Fréttablaðið - 29.07.2010, Qupperneq 56
44 29. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Þrjú lið eru efst og jöfn
á toppi 1. deildar karla en heil
umferð fór fram í deildinni í gær.
Leiknir lagði Víking, 2-0, í topp-
slag deildarinnar og eru bæði lið
með 28 stig ásamt Þórsurum sem
unnu 1-0 sigur á botnliði Njarðvík-
ur suður með sjó. Það var Ármann
Pétur Ævarsson sem skoraði eina
mark leiksins í síðari hálfleik en
Þórsarar sitja nú í efsta sætinu
með betra markahlutfall en Leikn-
ir og Víkingur.
Fyrri hálfleikur í leik Leiknis og
Víkings var mjög fjörlegur en bæði
lið áttu marktilraunir sem höfnuðu
í markrammanum á fyrstu mín-
útunum. Bæði lið fengu góð færi
til að skora en Leiknismaðurinn
Kjartan Andri Baldvinsson skor-
aði eina mark hálfleiksins.
Heimamenn höfðu svo yfirhönd-
ina í síðari hálfleik og tryggðu sér
sigurinn með marki Kristjáns Páls
Jónssonar. Þeir fengu einnig víti
á lokamínútum leiksins en Magn-
ús Þormar, markvörður Víkings,
greip boltann frá Fannari Þór Arn-
arssyni sem vippaði boltanum á
mitt markið.
ÍR-ingar eru í fjórða sætinu og
nú fimm stigum á eftir toppliðun-
um eftir að hafa tapað naumlega
fyrir KA á Akureyri, 3-2. Sigur-
markið kom í uppbótartíma en það
var Steinn Gunnarsson sem var
hetja KA-manna og tryggði liðinu
dýrmæt stig í fallbaráttunni.
Fjarðabyggð og Njarðvík eru nú
í neðstu tveimur sætum deildar-
innar, bæði með ellefu stig. Fjarða-
byggð tapaði fyrir Þrótti á heima-
velli, 3-1.
Grótta er svo í tíunda sætinu
með þrettán stig en liðið gerði
2-2 jafntefli við Gróttu eftir að
hafa komist yfir, 2-1. Jónas Grani
Garðarsson skoraði bæði mörk
HK-inga og jafnaði metin fyrir þá
með marki úr vítaspyrnu undir lok
leiksins.
Þá gerðu Fjölnir og ÍA 1-1 jafn-
tefli í Grafarvoginum. - esá
Fjarðabyggð - Þróttur 1-3
KA - ÍR 3-2
Njarðvík - Þór 0-1
Fjölnir - ÍA 1-1
Leiknir - Víkingur 2-0
HK - Grótta 2-2
STAÐAN
Þór 14 8 4 2 27-15 28
Leiknir 14 9 1 4 22-12 28
Víkingur 14 9 1 4 26-17 28
ÍR 14 6 5 3 25-23 23
Fjölnir 13 6 3 4 26-20 21
ÍA 13 5 4 4 22-18 19
Þróttur 14 5 2 7 20-25 17
HK 14 4 4 6 20-26 16
KA 14 4 4 6 19-25 16
Grótta 14 3 4 7 21-24 13
Fjarðabyggð 13 3 2 9 17-28 11
Njarðvík 14 3 2 9 9-21 11
1. DEILDIN
FÓTBOLTI FH-ingar eru komnir í
bikarúrslitaleikinn í annað skipt-
ið á síðustu sex árum eftir að þeir
unnu 3-1 sigur á spútnikliði bikar-
keppninnar í ár, Víkingi frá Ólafs-
vík, í Kaplakrikanum í gær.
Bikarævintýri Víkinga og 26
leikja taplaus hrina liðsins fékk
sitt stærsta próf í Kaplakrikanum
í gær þegar Ólafsvíkingar sóttu
heim Íslandsmeistarana úr FH.
Víkingarnir gátu þó gengið stoltir
af velli enda hafa þeir sannað að
árangur liðsins í sumar er engin
tilviljun.
„Þetta var gríðarlega erfið bar-
átta en við erum samt ánægðir með
það sem við erum búnir að gera í
sumar og að 2. deildarlið hafi kom-
ist svona langt í bikarnum. Þetta
er flott sem við erum búnir að
gera,“ sagði Þorsteinn Már Ragn-
arsson, ungur framherji Víkinga,
sem skapaði oft hættu í gær.“ Þetta
er flott hjá okkur og við erum ekk-
ert ósáttir með þetta. Við förum
ánægðir heim í Ólafsvíkina. Þetta
er búið að vera frábært bikarsumar
og er búið að vera þvílíkt ævintýri.
Það er frábært að hafa verið spútn-
ikliðið í sumar,“ sagði Þorsteinn.
Víkingar gáfu tóninn strax í byrj-
un leiks með því að skapa hættu
eftir aðeins 45 sekúndna leik. Þeir
mættu FH-ingum af grimmd og
festu út um allan völl frá fyrstu
mínútu og báru enga virðingu fyrir
Hafnarfjarðarrisanum.
Eftir rólegan miðkafla fóru hlut-
irnir síðan að gerast í lok fyrri
hálfleiksins.
Gunnar Már Guðmundsson
kom FH í 1-0 á 40. mínútu þegar
hann skallaði í markið eftir flotta
fyrirgjöf Atla Guðnasonar og þá
bjuggust örugglega flestir við að
gestirnir af Snæfellsnesinu myndu
brotna en annað kom á daginn.
Víkingar tóku ekki langan tíma í
að gráta yfir markinu heldur sneru
vörn í sókn og voru búnir að jafna
leikinn um tveimur mínútum síðar.
FH-ingar hjálpuðu þeim við það því
Tommy Nielsen skoraði þá sjálfs-
mark eftir lúmska fyrirgjöf frá
Þorsteini Má Ragnarssyni.
FH-ingar voru mjög nálægt því
að komast aftur yfir en nauðvörn
Víkinga í kjölfarið á aukaspyrnu
kom í veg fyrir það og staðan var
því jöfn í hálfleik.
FH-ingar tóku hins vegar öll völd
á vellinum í seinni hálfleiknum og
Atli Viðar Björnsson og Matthías
Vilhálmsson tryggðu FH sigurinn
með tveimur mörkum. Atli Viðar
skoraði fyrst með skalla á 57. mín-
útu eftir sendingu Matthíasar en
Matthías skoraði úr víti á 70. mín-
útu sem Björn Daníel Sverrisson
fékk.
„Þetta var alltof hægt hjá okkur
í fyrri hálfleik og þeir voru að
standa sig mjög vel. Við jukum
aðeins tempóið og gerðum það sem
við þurftum en ekki mikið meira
en það,“ sagði Matthías Vilhjálms-
son, fyrirliði FH, og hann hrós-
aði Ólafsvíkingum. „Þetta er mjög
flott fótboltalið og ég hef mikla trú
á þeim á næstu árum ef þeir halda
sama mannskap. Þeir geta bara
verið sáttir við sitt. Þetta er búið
að vera mikið ævintýri fyrir þá og
vonandi geta þeir byggt eitthvað á
þessu.“ ooj@frettabladid.is
Búið að vera frábært bikarsumar
FH-ingar og Víkingar gátu farið ánægðir heim eftir skemmtilegan undanúrslitaleik fyrir framan tvö þúsund
manns í Kaplakrika í gær. FH er komið í úrslitaleikinn en Víkingar geta verið stoltir af frammistöðu sinni.
FÓTBOLTI Ejub Purisevic, þjálf-
ari Víkinga, gat verið stoltur af
sínum strákum þrátt fyrir 3-1 tap
fyrir FH í gær.
„Við áttum að vera yfir eftir
fyrri hálfleikinn og jafnvel
tveimur mörkum yfir með smá
heppni. Það sem gerðist í seinni
hálfleik var þessi munur á
úrvalsdeild og 2. deild. Við erum
ekki vanir því í 2. deild að spila á
svona háu tempói allan tímann,“
sagði Ejub.
„Við vorum alls ekki eitthvað
lið sem þeir völtuðu yfir og gerðu
grín að. Við vorum kjarkaðir, til-
búnir að spila og áttum fullt af
færum miðað við að vera að spila
við FH. Maður vonaðist eftir því
að kraftaverk myndi gerast og
við kæmumst áfram en maður
verður að vera meðvitaður um
getu þessara liða. Ef það er tekið
með í reikninginn þá fannst mér
við vera nánast sigurvegarar í
kvöld,“ sagði Ejub að lokum. - óój
Ejub, þjálfari Víkinga:
Vonaðist eftir
kraftaverkinu
BARÁTTA Úr leiknum í gær. MYND/DANÍEL
EKKERT GEFINS Atli Guðnason og félagar í FH þurftu að hafa fyrir sigrinum á 2. deild-
arliði Víkings frá Ólafsvík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Heil umferð í 1. deild karla í gærkvöldi:
Þrjú lið efst og jöfn
á toppi deildarinnar
TOPPLIÐIÐ TAPAÐI Helgi Sigurðsson og félagar í Víkingi misstu toppsætið í 1. deild-
inni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL