Fréttablaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 21. júní 2010 11
Landslög – lögfræðistofa og LM lögmenn hafa sameinað krafta sína undir
merkjum Landslaga. Með sameiningunni aukum við faglegan styrk stofunnar
og möguleika á að takast á við fjölbreyttari verkefni.
Við flytjum um leið starfsemi okkar í nýtt húsnæði að Borgartúni 26. Þar
vonumst við til að geta veitt umbjóðendum okkar enn betri þjónustu en áður.
Engar breytingar verða þó á rekstri stofunnar í Reykjanesbæ.
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu okkar landslog.is.
Borgartúni 26 · 105 Reykjavík
Sími 520 2900 · Fax 520 2901
Hafnargötu 31 · 230 Keflavík
Sími 421 1733 · Fax 421 4733
www.landslog.is
landslog@landslog.is
Landslög
MÁL AÐ FLYTJA
MENNTAMÁL Tólf nýstúdentar hlutu í liðinni viku styrk
úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla
Íslands. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð
hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í
Háskóla Íslands. Þetta var þriðja árið sem úthlutað er
úr sjóðnum.
Hver styrkur nemur 300 þúsund krónum auk þess
sem 45 þúsunda króna skráningargjald í háskólann er
fellt niður fyrir nemendurna.
Við val á styrkhöfum er einkum tekið mið af fram-
úrskarandi námsárangri á stúdentsprófi en einnig er
horft til virkni í félagsstörfum og árangurs stúdenta á
öðrum sviðum svo sem í listum og íþróttum, að því er
segir í fréttatilkynningu frá háskólanum.
Í hópi styrkþega voru sex dúxar en flestir stúdent-
anna stefndu að námi við raunvísindadeild. - mþl
Úthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla Íslands:
Afreksstúdentar styrktir
STOLTIR STYRKHAFAR Athöfnin fór fram á Háskólatorgi
Háskóla Íslands.
SLYS Hjörtur Hinriksson, eigandi
bátsins sem strandaði við Akurey
á laugardag, segir litla hættu hafa
verið á ferðum. Ferðamönnunum
hafi verið bjargað í annan bát í
eigu fyrirtækisins og þeir haldið
áfram hvalaskoðun.
Bátur fyrirtækisins Puffin
Express, Skúlaskeið, strandaði
við Akurey en um borð var hópur
ferðalanga í lundaskoðunarferð.
„Það varð engin vélarbilun, við
vorum bara að lóna í kringum
eyjuna að skoða lunda þegar við
rekum á þetta sker. Sem betur
fer var einn af bátum okkur í
grenndinni og því tókst að ferja
ferðamennina yfir á hann,“ sagði
Hjörtur.
Spurður hvort strandið hafi
verið áfall fyrir ferðamennina
segir Hjörtur svo ekki vera: „Þeim
brá nú ekki meira en það að þau
fóru í hvalaskoðun strax á eftir.“
- sb
Bátur strandaði við Akurey:
Héldu náttúru-
skoðun áfram
LÖGREGLUMÁL Bæði hegningarlaga-
brotum og umferðarlagabrotum
fjölgaði hjá lögreglunni á Vest-
fjörðum í maí. Þetta kemur fram á
vef Bæjarins besta.
Alls voru skráð 24 hegningar-
lagabrot hjá umdæminu í maí en
þau voru tíu í fyrra og 20 árið
2008. Umferðarlagabrotum hafði
fjölgað mikið frá fyrra ári en þau
voru 51 í síðasta mánuði en 30 árið
áður. Það eru þó færri umferðar-
lagabrot en í maí árið 2008 þegar
þau voru 106 talsins. Ekkert fíkni-
efnalagabrot var skráð í maí í ár
eða í fyrra en tvö komu inn á borð
lögreglunnar fyrir tveimur árum.
Lögreglan á Vestfjörðum:
Brotum fjölgaði
Einn á ofsahraða
Ökumaður sem ók á 147 kílómetra
hraða á klukkustund á Vesturlands-
vegi við Víkurveg á föstudagskvöld var
sviptur ökuréttindum á staðnum.
Þrír stútar
Þrír voru handteknir aðfaranótt
laugardags fyrir að aka drukknir. Sá
fyrsti var stöðvaður eftir miðnætti á
Bústaðavegi og var ökuréttindalaus.
Annar var stöðvaður í Tryggvagötu og
var líka án ökuréttinda. Sá þriðji var
stöðvaður eftir að hafa ekið á bifreið í
Pósthússtræti á sjötta tímanum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BRUSSEL Hvalveiðar Íslendinga
gætu orðið þröskuldur á vegi
þjóðarinnar að inngöngu í Evr-
ópusambandið, samkvæmt frétt
AFP-fréttastofunnar í dag. Erlend-
ir fjölmiðlar fjölluðu margir um
hvalveiðar Íslendinga í gær en
fundur Alþjóðahvalveiðiráðsins
hefst í dag. Í frétt AFP er haft eftir
ónafngreindum heimildarmanni í
Brussel að ef Ísland haldi veiðum
sínum áfram muni það hafa alvar-
legar pólitískar afleiðingar. Ísland
uppfylli flest öll skilyrði aðildar
að fullu en hvalveiðarnar séu þar
Þrándur í götu þjóðarinnar.
Síðan hvalveiðibannið var sett
á hafa yfir 33 þúsund hvalir verið
veiddir samkvæmt frétt AP um
málið.
Hvalveiðar umdeildar:
Segja hvalveið-
ar ljón í vegi
ESB-aðildar
LUNDI Ferðalangar voru í lundaskoðun
þegar bát steytti á skeri.
KEPPT Í FLUGKÚNSTUM Á degi flugsins
í Kiev, höfuðborg Úkraínu, kepptu 39
lið í því að fljúga sem lengst á kostu-
legum heimatilbúnum flugfarkostum.
NORDICPHOTOS/AFP