Samtíðin - 01.09.1970, Page 13
SAMTÍÐIN
EIIMIM IMESTI LEIKSIGLR
ÞESSARAR ALDAR
ÞEGAR Julie Andrews var ráðin til að
fara með hlutverk Elizu Doolittle í söng-
leiknum My Fair Lady í New York,fannsr
textahöfundi Ieiksins, Alan Jay Lemer,
og Fredenck Loewe, sem samdi lögin, hún
syngja prýðilega. Allt öðru máli gegndi
um leiktúlkun hennar. Hlutverk Elizu
var ákaflega vandasamt og gerólíkt þeim
hlutverkum, sem -Julie hafði leikið áður.
Auk þess var hún nú ekki nema 19 ára,
þegar hér var komið sögu.
Þeir Lerner og Loewe báðu Julie að lesa
allar lýsingar á aðalatriðum leiksins vand-
lega. Þeir sáu brátt, að hún réð ekki við
hlutverkið, þegar Eliza er að breytast úr
fákænni blómasölustúlku í fágaða heims-
konu. Samt sem áður ákváðu þeir að
hætta á að fá henni hlutverkið í þeirri
trú, að fyrsta flokks leikstjóri mundi geta
bætt túlkun hennar.
Þessi áhætta átti eftir að valda þeim
ruiklum áhyggjum. Á æfingum leiksins
tókst hinum aðalleikendunum, þeim Rex
Harrison og Stanley Holloivay, fljótlega
að skapa þær persónur, sem til var ætlazt.
Allt öðru máli gegndi um Julie Andrews.
Hún náði engum tökum á skapbreyting-
Uln Elizu og reyndist algerlega tilþrifa-
iaus í hlutverki hennar; það dó blátt á-
fi’am í höndum leikkonunnar.
Julie söng lögin óaðfinnanlega, en til-
svör hennar skorti allan sannfæringar-
brótt. Satt að segja var ekkert útlit fyrir,
að hún myndi valda hlutverkinu, þegar
komið var að frumsýningu leiksins!
Hér var mikið í húfi, eins og allir hljóta
að skilja. Allur undirbúningur þessarar
vönduðu, kostnaðarsömu og afdrifaríku
frumsýningar við Broadway var eins og
bezt varð á kosið. En allt þvílíkt myndi
koma fyrir ekki, ef stúlkan, sem allur
leikurinn snérist um, reyndist ekki vand-
anum vaxin, ef hún félli á prófinu!
Ástandið var blátt áfram uggvænlegt.
Æfingarnar höfðu misst marks, og auð-
sætt var, að útvega yrði aðra leikkonu í
stað Julie, ef túlkun hennar breyttist ekki
fljótlega til bstnaðar. Enginn tími var til
að bíða þess, að henni smáfæri fram. Ger-
breytingin á leik Julie yrði að verða jafn
skjót, jafn kraftaverkskennd, og umynd-
un Elizu Doolittle í leikritinu.
Maðurinn, sem átti að sjá um, að þetta
kraftaverk gerðist, hét Moss Hart, hann
annaðist leikstjórnina á My Fair Lady.
Allir vissu, að hann var óviðjafnanlegur
snillingur í sinni grein. Það hafði hann
margsýnt, m. a. við sviðsetningu söng-
leikja. Ef Moss gæti ekki vakið leikgáfu
Julie úr því dái, sem hún virtist vera fall-
in í, myndi engum öðrum treystandi til
þess.
Aðeins ein helgi var til stefnu, og þegar
Moss bað Julie að reyna að glíma við hlut-
verk Elizu með sér einum í tvo daga,
féllst hún undir eins á það. Hér virtist að
vísu vera um algerlega vonlausa tilraun