Fréttablaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 36
20 21. júní 2010 MÁNUDAGUR
BAKÞANKAR
Gerðar
Kristnýjar
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Um leið og vorprófunum lauk fór ég að svipast um eftir vinnu. Þá var skóla-
árið mun styttra en nú og miðaðist við að
börn gætu aðstoðað við sauðburð og réttir.
Þótt foreldrar mínir ættu ekki fjárstofn
á vappi um Safamýrina mátti ég ekki slá
slöku við. Barn að aldri gætti ég því ann-
arra barna. Síðan seldi ég blöð. Það fannst
mér reyndar asnaleg vinna en hei, ég var
ung og þurfti á peningunum að halda.
Sumarvinnan reyndist mér góð. Hún tamdi
mér snefil af ábyrgðarkennd og samvisku-
semi, auk þess sem hún opnaði augu mín
fyrir aðstæðum annarra.
GÖMUL kona á elliheimilinu þar sem
ég vann á menntaskólaárunum átti til
dæmis ekki heila nærbrók því eigin-
maðurinn tímdi ekki að kaupa hana.
Maður gekk undir mann við að reyna
að sannfæra hann um að eiginkona
hans til hálfrar aldar þyrfti brókina
en þar var talað fyrir daufum eyrum.
Ég man líka eftir konu sem skúraði
með mér á Landspítalanum. Hún
hringdi heim á hálftíma fresti til
að athuga hvort ekki væri í lagi hjá
sex ára syni sem hún skildi eftir
einan heima á daginn. Ég vann
alltaf hefðbundin kvennastörf og
launin voru aldrei það há að mér
hafi þótt freistandi að halda fyrir
alvöru út á vinnumarkaðinn.
OFT vann ég með merkilegum konum og
hlustaði á þær spjalla um húsbyggingar
jafnt sem spíritisma. Þær höfðu áhrif á mig
og líka störfin sem mér voru falin. Eftir
sumurin tvö á elliheimilinu er þjónustulund
minni engin takmörk sett þegar kemur
að eldra fólki – að frátöldum auðvitað for-
eldrum mínum því rétt eins og ég er allt-
af 14 ára í augum þeirra eru þau fimmtug
og fullspræk í mínum. Um þessar mundir
hafa einmitt margir foreldrar áhyggjur af
atvinnulausu unglingunum sínum og það er
skiljanlegt. Aðgerðarleysi er engum hollt
auk þess sem hætt er við að þeir missi af
öllu því nytsamlega sem læra má af góðu
starfi.
MEST óttast ég þó að unga fólkið sjái
engan tilgang með námi og fái þá flugu
í höfuðið að sama aðgerðarleysið bíði að
því loknu. Nú er samt ýmislegt að breyt-
ast því fréttir berast nú af fólki sem kallar
ekki alltaf ömmu sína. Í síðustu viku sagði
Mogginn frá Steinunni Jónsdóttur, arki-
tekt sem missti vinnuna, en bjó til þjálfun-
ardisk til að nota við líkamsrækt. Í sama
blaði eru þrír háskólanemar sem stofnuðu
ferðaþjónustufyrirtækið When in Reykja-
vík. Þeir bjóða ferðamönnum meðal ann-
ars heim til sín í plokkfisk. Það er óskandi
að sem flestir heyri af þessu fólki og átti
sig á því hvað hugmyndaflugið getur fleytt
okkur langt.
Dýrmæta sumarvinnan
Þetta kann að vera of
mikil bjartsýni læknir,
en heldurðu að mér
takist einn daginn
að hlýða húsbónda
mínum.
Ég þarf
bráðum að
fara að snyrta
runnann!
Góð
hug-
mynd!
Þú ert að
verða frekar
loðinn!
Slæmi
strákur!
Ég og
sængin
erum eitt. Ég og
sturtan
erum eitt.
Ég og morg-
unkornið
erum eitt.
Hann og
slugsahátt-
urinn eru
eitt.
Hugarró á skóladegi
Sálfræðingur
Hvaða bók
á ég að
fá pabba
til að lesa
fyrir mig?
Þessa
hérna.
Pott-
þétt.
Af
hverju?
Tvær
ástæður.
1) Þetta er myndabók og
2) Við borðuðum spagettí
í kvöldmat.
Þegar sá sem les var að
borða hvítlauk eru færri
orð betri.
Ó...
VILTU VINNA
RISA
SJÓNVARP FRÁ LG?
HM LEIKUR
ELKO
ÞÚ SENDIR SMS ESL HMV
Á NÚMERIÐ 1900
VIÐ SENDUM ÞÉR SPURNINGU UM HM.
ÞÚ SVARAR MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA SMS
ESL A, B EÐA C Á NÚMERIÐ 1900.
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ 42" LG SJÓNVARP
GEGGJAÐIR AUKAVINNINGAR
LG GSM SÍMI · FULLT AF GOSI · FIFA WORLD CUP LEIKINN
DVD MYNDIR · TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA
Vinningar verða afhendir í ELKO Lindum, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
149 kr/SMS-ið. Þú færð 5. mín. til að svara spurningu. Aðalvinningar dregnir út úr öllum skeytum 9. júlí.