Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.07.2010, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 29.07.2010, Qupperneq 54
42 29. júlí 2010 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Ísland á eitt besta landslið heims í handbolta karla, ekki bara hjá A-landsliðum heldur einnig í ungmennaflokki. Strákarnir í U20 ára landsliði Íslands, fæddir 1990 eða síðar, hafa spilað saman í meira og minna fimm ár en þetta er síðasta stórmótið sem þeir fara saman á. Mótið fer fram í Slóvakíu en þar varð Ísland einmitt Evrópumeistari ungmennaliða árið 2003. „Við erum ekki hræddir við að gefa það út að við stefnum á gullverðlaun. Það er ekki alltaf venjan hjá Íslendingum að gefa það út en við vorum í öðru sæti á síðasta stórmóti og ætlum ekki á EM til að ná lakari árangri. En við gerum okkur grein fyrir því að þetta verður erfitt og ein átta önnur landslið telja sig líka geta unnið,“ segir Einar Guðmundsson, þjálfari liðsins, en Ísland lenti í fjórða sæti á EM í Tékklandi árið 2008. Liðið hefur eytt sumrinu saman og nánast búið í Kaplakrikanum. Þar voru daglegar lyftingaæfingar allan júnímánuð og aðeins tekið frí á sunnudögum. Liðið hefur síðan æft tvisvar á dag um helgar í júlí. „Strákarnir eru margir hverjir að fórna sumarvinnu og öðru. Einhverjir ákváðu að vinna ekkert og einbeita sér alfarið að handboltanum, aðrir stunda létta vinnu,“ segir þjálfarinn sem er ánægður með ákveðnina í liðinu. Í því eru tveir leikmenn sem spiluðu með A-landsliði Íslands á EM í Austurríki, Ólafur Guðmundsson og Aron Pálmarsson. „Þetta er mjög góður og einstakur hópur. Metnaðurinn er mikill og markmiðin eftir því. Það getur brugðið til beggja vona í þessu móti, einn slakur leikur og mótið gæti verið búið fyrir okkur. Liðið er ekki endilega undir neinni utanaðkomandi pressu, það setur á sig pressu sjálft.“ Ísland er í riðli með heimamönn- um í Slóvakíu auk Ísraels og Portú- gals. „Við teljum okkur vera nokk- uð heppna með riðil. Við töpuðum reyndar fyrir Portúgal á síðasta ári í æfingaleik, þeir eru litlir, fljótir og teknískir. Það er alltaf hættu- legt að mæta heimaliðinu en Ísrael er fyrirfram með veikasta lið rið- ilsins.“ Einar segir að íslenska liðið muni breyta til á þessu móti og færa sig úr 3-2-1 vörn í 5-1 og 6-0 vörn. Það er sú vörn sem A-landslið Íslands vinnur hvað mest með. Hraðaupphlaup eru aðalsmerki liðsins og vonast þjálfarinn eftir fleiri slíkum með breyttri vörn. „Við höfum lagt gríðarlega vinnu í varnarleikinn og með þessu viljum við nýta styrkleika okkar betur,“ segir Einar og bætir við að breiddin í hópnum sé að aukast og leikmenn sem hafa verið að koma af bekknum séu enn sterkari en áður. Fyrsti leikur Íslands er gegn heimamönnum í dag klukkan 18.00. hjalti@frettabladid.is Við ætlum okkur gullið Ungmennalandslið Íslands í handbolta er á leiðinni í lokakeppni EM sem hefst á morgun. Liðið vann silfurverðlaun á HM á síðasta ári og hefur spilað meira og minna saman í fimm ár. Þjálfarinn er óhræddur við að stefna á gullið. Í STÓRUM HLUTVERKUM Ólafur Guðmundsson og Aron Pálmarsson eru lykilmenn í liði Íslands. Hér eru þeir á æfingu landsliðsins í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Leikmenn Íslands: Nafn (Lið) Landsleikir (Mörk) Markmenn: Arnór Stefánsson (ÍR) 33 (0) Sigurður Arnarson (Fram) 12 (0) Kristófer Guðmundss. (Afturelding) 14 (0) Aðrir leikmenn: Guðmundur Á. Ólafsson (Haukar) 37 (195) Ragnar Jóhannsson (Selfoss) 37 (148) Ólafur Guðmundsson (FH) 37 (141) Oddur Gretarsson (Akureyri) 34 (129) Örn Ingi Bjarkason (FH) 29 (69) Stefán Sigurmannsson (Haukar) 29 (52) Aron Pálmarsson (Kiel) 26 (140) Sigurður Ágústsson (FH) 22 (42) Róbert Aron Hostert (Fram) 21 (18) Þorgrímur Ólafsson (ÍR) 18 (16) Bjarki Már Elísson (HK) 16 (20) Heimir Óli Heimisson (Haukar) 11 (18) Árni Steinn Steinþórsson (Selfoss) 8 (14) FÓTBOLTI Valsstúlkur töpuðu fyrir Fylki í Pepsi-deild kvenna á þriðjudagskvöldið. Lokatölur urðu 3-0 fyrir Fylki sem sýndi að Valur er ekki ósigrandi lið. Úrslit- in hleypa spennu í Íslandsmótið á nýjan leik. Allt útlit var fyrir að Valur myndi tryggja sér sigur á mótinu löngu áður en því lyki en úrslitin sýna að enn getur allt gerst í deildinni. Valur hafði unnið átta leiki í röð fyrir leikinn á þriðjudaginn og ekki tapað í síðustu 26 leikjum í öllum keppnum. Síðasta tap Valskvenna var í Meistaradeild- inni gegn Torres Calcio á síðasta ári. Í íslenskum mótum lék liðið 31 leik í röð án þess að tapa. Síðasta tapið var gegn Þór/KA í ágúst í fyrra og náði Valur því ekki að fara taplaust í gegnum heilt ár. Valur hafði skorað í 50 leikjum í röð í öllum keppn- um. Síðasti leikur sem liðinu mistókst að skora var í leik gegn Stjörnunni 28. apríl í Deildabikarnum á síðasta ári. Síðasti deildarleikur sem Val tókst ekki að skora í var árið 2003 gegn ÍBV úti í Vestmannaeyjum. ÍBV vann þann leik 5-0 þar sem Margrét Lára Viðarsdótt- ir og Olga Færseth skoruðu báðar tvö mörk. Í þeim leik komu fjórir leikmenn við sögu sem einnig léku gegn Fylki á þriðjudaginn, Pála Marie Einarsdóttir, Kristín Ýr Bjarnadóttir og Dóra María Lárusdóttir byrjuðu allar báða leikina. Laufey Ólafsdóttir byrj- aði leikinn 2003 en kom inn á sem varamaður á 60. mínútu á þriðjudaginn. - hþh Valsstúlkum hafði ekki mistekist að skora í deildarleik síðan árið 2003: Valur skoraði í 50 leikjum í röð SKOTSKÓRNIR HEIMA Valsstúlkum mistókst að skora en hér reynir Kristín Ýr Bjarnadóttir skot að marki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Stjörnumaðurinn Stein- þór Freyr Þorsteinsson kemur heim í dag frá Svíþjóð þar sem hann hefur dvalið hjá 1. deildar- félaginu Örgryte. Steinþór segir að ef rétta boðið kæmi gæti hann hugsað sér að semja við félagið. „Ég hef bara farið á tvær rólegar æfingar svo þetta er ekki alveg marktækt. En þeir hafa séð leiki með mér og þess vegna buðu þeir mér út. Mér líst vel á félagið, þetta er toppklúbbur og ef rétta boðið kemur gæti ég samið við það, ef félögin ná samkomulagi um kaupverð,“ sagði Steinþór við Fréttablaðið. Sigurður Hilmarsson, formað- ur meistaraflokksráðs Stjörn- unnar, segir að ekkert tilboð hafi borist í Steinþór. „Félagaskipta- glugginn lokar 2. ágúst og þeir þurfa því að hafa hraðar hendur,“ segir Sigurður. En hvað er sann- gjarnt kaupverð fyrir Steinþór? „Fyrir nokkrum árum voru 20- 30 milljónir sanngjarnt en það er ekki raunin lengur. Við erum kannski að tala um frá 5 milljón- um og allt að 20 með öllu,“ segir Sigurður. - hþh Steinþór Freyr Þorsteinsson: Semur ef rétta boðið kemur ÖFLUGUR Steinþór gæti spilað sinn síð- asta leik fyrir Stjörnuna á sunnudaginn semji hann við Örgryte. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fannar Ólafsson og félagar hans í KR-liðinu vita enn ekki hver verður þjálfari liðsins í Iceland Express-deild karla í körfubolta á komandi tímabili. „Ég var að tala við Bödda formann í gær og hann fullviss- aði mig um það að þetta yrði klárað fyrir helgi. Ef það gerist ekki þá er þetta orðið svolítið seint, því undirbúningstímabil- ið þarf að fara að hefjast,” segir Fannar en hann segist aldrei hafa verið í þessari stöðu áður á ferlinum. „Það er ekkert stress hjá þeim og ég veit að þeir eru að fara að koma með öflugan þjálfara. Við erum með öflugt lið og þú þarft ekki að vera einhver galdramaður til að ná árangri með þetta lið. Þess vegna er stressið minna en ella því það er búið að tryggja það að við höldum öllum leikmönnum. Þá er maður miklu rólegri en ef það væri í uppnámi líka þá væri maður orðinn þvílíkt stressaður,” segir Fannar. Hann er ánægður með Pavel Ermolinskij og Brynjar Þór Björnsson í sumar en hann segir þá verða prímusmótora liðsins á næsta tímabili. „Þeir eru búnir að vera rosalega duglegir, eru búnir að vera að lyfta á milljón og flestir strákarnir eru búnir að vera með einkaþjálfara í allt sumar. Þjálfunar- lega séð þá þurfum við ekkert að stressa okkur því við erum líkam- lega í mjög góðu formi,“ segir Fannar en hann er jafnframt á því að nú þurfa hlutirnir að fara að gerast. „Ef það fer að líða lengri tími þá fer ég að vera pirraður því ég vil bara að þetta verði klárað,” segir Fannar sem segir að nýi þjálfarinn þurfi að vera nagli sem hann hafi trú á. „Það eru nokkur stærstu egó landsins í liðinu og þar er ég meðtalinn. Ef það er ekki einhver aðili sem getur sagt mér að halda kjafti þegar maður er kominn á flug þá fer þetta illa,“ sagði Fannar og hann hefur þegar sett stefnuna hátt þótt enginn sé þjálfarinn. „Við ætlum að vinna þrefalt og erum tilbúnir að gefa það strax út. Við ætlum að vinna deild, bikar og Íslandsmótið. Við ætlum ekki að vera í neinum feluleik með það.“ FANNAR ÓLAFSSON, FYRIRLIÐI KR: KÖRFUBOLTALIÐ KR ER EKKI ENN KOMIÐ MEÐ ÞJÁLFARA Í LOK JÚLÍ Þarf einhvern sem getur sagt mér að halda kjafti FRJÁLSAR Björgvin Víkingsson var langt frá því að ná sér á strik í 400 metra grindahlaupi á Evrópumótinu í Barcelona í gær. Björgvin hljóp á 54,46 og var neðstur í keppninni, rúmri sekúndu á eftir næsta manni. Íslandsmet Björgvins er 51,17 sekúndur en síðasti maður inn í undanúrslitin hljóp á 51,11 sekúndum. Björgvin hefði því þurft að slá Íslands- metið sitt til að eiga möguleika á því að komast áfram. Aðstæður í Barcelona í gær voru mjög erfiðar en mikill hiti var í borginni. Björg- vin hefur þar með lokið keppni á EM í ár. - hþh Björgvin Víkingsson: Varð síðastur í grindahlaupinu BJÖRGVIN VÍKINGSSON > Ásdís keppir í úrslitunum í kvöld Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni keppir í kvöld til úrslita á Evrópumótinu í Barcelona. Ásdís keppir í spjótkasti við ell- efu aðrar konur en hún tryggði sig inn í úrslitin með kasti upp á 56,55 metra. Hún var síðust inn í úrslitin en aðeins fjórar konur köstuðu yfir 60 metra. Íslandsmet Ásdísar er 61,37 metrar en hennar besta kast á árinu 60,72. Á Evrópumótinu í Gautaborg fyrir fjórum árum kastaði Ásdís 51,33 metra en besti árangur Íslendings í spjótkasti á EM er þegar Einar Vilhjálmsson náði níunda sæti árið 1990. Úrslitakeppnin hefst klukkan 18.40 í kvöld. FÓTBOLTI Enska götublaðið Daily Mirror hélt því fram í gær að Fulham og Birmingham hefðu bæði áhuga á að fá Eið Smára Guðjohnsen í sínar raðir. Hann hefur verið í viðræðum við Totten ham þar sem hann var í láni á síðasta tímabili en þær hafa enn engan árangur borið. Mirror sagði að ónefnt félag í Dubai hefði einnig áhuga á Eiði Smára. Það gæti verið að um sé að ræða Al-Ahli, sem Fabio Cannavaro gekk til liðs við í sumar og er þjálfað af David O‘Leary. - esá Eiður Smári Guðjohnsen: Orðaður við félag í Dubai FÓTBOLTI Það er ljóst að önnur af tveimur sigurhefðum tekur enda á KR-vellinum í kvöld þegar Framarar sækja KR-inga heim í undanúrslitaleik VISA-bikars karla. Á sama tíma og Framlið- ið hefur unnið fjórtán undanúr- slitaleiki í röð í bikarnum hefur Safamýrarliðið tapað átta leikjum í röð á KR-vellinum. Framarar hafa unnið alla fjór- tán undanúrslitaleiki sína frá og með árinu 1973, þar á meðal 1-0 sigur á KR í undanúrslitaleikn- um í fyrra en sá leikur fór fram á Laugardalsvellinum. Fram vann einnig sigur á KR í undanúrslita- leiknum 1984. Framarar hafa ekki tapað í undanúrslitum bik- arsins síðan Blikar unnu þá 1-0 á Melavellinum 1971. KR-ingar hafa hins vegar unnið átta síðustu leiki liðanna í deild og bikar og markatalan í þessum átta leikjum er, 18-3, KR í vil. Síð- asti sigurleikur Fram á KR-vell- inum var í 16 liða úrslitum bik- arsins 2002 þegar Ágúst Gylfason tryggði Fram sigurinn. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.15 en þetta er í 22. skiptið sem þessi fornfrægu Reykjavíkurfé- lög mætast í bikarnum. KR hefur unnið tíu sinnum en Framarar níu sinnum og tveir leikir enduðu með jafntefli og voru leiknir að nýju. - óój Undanúrslit VISA-bikarsins: Fram búið að vinna 14 í röð EKKERT GEFIÐ EFTIR Fram og KR mætast í bikarnum í kvöld. Hér eru Almarr Ormarsson og Jordao Diogo í baráttunni í deildarleik á KR-vellinum í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.