Fréttablaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 46
30 21. júní 2010 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT 2. strit, 6. hæð, 8. hald, 9.
yfirbreiðsla, 11. nafnorð, 12. tíðindi,
14. rusl, 16. ætíð, 17. gerast, 18.
umhyggja, 20. tveir eins, 21. maður.
LÓÐRÉTT 1. helminguð, 3. strit, 4.
máski, 5. sjáðu, 7. fiskur, 10. kirna,
13. loft, 15. jarðefni, 16. afbrot, 19.
númer.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. baks, 6. ás, 8. tak, 9. lak,
11. no, 12. fregn, 14. drasl, 16. sí, 17.
ske, 18. önn, 20. ii, 21. karl.
LÓÐRÉTT: 1. hálf, 3. at, 4. kannski, 5.
sko, 7. sardína, 10. ker, 13. gas, 15.
leir, 16. sök, 19. nr.
Hópur ungra veggjalistmanna fékk
á dögunum um milljón króna styrk
frá samtökunum Evrópa unga fólks-
ins. Styrkinn fengu þau fyrir að fara
í hringferð um landið og kynna
veggjalistina.
„Evrópa unga fólksins hélt kynn-
ingu í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti um styrkinn og við ákváðum
að sækja um,“ segir Kristín Þor-
láksdóttir en hún er einmitt dótt-
ir listamannsins Tolla og því ekki
langt að sækja listahæfileikana. Það
kom þeim ekki á óvart að fá styrk-
inn enda lögðu þau mikla vinnu í
umsóknina.
Kristín og Loki, sem einnig er
hluti af þessum sjö manna hópi, eru
bjartsýn á að þau nái að afmá for-
dóma almennings í garð veggjalist-
arinnar með verkefni sínu. „Veggja-
list og krot er ekki það sama. Þetta
eru ekki skemmdarverk og við þurf-
um að líða fyrir að það eru nokkrir
svartir sauðir að krota á veggi sem
gefa okkur mjög vont orðspor,“ segir
Loki en þau fara ekki fögrum orðum
um hreinsunarátak borgarinnar á
síðustu árum þar sem málað hefur
verið yfir listaverkin. „Við teljum
að það sé mikill munur á venjuleg-
um gráum húsvegg og húsvegg með
listaverki á. Það er einfaldlega mikið
fallegra að horfa á listaverk.“ Hóp-
urinn hefur gefið út tímaritið Subur-
bistan þar sem birtar eru myndir af
veggjalistaverkum frá þeim. „Þetta
eru allt veggjalistaverk sem hefur
verið málað yfir á síðustu þremur
árum og hefur því ákveðið sögulegt
gildi,“ segir Loki en hópurinn hefur
nú þegar sent öllum borgarfulltrú-
um nýju borgarstjórnarinnar bréf
til að kynna málstað veggjalistar-
innar.
Hringferðin hefst um miðjan júlí
og mun byrja á Borgarnesi.
alfrun@frettabladid.is
KRISTÍN ÞORLÁKSDÓTTIR: VEGGJALIST OG KROT ER EKKI ÞAÐ SAMA
FENGU MILLJÓN Í STYRK
TIL AÐ KYNNA VEGGJALIST
KRISTÍN OG LOKI Fengu milljón króna styrk frá Evrópu unga fólksins til að kynna veggjalist á landsbyggðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Fréttablaðið fékk fregnir af því að norska söng-
konan Kate Havnevik væri stödd á landinu og
að ljósmyndarinn Rebekka Guðleifsdóttir hefði
tekið af henni myndir. „Við Kate kynntumst
árið 2007 þegar hún var að hita upp fyrir Air í
Laugardalshöll. Það vantaði ljósmyndara til að
mynda hana og ég var kölluð til,“ segir Rebekka
og segir að þær hafi náð vel saman og haldið
sambandi síðan þá. Hin norska Havnevik hefur
gefið út margar plötur og sungið með norsku
hljómsveitinni Röyksopp. Hún hefur unnið
með sama upptökustjóra og Björk, Madonna
og Britney Spears og lögin hennar hafa verið í
sjónvarpsþáttum á borð Grey´s Anatomy.
„Hún var í fríi hér á landi og við hittumst og
tókum nokkrar myndir á leiðinni upp á flugvöll.
Ég vona að hún muni kannski nota þær eitthvað
í kynningar. Draumurinn væri náttúrulega að
fá að taka af henni alvöru myndir sem ég
gæti undirbúið vel og myndu jafnvel enda
á plötuumslagi,“ segir Rebekka.
Havnevik hefur tengsl við land og
þjóð en hún var gift leikaranum Gott-
skálki Degi Sigurðssyni í tíu ár og á
marga vini og kunningja hér á landi.
Hún mun hafa dvalið hér í fríi í síð-
ustu viku en fyrsta plata hennar,
Melakton, var að hluta tekin upp á
Íslandi.
Rebekka er annars á fullu að und-
irbúa sýningu í haust fyrir netgall-
eríið www.theevicaproject.com og
er Rebekka þar á lista með frægum
listamönnum á borð við Andy War-
hol, Sally Mann og Chuck Close.
- áp
Óvænt myndataka með Havnevik
REBEKKA GUÐLEIFSDÓTTIR
Tók óvænt myndir af Kate
Havnevik í hrauninu á
Reykjanesi. Norska söng-
konan hefur meðal annars
sungið með hljómsveitinni
Röyksopp. MYND/REBEKKA
SUMARFRÍIÐ MITT
„Ég fer til New York í haust með
kærustunni. Annars er aldrei að
vita nema ég detti í Galtalæk
um verslunarmannahelgina.“
Daníel Ólafsson, plötusnúður og háskóla-
nemi.
Ósykrað
Hollur barnamatur fyrir 6 mánaða og eldri
www.barnamatur.is
Fjölbreytt og gott
veganesti fyrir lífið
Vefsíðan Inspired by Iceland hefur
vakið mikla athygli erlendis og
hlotið þónokkurt umtal. Vefmynda-
vélarnar sem staðsettar eru víða
um land hafa vakið sér-
staklega mikla athygli og
hefur verið valin meðal
tíu bestu vefmyndasíða
heims. Líkt og flestum
er orðið kunnugt
hafa einnig marg-
ir heimsþekktir
einstaklingar
lagt verkefn-
inu lið og
nýlega bættist
leikstjórinn Eli
Roth í þann hóp
og má skoða myndbönd hans og
fleiri þekktra á vefsíðunni www.
inspiredbyiceland.com.
Grínistinn Steindi Jr. leikur í nýrri
Ring auglýsingu. Það sem færri vita
er að auglýsingin var tekin upp á
heimili Dags B. Eggertssonar í Þing-
holtunum. Þótti íbúð Dags henta
sérstaklega vel í auglýsinguna og
gengu tökur áfallalaust fyrir
sig fyrir utan það
að örlítið súkkulaði
klíndist í sófa
borgarfulltrúans.
Dagur og eigin-
kona hans tóku
því þó með
jafnaðargeði
og skildu allir
sáttir.
Heyrst hefur að meðlimir Besta
flokksins hafi í hyggju að stofna
sérstakan Ráðhúskór þar sem nú
sitji óvenju margt tónlistarfólk í
borgarstjórn. Ef af kórnum verður
mun það án efa létta lund margra í
borgarstjórn að geta í stutta stund
gleymt pólitíkinni og þess
í stað sungið saman.
Spennandi verður að
sjá hver yrði valinn
kórstjóri og einnig
hvort meðlim-
ir annarra
stjórnmála-
flokka
myndu taka
þátt.
- sm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Listakonan Sarah Applebaum er
meðal þeirra listamanna taka þátt
í sýningunni Lykkjur – Prjónalist í
Norræna húsinu sem opnaði á þjóð-
hátíðardaginn.
Sarah býr og starfar í San
Fransisco og er sjálflærður lista-
maður. „Einn helsti kosturinn við
að vera sjálflærður er að maður er
ekki skuldum vafinn. Einnig finnst
mér ég hafa meira frelsi til að gera
nánast hvað sem er hvað listina
varðar,“ segir Sarah. Verkið sem
sýnt er í Norræna húsinu nefnist
Meta Blanket og er það teppi búið
til úr ókláruðum prjónaverkefnum
annarra. „Ég hef verið að vinna
með prjónateppi í svolítinn tíma
núna. Teppin eru héðan og þaðan
og ég sauma þau saman þannig
þau mynda að lokum stóra skúlpt-
úra. Meta Blanket er þó minna en
margt af því sem ég hef verið að
gera, því sumir skúlptúrarnir hafa
þakið heilu herbergin.“
Aðspurð segist Sarah hafa notið
dvalarinnar hér á landi og kveðst
algjörlega heilluð af íslenskri nátt-
úru. „Ég gæti talað endalaust um
hvað landið er frábært en það
sem mér finnst hvað skemmtileg-
ast við heimsóknina hingað er að
komast í kynni við þjóð sem trúir
á huldufólk. Ég hef sjálf haft mik-
inn áhuga á huldufólki allt frá
barnsaldri og mér finnst einstakt
að hér þyki þessi trú á huldufólk
ekki barnaleg eða skrítin,“ segir
Sarah sem hyggst heimsækja land-
ið aftur sem fyrst. „Næst mundi ég
gjarnan vilja heimsækja landið að
vetri til svo ég fái líka að upplifa
myrkrið sem hér ríkir.“ - sm
Vill aftur til Íslands sem fyrst
SJÁLFLÆRÐ Sarah Applebaum býr og starfar í San Fransisco í Bandaríkjunum, en hún
er sjálflærður listamaður.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 21. júlí.
2 Heimili
3 Lykkjur