór
hann upp og kallaði eftir hjálp.
Hann sneri aftur og náði að losa
konuna, en þegar hún synti upp á
yfirborðið var manninn hennar
hvergi að sjá. Leiðsögumaðurinn
fann manninn svo meðvitundar-
lausan á rúmlega þrjátíu metra
dýpi. Þá hafði lunga hans og önd-
unargríma losnað.
Silfra er mjög vinsæl til sport-
köfunar, en þar kafa tugir manns
á hverjum degi og fjöldi fyrir-
tækja býður ferðir þangað. Tobias
segir Silfru ekki hættulegan stað
til köfunar. Hins vegar séu þar
hellar sem vanir leiðsögumenn í
Silfru forðast, þar á meðal sá hell-
ir sem kafararnir festust í.
Öryggismálum í sportköfun
er mjög ábótavant hér á landi,
að mati Jónínu Ólafsdóttur land-
fræðings, sem skrifaði lokarit-
gerð sína um málið. Í viðtali við
Vísi.is í gær sagði hún hvorki
upplýsingaskilti né varasúrefni
að finna við Silfru, þrátt fyrir
alla umferðina um svæðið. Þá
sé eftirliti með fyrirtækjum
sem bjóða upp á sportköfun hér
á landi ábótavant og reglugerðir
úreldar.
Rannsóknardeild lögreglunnar
í Árnessýslu rannsakar nú slysið
og hefur köfunarbúnað manns-
ins til skoðunar. Hjá henni var
engar frekari upplýsingar um
gang rannsóknarinnar að fá í
gærkvöldi, aðrar en þær að rann-
sókninni miðaði vel.
holmfridur@frettabladid.is
Drukknaði við að
bjarga unnustunni
Franskur ferðamaður á þrítugsaldri lést í gjánni Silfru á Þingvöllum á laugar-
daginn. Svo virðist sem hann hafi misst út úr sér munnstykki á köfunarbúnaði
í átökum við að losa unnustu sína, sem sat föst milli tveggja steina.
Á SLYSSTAÐ VIÐ ÞINGVALLAVATN Rannsóknardeild lögreglunnar í Árnessýslu rann-
sakar nú meðal annars hvort köfunarbúnaður mannsins sem lést í Silfru á laugardag
hafi verið í lagi. MYND/FRIÐRIK ÞÓR HALLDÓRSSON
HEILBRIGÐISMÁL Álfheiður Inga-
dóttir heilbrigðisráðherra segir
óþarfi að gera of mikið úr lækna-
skorti hér á landi, þótt nokkuð sé
um að læknar snúi ekki heim úr
námi vegna kreppunnar.
Hún segir Ísland búa svo vel að
hér á landi séu fyrir fleiri lækn-
ar en víðasta hvar í nágrannalönd-
unum. Á undanförnum árum hafi
hins vegar verið erfitt að manna
stöður, sérstaklega í heilsugæsl-
unni, bæði í Reykjavík og nágrenni
en aðallega þó úti á landi. Einnig
hafi verið erfitt að finna mann-
skap í sérgreinar þar sem fyrir
eru aðeins einn eða tveir sérfræð-
ingar í greininni.
„Þetta var svona líka fyrir
kreppu, og því miður hefur ekki
orðið nein breyting á því til hins
betra. Stéttir sem hafa möguleika
á að vinna erlendis og bæta við sig
í námi notfæra sér það tækifæri
auðvitað í kreppunni. Fólk er að
bíða af sér kreppuna, en ég vona
að þessi hópur komi svo galvask-
ur heim þegar fer að rofa til. Ég
hef ekki heyrt neitt annað en að
svo verði.“
„Ég er nú ekki viss um að þetta
sé svona einfalt,“ segir Birna Jóns-
dóttir, formaður Læknafélags
Íslands, en í grein í Læknablaðinu
gagnrýnir hún Álfheiði fyrir að
gera lítið úr þessum vanda.
Hún segir eðlilegt að fólk sé
fimm til sjö ár úti í sérnámi, en
reynslan sýni að þegar fólk dvelst
þar meira en tíu ár minnki mjög
líkur á því að fólk snúi nokkurn
tímann heim aftur.
Þegar Birna er spurð hvað sé
til ráða, segist hún þó ekki öfunda
stjórnvöld: „Við liggjum bara á
bæn um það að það verði hagvöxt-
ur í lok árs. Ég sé ekki neitt annað
sem snýr þessari þróun við.“ - gb
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra telur óþarfi að gera mikið úr læknaskorti hér á landi:
Fólk bíður af sér kreppuna í útlöndum
ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR Birna Jónsdótt-
ir, formaður Læknafélags Íslands, hefur
gagnrýnt heilbrigðisráðherra fyrir að gera
of lítið úr vandanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STYRKIR Góðgerðasjóður Auðar
Capital, AlheimsAuður, veitti
þremur verkefnum styrk á laug-
ardag. Styrkjum var úthlutað
í annað sinn en það er gert 19.
júní ár hvert.
Þau verkefni sem hlutu styrk
voru ABC barnahjálp, Alnæmis-
börn og Stofnun Vigdísar Finn-
bogadóttur í erlendum tungu-
málum.
AlheimsAuður er góðgerða-
sjóður sem er ætlaður til að
hvetja konur til athafna og
frumkvæðis, einkum í þróunar-
löndunum. Auður Capital leggur
eitt prósent af hagnaði sínum á
hverju ári í sjóðinn og gefst við-
skiptavinum Auðar einnig kost-
ur á að gera það.
- mmf
Styrkir AlheimsAuðar:
Þrjú verkefni
hlutu styrki
Auðar Capital
BRASILÍA Um 20 manns hafa látist í
flóðum í norðausturhluta Brasilíu
og 50 þúsund manns flúið heim-
ili sín. Nokkrar borgir eru án raf-
magns og samgöngur liggja niðri
víðast hvar en ástandið er verst í
Rio de Janeiro-héraði.
110 manns létust í maí í héraðinu
eftir flóð og aurskriður og í apríl í
fyrra urðu mikil flóð sem hröktu
hundruð þúsundir á flótta og urðu
rúmlega fjörtíu að bana. Flóðin þá
voru voru þau verstu í Brasilíu svo
áratugum skiptir. - jma
Flóð í Norðaustur-Brasilíu:
20 manns látnir
ENDURTEKIN FLÓÐ Margir hafa látist í
flóðum í Brasilíu síðastliðið rúma árið.
SVÍÞJÓÐ, AP Viktoría Svíaprinsessa
gekk að eiga fyrrverandi einka-
þjálfara sinn, Daniel Westling, við
hátíðlega athöfn í Dómkirkju Stokk-
hólms á laugardaginn.
Fjölmargir Svíar fylgdust spennt-
ir með fréttaflutningi af athöfn-
inni, þrátt fyrir að stuðningur Svía
við konungsfjölskylduna hafi dvín-
að mjög.
Samkvæmt nýjustu skoðanakönn-
unum styður innan við helmingur
Svía konungsfjölskylduna, en fjórð-
ungur telur konungsfyrirkomulagið
slæmt fyrir landið. - gb
Svíar fylgdust með konunglegu brúðkaupi á laugardag þrátt fyrir skiptar skoðanir:
Stuðningurinn dvínar hratt
NÝGIFT Viktoría krónprinsessa ásamt
sínum heittelskaða Daniel Westling
strax að brúðkaupi loknu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Það var lélegt skyggni
og hann gat ekki and-
að, svo hann hefur líklegast
drukknað þarna.
TOBIAS KLOSE
EIGANDI DIVE.IS
KJÖRKASSINN