Fréttablaðið - 28.06.2010, Qupperneq 37
MÁNUDAGUR 28. júní 2010 21
www.fronkex.is
Alicia Keys lét fyrir skömmu blessa ófætt barn sitt að hefðbundn-
um Zulu-sið og fengu Alicia og maður hennar, Swizz Beatz, ásamt
ófæddu barni þeirra Zulu-nöfn undir fíkjutré, sem er talið gefa
bæði góða heilsu og lukku.
Athöfnin fór fram í S-Afríku, þar sem litla
fjölskyldan var stödd vegna tónleika Keys á
HM, en Alicia Keys fékk einnig sérstaka bless-
un að Zulu-sið fyrir framlag sitt til hjálpar-
stofnunar Bobbi Bear, sem berst fyrir því að
hjálpa börnum sem misst hafa foreldra sína
úr alnæmi.
Það er svo bara að vona að blessun Zulu-
manna komi barni og fjölskyldu Keys vel í
framtíðinni.
Alicia Keys blessuð
Nýlega var það tilkynnt að söng-
konan Lady Gaga hefur sett
heimsmet.
Hún er nú fyrsti og eini lista-
maðurinn í sögu tónlistarniður-
hals sem á þrjú lög sem náð hafa
því að vera halað niður fjórum
milljón sinnum. Lögin sem um
ræðir eru Poker Face, Just Dance
og Bad Romance.
Þetta er frábær árangur og má
ætla að söngkonan furðulega sé
einstaklega ánægð með þessar
niðurstöður. Sérstaklega með það
fyrir augum að hún telst frekar
ný í bransanum.
Heimsmet í
niðurhali
Eins og áður hefur komið fram
komst upp um framhjáhald kylf-
ingsins Tiger Woods með á annan
tug kvenna á síðasta ári. Nú er svo
komið að skilnaður hans og eigin-
konu hans Elin Nordegren er á loka-
stigi.
Parið fyrrverandi náði sam-
komulagi sín á milli um flest atriði
í skilnaðinum. „Bæði Tiger og Elin
eru mjög nálægt því að klára sam-
komulagið og er þá undirskriftin
ein eftir,“ segja heimildarmenn.
Elin Nordegren, fyrrverandi
kona Tigers, má gera ráð fyrir því
að fá um 750 milljón dollara í sinn
hlut en það eru um 96 milljarðar
íslenskra króna. Þó þessi upphæð
sé há er spurning hvort hún bæti
fyrir sársaukann og niðurlæging-
una sem kylfingurinn olli henni og
fjölskyldunni. En þetta er þó senni-
lega miklu meira en nóg til þess að
byrja nýtt og betra líf.
Konurnar sem Tiger átti ástar-
ævintýri með áttu ýmislegt sam-
eiginlegt. Ekki einungis héldu þær í
vonina um að þær væru „hans eina“
heldur voru þær með svipað starfs-
heiti. Hjákonurnar unnu ýmist á
bar eða voru fyrrverandi og núver-
andi klámmyndaleikkonur. Eftir að
Rachel Uchitel, opinberaði samband
sitt við kylfinginn, komu konurnar
fram ein af annarri með sögur og
sannanir um samböndin.
Skilnaðurinn á lokastigi
Jessica Alba stoppaði nýverið
kínverska stúlku sem hafði áætl-
að að fara í allsherjar lýtaaðgerð
sem átti að gera stúlkuna líkari
leikkonunni.
Að öllum líkindum er þetta
ekki daglegt brauð hjá Alba, en
hin 21 árs gamla Xiaoqing vildi
ólm gangast undir lýtaaðgerðina,
allt til þess hún gæti unnið ástir
fyrrverandi kærasta síns á ný –
en uppáhalds leikkona hins fyrr-
verandi er einmitt Jessica Alba.
Inngrip Alba virðist hafa virkað,
en hin unga Xiaoging mun ekki
gangast undir
aðgerðina,
þrátt fyrir
að lýta-
læknar
hafi boðið
henni
aðgerðina
fría.
Tvær Ölbur?
SÆL OG BLESSUÐ Zulu-blessunin kemur sér von-
andi vel fyrir bæði Aliciu og ófætt barn hennar.
Á MEÐAN ALLT LÉK Í LYNDI Skilnaðurinn
er nú að ganga í gegn og ætti Elin að ná
að byrja nýtt og betra líf von bráðar.
SLÆR HEIMSMET GAGA á nú þrjú lög
sem hefur verið halað niður fjórum
milljón sinnum.
Sumir
hefðu
líklega
ekkert á
móti því
að vita af
tveimur
ölbum,
enda
leikkonan
gullfalleg.