Fréttablaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 34
29. JÚLÍ 2010 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● sumardrykkir
Kókosvatn er nýjasta æðið í Hollywood. Þar
sést varla stjarna úti á götu án þess að sötra
vatn úr fyrsta flokks græn-
um, hráum kókoshnetum.
Fréttir herma að leik-
konan og fyrirsætan
Rebecce Romijin og
söngkonan Madonna
séu óðar í kókosvatn
og á sú síðarnefnda,
ásamt stjörnum á
borð við Matthew
McCon aughey og Demi
Moore, að hafa fjárfest í Vita
Coco, sem framleiðir hundrað
prósent hreint kókosvatn úr hnet-
um frá Brasilíu. Vinsældir kókos-
vatns í Hollywood eru ekki ástæðu-
lausar þar sem það er álit-
ið vera næringarríkt og
innihalda fáar hitaein-
ingar en stjörnurnar eru
þekktar fyrir að leggja
ýmislegt á sig til að huga
að heilsunni og viðhalda
unglegu útliti.
Stjörnurnar vilja kókosvatn
Leikkonan Demi Moore
hefur kolfallið fyrir
kókosvatni.
Að vatni frátöldu er te vinsælasti
drykkur veraldar. Grænt te er eitt
afbrigði og algengt í Asíu og víðar.
Grænt te nota sumir sem mildan
örvandi drykk líkt og aðrir nota
til dæmis kaffi. Þá hefur grænt
te væg, þvagræsandi áhrif. Kín-
verskir alþýðulæknar hafa öldum
saman ráðlagt fólki að drekka
grænt te gegn höfuðverk og niður-
gangi og til að losa um barkastíflu,
sem fylgir kvefi, hósta, astma og
öndunarfærakvillum. Þetta kemur
fram á vefsíðu Lyfju, www.lyfja.is,
þar sem finna má nánari upplýs-
ingar um grænt te.
Grænt te gott
við höfuðverk
● GÓÐAR GEYMSLUAÐ-
FERÐIR Jarðarber er vinsælt
að nota út í drykki af ýmsum
toga. Geymsluþol þeirra er
hins vegar takmarkað en á vef-
síðunni islenskt.is kemur fram
hvernig þau sé best að geyma.
Jarðarber geymast verr í hita
og því er nauðsynlegt að setja
þau í skál, strekkja matarfilmu
yfir og geyma í ísskáp við 2-8°
C geymsluhita. Berin má líka
frysta, þurr eða í sykurlegi og er
gott að setja þau fryst út í ýmsa
boost-drykki. .
● AÐ VELJA VATNSMEL-
ÓNU Vatnsmelónur er hægt
að nota ýmist sem snakk, í salöt
eða út í svaladrykki, enda bæði
ljúffengar og uppfullar af C-vít-
amíni og kalki. Hins vegar er
gott að hafa nokkur atriði í huga
þegar velja á bragðgóða vatns-
melónu. Best er að byrja að
banka í hana og ef örlítið tóma-
hljóð heyrist er hún við réttan
þroska. Þá mega endarnir hvorki
vera grjótharðir né mjög linir
heldur eiga þeir að dúa örlítið ef
á þá er ýtt. Glerharðar vatnsmel-
ónur eru yfirleitt óþroskaðar og
þær of mjúku ofþroskaðar.
Grænt te nýtur vinsælda í Asíu.