Fréttablaðið - 28.07.2010, Qupperneq 26
28. JÚLÍ 2010 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● land undir fót
Enginn ratar eins þunnur
Nýja tækniundrið frá Garmin
Nüvi 3790
Fylgdu þeim fremsta! Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi | S: 577 6000 | www.garmin.is
Zoom-takkar
Sparakstur
Örnefni birtast á korti
Aðeins 8.95mm
Hámarkshraði á veg
sem ekið er á
Tilboðsverð 94.900 með Íslandskorti
Oregon 450
Vinsælasta útivistartækið
landslaginu. Kr. 74.900
Dakota 20
stóra útivistartæki
Kr. 59.900
Nüvi 1490TV
5” sjónvarpstæki.
Kr. 74.900
Nüvi 1350
Vinsælasta
leiðsögutækið
á aðeins
kr. 39.900 með
Evrópukorti.
GARMIN BÚÐIN
Áður en haldið er í helgarúti-
leguna er heillaráð að útbúa
nesti sem verður, þegar upp er
staðið, mun hollara og ódýrara
en það sem keypt er í sjopp-
unum. Matreiðslumeistararnir
Brynjar Eymundsson og Steinn
Óskar Sigurðsson luma á góð-
um ráðum.
„Ég man að þegar ég var að fara á
Atlavíkurhátíðirnar í gamla daga
nestaði Lukka mamma mig með
fullu boxi af samlokum með eggj-
um sem voru steikt á báðum
hliðum. Þetta sló þvílíkt
í gegn hjá okkur ungl-
ingunum og ef beikoni
var stungið á milli
sneiðanna líka urðu
samlokurnar enn
stórkostlegri,“ segir
Brynjar Eymundsson,
matreiðslumeistari og
eigandi hins nýja veitinga-
staðar Höfnin niðri við Reykjavík-
urhöfn. Hann vill líka ráðfæra sig
við yfimatreiðslumann staðarins,
Stein Óskar Sigurðsson, og saman
mæla þeir með íslenskri kjötsúpu
með öllu í. „Það er upplagt að
frysta hana í plastdöllum áður en
haldið er af stað og nýta hana sem
kælingu í nestisboxinu meðan hún
þiðnar. Þá er hún fín á laugardag,
sunnudag,“ bendir Steinn á.
Þeir félagar segja líka frábært
að grilla sér laxasneið og pensla
með barbecuesósu, setja hana í
hamborgarabrauð ásamt sýrð-
um rjóma og tómatsalati. „Svo
eru lambakótilettur sívinsælar í
ferðalagið og girnilegar kaldar, til
dæmis með kartöflusalati og græn-
meti,“ heldur Brynjar áfram. „Það
er líka hægt að bregða þeim á ein-
nota útigrill og vera þannig
snöggur að fá dýrindis
heita máltíð með lítilli
fyrirhöfn. Að sjálf-
sögðu á fólk svo að
hafa með sér klein-
ur og annan heima-
bakstur til að slá á
snakkkaupin.“
Þótt þeir félagar sjái
ekki fram á stórútileg-
ur um helgina þar sem annrík-
ið er mikið í Höfninni þá geta þeir
greinilega sett sig í spor þeirra
sem eru í útileguskapi og Steinn
kemur með síðustu þjóðráðin í
þessum pistli: „Það getur verið
gott að sleppa létt frá matargerð-
inni í útilegunni með því að kaupa
eitthvert tilbúið salat, til dæmis
kartöflusalat, og blanda sjálfur í
það rifnum steiktum kjúklingi eða
einhverju öðru kjöti, ásamt síðasta
gúrkubitanum og tómatinum sem
til er í ísskápnum áður en útidyra-
hurðin lokast á leið í fríið.“ - gun
Samlokurnar hennar Lukku
mömmu slógu alltaf í gegn
Þeir Brynjar og Steinn klikka ekki þegar kemur að nestisráðleggingum til þeirra sem
eru á leið í helgarútileguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● TORTILLA MEÐ HOLLU
ÁLEGGI Meðal þess sem fljót-
legt er að búa til áður en lagt
er upp í langferð og er lystugt
þegar komið er á leiðarenda eru
tortillarúllur með fersku græn-
meti, osti og góðri skinku eða
öðru kjöt- eða fiskáleggi. Tort-
illapönnukökur stórar: Skinka
eða annað álegg-Ostur-Ferskt
og gott salat-Rauð paprika-Tóm-
atar-Mexíkósk ostasósa. Sósunni
er smurt á tortillakökuna. Kál,
paprika, tómatar, kjöt- eða fisk-
meti og ostur er lagt ofan á og
kökunni rúllað upp þéttingsfast.
Svo má skera kökuna í netta bita
ef fólk vill.