Fréttablaðið - 29.07.2010, Side 51

Fréttablaðið - 29.07.2010, Side 51
FIMMTUDAGUR 29. júlí 2010 39 Leikarar í Djúpinu um borð í endurgerðri útgáfu af bátnum Hellisey. Leikarinn Björn Thors undir sæng í káetunni um borð í Hellis- eynni. Baltasar Kormákur skipuleggur atriði í Djúpinu. Leikarinn Russell Crowe hefur samþykkt að taka þátt í Ben Húr-sýningu sem verður haldin í föð- urlandi hans, Ástralíu. Sýningin er byggð á sam- nefndri kvikmynd og fjallar um þræl sem bauð rómverska keisaraveldinu birginn, rétt eins og Crowe gerði í myndinni Gladiator. Í þetta sinn verður leikarinn í hlutverki sögumanns og verður því eingöngu á bak við tjöldin. „Það rennur upp sú stund í lífi hvers skylmingaþræls að hann þarf að stíga af stalli og gefa öðrum tæki- færi,“ sagði Crowe. „Þetta er risavaxin sýning. Það hefur verið mikill metnað- ur lagður í hana og ég varð bara að vera með.“ Yfir tvö þúsund manns taka þátt í sýningunni, sem var upphaflega sýnd í Frakklandi árið 2006. Crowe í Ben Húr RUSSELL CROWE Leikarinn hefur samþykkt að taka þátt í Ben Húr-sýningu í föðurlandi sínu, Ástralíu. Tónlistarmaðurinn Elton John hringir í rapparann Eminem í hverri viku til að ganga úr skugga um hvort hann sé allsgáður. Emin- em aflýsti tónleikaferð sinni fyrir fimm árum vegna fíknar í lyfseð- ilsskyld lyf. „Elton hringir í mig einu sinni í viku. Hann er í þess- um bransa og veit hversu erfitt getur verið að halda dampi. Hann skilur vel álagið sem er á lista- mönnum,“ sagði Eminem. Hinn 63 ára Elton átti sjálfur við kókaín- fíkn að stríða og misnotaði áfengi en tókst að sigrast á vandanum. Hann og Eminem hafa verið góðir vinir síðan þeir sungu saman á Grammy-verðlaununum árið 2001. Elton hringir í Emin- em í hverri viku EMINEM Rapparinn Eminem fær símtal frá Elton John í hverri viku. „Allir vinna“ er hvatningarátak sem miðar að því að hleypa krafti í atvinnu lífið á Íslandi. Þeir sem ráðast í framkvæmdir við eigið íbúðar- húsnæði eða sumarhús eiga rétt á 100% endurgreiðslu á virðisauka- skatti af vinnu á verkstað. Að auki fæst lækkun á tekjuskatts stofni, sem getur numið allt að 300.000 krónum. Arion banki býður nú viðskiptavinum sínum hagstæð lán til að styðja við átakið.* ** * Lánin eru veitt til einstaklinga með góða greiðslugetu. ** 3% lægra en óverðtryggðir kjörvextir Arion banka skv. vaxtatöflu. Við ætlum að gera betur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.