Fréttablaðið - 21.06.2010, Qupperneq 10
10 21. júní 2010 MÁNUDAGUR
Bandaríski heimspekingurinn Daniel C. Dennet heldur fyrirlestur í Háskólanum í
Reykjavík, mánudaginn 21. júní kl. 16:00, sem ber yfirskriftina, “A human mind
as an Upside-down brain“.
Dennett er með þekktari fyrirlesurum samtímans og mikilvirkur
fræðimaður á sviði heimspeki hugans, vísindaheimspeki og
hugrænna vísinda (e. philosophy of mind, philosophy of science,
cognitive science). Dennett hefur einnig fjallað mikið um
þróunarkenningu og trúmál.
Fyrirlesturinn verður haldinn húsnæði Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík, Bellatrix (stofu M1.01).
ALLIR VELKOMNIR!
www.hr.is
A HUMAN MIND
AS AN UPSIDE-DOWN BRAIN
SVEITARSTJÓRNIR Fjárhaldsstjórn
Álftaness hefur gert nýja fjárhags-
áætlun fyrir sveitarfélagið þar sem
gengið er út frá verulega auknum
sparnaði á næstu árum frá því sem
sveitarfélagið sjálft og endurskoð-
unarskrifstofan KPMG gerðu ráð
fyrir í janúar.
Drög að greinargerð með nýju
áætluninni voru lögð fram í bæj-
arstjórn Álftaness á síðasta fundi
fyrir kosningar. „Þegar rekstur
Sveitarfélagsins Álftaness er skoð-
aður er einkum tvennt sem sker sig
úr í samanburði við önnur sveit-
arfélög á höfuðborgarsvæðinu.
Annars vegar mjög mikill launa-
kostnaður sveitarfélagsins, sem
hefur farið vaxandi milli ára, og
hins vegar mikill rekstrarkostn-
aður grunn- og leikskóla,“ segir í
drögunum.
Fjárhaldsstjórnin segir að á árinu
2008 hafi launakostnaður sem hlut-
fall af tekjum verið 65,5 prósent á
Álftanesi. Sama hlutfall hafi verið
49,3 prósent hjá öðrum sveitarfélög-
um á höfuðborgarsvæðinu á þess-
um tíma. Hlutfallið náði hámarki
á Álftanesi árið 2009 þegar það fór
upp í 72,2 prósent. Í nýrri áætlun
fjárhaldsstjórnarinnar á hlutfall
launakostnaðar af tekjum að verða
komið niður í 52,7 prósent á árinu
2012. Það er sama hlutfall og var
árið 2004.
Fjárhaldsstjórnin segir að nokk-
uð hafi verið um launagreiðslur
umfram kjarasamninga á Álfta-
nesi. Sérstaklega eru nefnd dæmi
um óvanalega miklar greiðslur
fyrir yfirvinnu á leiksskólum og
tvöfalt hærri greiðslur fyrir ræst-
ingu leikskólanna en ný uppmæling
segi til um.
Um háan rekstrarkostnað skól-
anna á Álftanesi segir að sem hlut-
fall af skatttekjum hafi hann verið
60,5 prósent á Álftanesi miðað við
43,5 prósent í nágrannasveitar-
félögunum.
Framtíðarskuldbindingar Álfta-
ness við Eignarhaldsfélagið Fast-
eign, Búmenn hsf. og Ris ehf. eru
virtar á 4.066 milljónir króna. 10
prósent álag á útsvar og 0,4 prósent
fasteignaskattur þurfi að vera í gildi
fram yfir árið 2015 eigi Álftanesi
að takast að mynda einhvern afgang
til að standa undir leigugreiðslum
sveitarfélagsins. Auk þess verði að
hagræða meira í rekstrinum. Það
sé mat fjárhaldsstjórnarinnar að
hægt sé að ná fram þeim rekstr-
arbata án þess að skerða frekar
þjónustu en þegar hafi verið gert í
sveitarfélaginu. gar@frettabladid.is
Hafa greitt of
mikið í laun
og rekstur
Fjárhaldsstjórn Álftaness boðar aukinn sparnað í
rekstri. Mikill launakostnaður og hár rekstrarkostn-
aður skóla á síðustu árum sker sig úr í samanburði
við nágrannasveitarfélögin.
ÁLFTANES Fjármálin eru í flækju og spara þarf meira en hægt er að gera án þess að
skerða þjónustu frekar en orðið er, segir fjárhaldsstjórnin sem skipuð var til handa
Sveitar félaginu Álftanesi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMGÖNGUR Svartfoss, skip Eimskips í Nor-
egi, siglir vikulega til Petsjenga-flóa á Kóla-
skaga. Svæðið hefur þar til fyrir skömmu
verið lokað öðrum en Rússlandsher og lýtur
stjórn hans, að því er BarentsObserver.com
greinir frá.
Petsjenga er um 20 kílómetra austur af
landamærum Noregs og Rússlands, en Svart-
foss hefur sinnt strandsiglingum upp með
strönd Noregs og starfar innan ramma áætl-
unar Evrópusambandsins að nafni Nort-
hern Maritime Corridor (NMC) verkefnið
og er ætlað að auðvelda siglingar milli Evr-
ópu og hafna í Norðvestur Rússlandi. Skipið
hefur farið þrjár ferðir til Petsjenga og
hefur viðkomu þar í vikulegum siglingum til
Múrmansk.
Haft er eftir Trond Lorentzen, talsmanni
Eimskips í Noregi, að norðurhluti og þá sér
í lagi norðvesturhluti Rússlands sé vaxtar-
svæði í siglingum.
„Fyrir tveimur árum stefndum við á að
koma við í Múrmansk þriðju hverja viku.
Núna komum við þangað vikulega og erum til
þessa eina vestræna skipafélagið sem hefur
þar reglulega viðkomu,“ er eftir Trond haft á
BarentsObserver.com. Hann furðar sig á að
önnur skipafélög hafi ekki stokkið á tækifær-
ið að komast í tengsl við Rússlandsmarkað í
gegn um Múrmansk. - óká
SVARTFOSS Eimskip í Noregi fékk systurskipin Svartfoss
og Storfoss afhent ný árið 2006.
Svartfoss siglir á umráðasvæði rússneska hersins á Kólaskaga:
Sigla vikulega til Petsjenga á Kólaskaga
MENNTUN Sumarið verður nýtt í
að stofna net sem verður nokk-
urs konar yfirhattur yfir alla fjóra
opinberu háskólana. Hugmyndir
um sameiningu Háskóla Íslands og
Háskólans í Reykjavík náðu ekki
fram að ganga. Þess í stað verður
samstarf allra skólanna stóraukið.
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra segir að stofnað verði
net, líkt og þekkist í Skotlandi og
í Bandaríkjunum, og háskólarn-
ir muni starfa saman. Af því verði
samlegðaráhrif. Spurð hvort þetta
sé fyrsta skrefið í átt til sameining-
ar segir hún að það sé hugsanlegt.
„Þarna verður til öflugra net í
anda samstarfs sem hugsanlega
leiðir til sameiningar. Markmiðið er
þó að það verði öflugt starf á öllum
fjórum stöðunum.“
Tillögurnar hafa verið kynntar
í ríkisstjórn en svo þær geti orðið
að veruleika þarf lagabreytingar.
Mismunandi lög gilda um skólana,
þannig fellur Háskólinn á Hólum
undir búnaðarlög en hinir undir lög
um háskóla. Auk Hólaskóla nær þetta
til HÍ, HA og Landbúnaðarháskólans
á Hvanneyri. Katrín segir að með
þessa sé hægt að samhæfa kennslu
og nýtingu á stofnþjónustu. Með
tillögunum er verið að fylgja ráðgjöf
erlendra sérfræðinga. - kóp
Stefnt að stórauknu samstarfi háskólanna:
Fyrsta skref sameiningar
MENNTAMÁLARÁÐHERRA Katrín Jakobs-
dóttir segir aukið samstarf opinberu
háskólanna geta leitt til sameiningar í
framtíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ALÞINGI Alþingi samþykkti sam-
hljóða tillögu upplýsingavefsins
Wikileaks um að búa til alþjóð-
legt „fjölmiðlafríríki“ á Íslandi
í liðinni viku.
Fimmtíu þingmenn greiddu
atkvæði með tillögunni og var
hún samþykkt vegna afgerandi
lagalegrar sérstöðu Íslands
varðandi tjáningar- og upplýs-
ingafrelsi.
Meginástæða tillögunnar var
birting RÚV í ágúst 2009 á lána-
bók Kaupþings, sem uppruna-
lega var lekið í Wikileaks.
Í tillögunni var lagt til að
Alþingi fæli ríkisstjórninni að
leita leiða til að styrkja tján-
ingar- og málfrelsi, miðlun og
útgáfufrelsi.
- sv
Lagaleg sérstaða Íslands:
50 þingmenn
samþykktu fjöl-
miðlafríríki
Rekstrar-
kostnaður
skólanna
á Álftanesi
var 60,5 prósent af skatttekj-
um miðað við 43,5 prósent í
nágrannasveitarfélögunum.
60,5%
ANNAR MEÐ BYSSU, HINN MYNDAVÉL
Tveir Ísraelar, annar hermaður en
hinn ljósmyndari, fylgjast með hópi
mótmælenda í bænum Nabi Saleh,
skammt frá Nablus á Vesturbakkanum.
NORDICPHOTOS/AFP