Fréttablaðið - 28.06.2010, Qupperneq 29
MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2010 3híbýli og viðhald ● fréttablaðið ●
Fjörugrjót í fallegum umbúðum
gæti verið skondið heimilisskart.
Kona sem kallar sig Margie heklar
utan um steina og selur á netinu.
Á vefsíðunni www.resurrecti-
onfern.typepad.com er að finna
myndir af fallegum steinum,
klæddum í rómatískt hekl.
Hannyrðakonan Margie, sem
segist sjálflærð í listinni að hekla,
tekur einnig myndir af steinunum
sem hægt er að kaupa sem vegg-
myndir og kort. Skemmtileg nálg-
un á náttúruna sem fer vel inni í
stofu. Vefverslunin etsy.com selur
einnig veggmyndirnar af steinun-
um meðal annars. - rat
Sænsku arkitektarnir Gabri-
ella Gustafson og Mattias
Ståhlbom reka saman hönnun-
arfyrirtækið TAF í Stokkhólmi.
Í hönnun sinni leitast þau við
að glæða hversdaginn ein-
hverju óvenjulegu með litlum
en áhrifamiklum breytingum
á því hvernig hlutir líta út og
hvernig þeir virka.
Lampinn Woodlamp er
þeirra mótspil við
borðlampa sem venjulega birtist
okkur í rennilegu stáli og flottum
tæknilegum útfærslum.
Með einföldum skrúfum, sem
ekkert er gert til að fela, er hægt
að stilla hæð og stöðu lampans og
rafmagnssnúran er einnig sýnileg,
þrædd gegnum viðinn. Við fyrstu
sýn gæti Wood lamp litið út fyrir
að hafa verið klambrað saman en
í einfaldleika sínum stendur hann
þó fyllilega sem úthugsuð og vel
útfærð vara sem glæðir hversdag-
inn einmitt einhverju óvenjulegu.
Sama má segja um lampann
Bottle þar sem hversdagslegur
og óspennandi hlutur hefur feng-
ið nýtt hlutverk, en lampinn lítur
út eins og vatnsbrúsi. Brúsann
má hengja upp í loft eða á vegg og
leggja hann frá sér, þess vegna á
gólfið og nota lampann jafnt utan-
dyra sem innan.
Gabriella og Mattias hafa vakið
talsverða athygli í hönnunartíma-
ritum og á sýningum fyrir óvenju-
lega og hressilega nálgun arkitekta
á vöruhönnun.
Heimasíðan þeirra er www.taf-
arkitektkontor.se. - rat
Óvenjulegir lampar úr smiðju TAF
Woodlamp gefur flóknum, rennilegum borðlömpum úr stáli
langt nef í einfaldleika sínum. MYND/PÅL ALLAN
Standlamp-
inn Foto er
ætlaður til
heimilisins en
hefur þó útlit
stúdíóljósa.
Hann fæst
einnig sem
loftljós og
vegglampi.
Arkitektarnir á bak við TAF Gabriella
Gustafson og Mattias Ståhlbom hafa
hlotið lof fyrir hressilega nálgun á
vöruhönnun.
Heklað utan um fallega steina.
MYND/WWW.RESURRECTIONFERN.TYPEPAD.COM
● KÓKKASSA og aðra kassa úr
hörðu plasti eða við má hæglega nota
til að útbúa flottan garðbekk eins og
þennan sem sést hér á myndinni. Út-
færslan er ekki aðeins einkar umhverf-
isvæn heldur líka mjög smart í alla
staði. Kassar til dæmis í rauðum og
gulum lit koma mjög sterkir inn.
Fjörugrjót í nýju og óvæntu ljósi
Vatnsbrúsi
hefur fengið
nýtt og spenn-
andi hlutverk
sem lampinn
Bottle.
Lampinn ber nafnið E27 og
vísar þannig bæði nafnið
og útlitið beint í hina
upprunalegu ljósaperu
Edisons.