Fréttablaðið - 29.07.2010, Qupperneq 46
34 29. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Forsetafrú Frakklands, Carla Bruni-Sark-
ozy, getur nú bætt leikarafaginu á feril-
skrána eftir að tökur hófust á nýrri mynd
Woody Allen, Midnight in Paris. Bruni leik-
ur safnstjóra í myndinni og á móti henni
leikur Hollywood-stjarnan Owen Wilson.
Þetta er í fyrsta sinn sem forsetafrúin leik-
ur en hún hefur bæði gefið út tónlist og setið
fyrir á ljósmyndum. „Ég veit ekkert hvort
ég get leikið og það getur vel verið að ég sé
skelfileg leikkona en ég verð að taka áhætt-
una. Þá get ég sagt barnabörnum mínum
að ég hafi leikið í Woody Allen-mynd þegar
ég var ung,“ segir Carla en myndin verður
frumsýnd á næsta ári.
Byrjuð að leika
FORSETAFRÚIN Carla
Bruni-Sarkozy leikur í nýrri
mynd Woody Allen.
Karatestrákurinn og meist-
ari hans eru mættir aftur
á hvíta tjaldið í myndinni
Karate Kid en í þetta sinn
eru það sjálfur Jackie Chan
og ungstirnið Jaden Smith
sem fara með aðalhlutverk-
in. Myndin er endurgerð
samnefndrar kvikmynd-
ar frá árinu 1984 og nú eru
áhorfendur leiddir inn í
hinn forboðna heim karate-
listarinnar á ný. Myndin var
frumsýnd í íslenskum bíó-
húsum í gær.
Það er erfitt fyrir tólf ára gamlan
strák að finna sig í nýju umhverfi
en það fær Dre Parker, frá Detroit,
að upplifa þegar hann neyðist til að
flytja með móður sinni yfir hnött-
inn og alla leið til Kína. Nýr skóli,
nýir siðir og allt önnur menn-
ing blasir við Parker, sem á í úti-
stöðum við kínverska skólabræð-
ur sína. Þegar húsvörður skólans
kemur Parker til bjargar einn dag-
inn kynnist Parker bardagaíþrótt-
inni karate. Húsvörðurinn, Mr.
Han, reynist vera karatemeistari
og hefst hann handa við að kenna
Parker listina bak við íþróttina svo
hann geti tekist á við skólafélag-
ana og jafnvel heillað stelpu upp
úr skónum.
Með aðalhlutverk í mynd-
inni fara Jackie Chan og það er
ung stirnið Jaden Smith sem leik-
ur karatenemann frá Detroit.
Hann hefur meðal annars leikið í
Pursuit for Happiness með föður
sínum, Will Smith, en hann og
móðir hans, Jada Pinkett Smith,
eru einmitt framleiðendur mynd-
arinnar. Leikstjóri er hinn norsk-
hollenski Harald Zwart sem
meðal annars hefur gert mynd-
ir á borð við Pink Panther og
Agent Cody Banks. Hann er ætt-
aður frá bænum Fredrikstad, rétt
fyrir utan Ósló í Noregi, og var
mikil glamúr-frumsýning þar á
kvikmyndinni í síðustu viku þar
sem allar stjörnur myndarinn-
ar fjölmenntu. Það er ekki vana-
legt að Hollywood-stjörnur leggi
leið sína í smábæ í Noregi til að
kynna kvikmynd og vakti það
mikla athygli fjölmiðla.
Karate Kid hefur fengið ágæt-
is dóma og fékk góða aðsókn vest-
anhafs þegar hún var frumsýnd í
byrjun sumars. Blaðamaður Time
gefur henni góða dóma og hrós-
ar sérstaklega aðalleikaranum,
Jaden Smith, og segir hann hafa
allt til brunns að bera til að verða
stærri stjarna en pabbinn, Will
Smith. Spurning hvort þessi mynd
verði jafn vinsæl og hin fyrri sem
hratt af stað karateæði meðal
ungmenna á níunda áratugnum.
alfrun@frettabladid.is
Karate-strákurinn snýr
aftur á hvíta tjaldið
MEISTARI OG NEMI Jackie Chan og Jaden Smith leika aðalhlutverkin í nýju útgáfunni
af Karate Kid.
Ungi leikarinn Ralph George Macchio skaust upp á stjörnu-
himininn þegar fyrsta Karate Kid-myndin var frumsýnd árið
1984. Hann varð ein helsta táningastjarnan og eftirsóttur
fjölmiðlamatur. Macchio lék einnig í tveimur framhalds-
myndum Karate Kid árin ´86 og ´89 en hann var
tilnefndur til Razzie-verðlaunanna fyrir þá síðar-
nefndu.
Í dag ber ekki mikið á kappanum sem hefur
varla fengið kvikmyndahlutverk síðan ævin-
týrum karatestráksins lauk. Glöggir sjón-
varpsáhorfendur geta þó hafa séð honum
bregða fyrir í aukahlutverkum í Ugly Betty,
Entourage og Law and Order-sjónvarpsþátt-
unum á síðustu árum.
HVAÐ VARÐ UM RALPH MACCHIO?
Teiknimyndasöguhátíðin Comic Con fór
fram um helgina í San Diego en þar voru
kynntir leikararnir sem munu leika ofurhetj-
urnar í kvikmyndinni Avengers. Myndin er
byggð á samnefndum teiknimyndasögum
og mun Joss Whedon leikstýra. Í Avengers
koma saman margar af helstu ofurhetjum
hvíta tjaldsins og myndarinnar því beðið
með eftirvæntingu af aðdáendum.
Robert Downey Jr. mun fara með gamal-
kunnugt hlutverk Iron Man en hann hefur
nú þegar leikið járnmanninn í tveimur
myndum. Mark Ruffalo bregður sér í líki
The Incredible Hulk og Chris Evans stíg-
ur á svið sem Captain America. Einnig er
Jeremy Renner, sem var tilnefndur til Ósk-
arsverðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni
Hurt Locker, á leikaralistanum en hann á að
leika hetjuna Hawk eye. Hollywood-stjarn-
an Scarlet Johansson er eina konan á leik-
aralistanum en hún mun fara með hlutverk
svörtu ekkjunnar, eða The Black Widow. Af
leikaralistanum að dæma má gera ráð
fyrir að myndin verði ein af stórmynd-
um ársins 2012.
Stjörnum prýdd Avengers
JÁRNKARLINN Robert Downey Jr. fer með
hlutverk Iron Man á ný í væntanlegri mynd
um ofurhetjurnar Avengers. Scarlet Johansson
bregður sér í líki The Black Widow í myndinni.
>FLUGMAÐUR Í NÝRRI MYND
Leikkonan Blake Lively, sem flest-
ir þekkja úr sjónvarpsþáttunum Goss-
ip Girl, hefur tekið að sér hlutverk í
myndinni Green Lantern sem er
væntanleg á næsta ári. Þar
leikur hún á móti leikaranum
Ryan Reynolds og leika þau
flugmenn á orrustuþotum
sem fljúga út í geim. Þetta er
í fyrsta sinn sem Lively landar
hlutverki í stórmynd.
Nýjasta kvikmynd Angelinu Jolie,
spæjaramyndin Salt, náði ekki
að slá kvikmyndina Inception af
toppi aðsóknarmestu kvikmynda í
Bandaríkjunum. Myndin var frum-
sýnd um helgina og var búið að spá
því að hún myndi velta drauma-
mynd Christophers Nolan, Incept-
ion, úr sessi en sú er búin að sitja á
toppnum frá því hún var frumsýnd
í byrjun mánaðarins.
Í kvikmyndinni Salt leikur Ang-
elina Jolie rannsóknarlögreglu-
konu hjá CIA sem er sökuð um að
vera rússneskur njósnari.
Nær ekki toppnum
ANNAÐ SÆTIÐ Nýjasta mynd Angelinu
Jolie, Salt, var í öðru sæti yfir aðsóknar-
mestu kvikmyndir í Bandaríkjununum.
Eins og flestum er kunnugt vinnur
leikstjórinn David Fincher nú hörð-
um höndum að því að undirbúa tökur á
myndinni, The girl with the dragon
tattoo, sem er byggð á metsölubók-
inni Karlar sem hata konur eftir
sænska höfundinn Stieg Larsson.
Flestir bjuggust við því að
Fincher myndi laga söguþráð-
inn og stemningu kvikmyndar-
innar að bandarískum aðstæðum
og umhverfi en því vísar hann
á bug. Myndin verður tekin upp
í Stokkhólmi og bænum Uppsölum
rétt fyrir utan höfuðborgina. „Það er
ekki hægt að skapa magnþrunginn og
dularfullan sænskan vetur í Seattle.
Við verðum að gera þetta alvöru,“
segir Fincher um þessa ákvörðun sína.
Það mun því verða stjörnufans í Stokk-
hólmi á meðan á upptökum stendur og
Svíarnir vafalítið spenntir yfir þessu.
Fincher, sem er hvað þekktastur
fyrir að hafa leikstýrt myndinni The
Curious Case of Benjamin Button,
hefur alltaf verið þögull sem gröfin um
myndina og vill ekki mikið gefa út á
fleiri atriði varðandi myndina.
Á dögunum var staðfest að leikarinn
Daniel Craig mun leika blaðamanninn
óhrædda, Mikael Blomkvist, en ekkert
hefur komið í ljós hver leikur pönk-
aða tölvusnillinginn Lisbet Salander
en ungar Hollywood-leikkonur virð-
ast slást um hlutverkið. Myndina á að
frumsýna í desember 2011.
Tekin upp í Svíþjóð
DAVID FINCHER Ætlar ekki að reyna að búa til
sænska stemmingu í Bandaríkjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
ERTU AÐ FARA
Í SUMARFRÍ?
Pósthúsið ehf. annast dreifingu Fréttablaðsins,
nánari upplýsingar á www.visir.is/dreifing
Þú getur afpantað Fréttablaðið á meðan þú ert að heiman.
Hafðu samband í grænt númer 800-1177 eða sendu póst
á netfangið dreifing@posthusid.is