Fréttablaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 2
2 7. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
NÁTTÚRA Sá tími ársins þegar
geit ungar eru mest áberandi er nú
runninn upp.
„Þetta gerist á svipuðum tíma
á hverju ári. Þeir verða áberandi
á þessum tíma þegar karldýr og
nýjar drottn-
ingar myndast
í búunum. Karl-
dýrin frjóvga
drottningarnar
sem fljúga svo í
burtu og dreifa
sér,“ segir Þóra
Hrafnsdóttir,
sérfræðingur á
Náttúrufræði-
stofu Kópavogs.
Þóra segir enn
eitthvað í að geitungunum fari að
fækka aftur. „Almennt má segja að
geitungar þurfi fjóra mánuði til að
ljúka búskapnum svo þeim ætti að
fara að fækka verulega í lok sept-
ember.“
Íslenski geitungastofninn varð
fyrir áfalli í ágúst árið 2004 þegar
óvenjulegt veðurfar gekk nærri
því af stofninum dauðum. „Það
rigndi mikið í byrjun ágúst og í
kjölfarið skall á hitabylgja sem
stóð í nokkurn tíma. Ætli það hafi
hreinlega ekki farið að mygla hjá
þeim blessuðum sem drap þá bara
og hjó stórt skarð í stofninn,“ segir
Þóra en bætir því við að stofninn
hafi verið að ná sér á strik aftur.
Þóra segir sumarið í ár hafa
verið gott fyrir náttúruna.
„Almennt hefur þetta sumar verið
gott fyrir gróður- og dýralíf. Allt
virðist vera um mánuði á undan
því sem maður á að venjast.“
Spurð um hvað fólk sem finnur
óvelkomið geitungabú í garðinum
hjá sér á að gera mælti Þóra með
því að hafa samband við Náttúru-
fræðistofnun Íslands. „Þar er skor-
dýrafræðingur sem hefur mikinn
áhuga á því að fá slík bú í hendurn-
ar til að greina og telja úr.“ - mþl
Geitungastofninn að ná sér eftir hrun árið 2004:
Geitungar áberandi þessa dagana
ÞÓRA
HRAFNSDÓTTIR
GEITUNGAR Búast má við því að
geitungar verði áfram áberandi næstu
vikurnar haldist veðrið gott.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
FJÖLMIÐLAR Fréttavefur BBC
greindi frá því í gærdag að borg-
arstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr,
hafi komið fram í draggi á setn-
ingarhátíð Gay Pride í Reykjavík
á fimmtudagskvöld.
Fréttin segir stuttlega frá þeim
aðdraganda sem kom Jóni í borg-
arstjórastólinn. Hún greinir meðal
annars frá þeim slagorðum og
uppátækjum sem Besti flokkur-
inn tamdi sér í sveitarstjórnar-
kosningunum og lýsir uppistandi
Jóns á setningarhátíðinni.
„Þetta kallið þið yfir ykkur
þegar þið kjósið trúð,“ sagði Jón í
drottningargervinu. - sv
BBC um borgarstjóra:
Greinir frá
Gnarr í draggi
SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftir-
litið gerir alvarlegar athugasemd-
ir við frumvarp um breytingar á
búvörulögum sem lagt hefur verið
fram. Í fréttatilkynningu um málið
segir að með
frumvarpinu sé
fyrirhugað að
lögfesta refsi-
fyrirkomulag
gagnvart tiltekn-
um rekstraraðil-
um sem hafi hug
á að framleiða
mjólkurvörur
fyrir íslenska
neytendur.
„Eins og segir í umsögn okkar
gerum við alvarlegar athuga-
semdir við þessi áform og teljum
að gangi þau eftir séu allar líkur
á því að það skaði bæði neytendur
og bændur. Við leggjumst því gegn
frumvarpinu,“ segir Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri Samkeppniseft-
irlitsins, og bætir því við að sam-
keppni sé til þess fallin að halda
keppinautum á tánum, lækka verð,
auka gæði og hvetja til nýbreytni.
Hann segir engum vafa undirorp-
ið að samkeppni á þessum mark-
aði komi neytendum og bændum
til góða.
Frumvarpið er lagt fram af
Jóni Bjarnasyni, landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra, en er til
umfjöllunar í sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefnd. Sigurður Ingi
Jóhannsson, nefndarmaður í sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarnefnd,
sagði nýverið í samtali við Ríkis-
útvarpið að samkeppni ætti ekki
við á þessum markaði. Spurður um
það sjónarmið segir Páll að Sam-
keppniseftirlitið hafi talsvert skoð-
að þennan markað á undanförn-
um árum og minnir á húsleit sem
farið var í hjá Mjólkursamsölunni
fyrir nokkru síðan. Hann segir að
rannsóknir eftirlitsins sýni fram
á með óyggjandi hætti að innkoma
nýrra aðila inn á markaðinn, eins
og gerðist þegar Mjólka hóf mjólk-
urframleiðslu, hafi mjög góð áhrif
á þróun hans og það til góða fyrir
neytendur og bændur líka.
Í umsögn Samkeppniseftirlits-
ins segir að um mikilvægan neyt-
endamarkað sé að ræða. Með því
frumvarpi sem um ræðir sé geng-
ið enn lengra en áður í þá átt að
takmarka samkeppni á umrædd-
um markaði og þannig séu enn
frekar festar í sessi samkeppn-
ishömlur neytendum og bændum
til tjóns.
Þar kemur enn fremur fram að
íslenskur mjólkurmarkaður hafi
mörg einkenni samráðshrings.
Páll Gunnar segir að oft sé það
þannig þegar fyrirtæki standa
í ólögmætu samráði að þá grípi
menn til þess ráðs að búa til ein-
hvers konar viðurlagakerfi til
þess að tryggja að aðilar samráðs-
ins svíki það ekki. „Við erum að
benda á að það eru ákveðin líkindi
með slíku og því sem lagt er til í
þessu frumvarpi; það er að koma
upp viðurlagakerfi. Í þessu tilfelli
á að nýta réttarkerfið til að passa
upp á það að keppinautar kom-
ist ekki inn á markaðinn og það
er auðvitað óviðunandi og getur
varla komið til greina að eigi rétt
á sér.“ magnusl@frettabladid.is
Festir í sessi fákeppni
á mjólkurmarkaði
Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við frumvarp landbúnaðarráðherra um
breytingar á búvörulögum af Samkeppniseftirlitinu. Í umsögn þess segir að nái
frumvarpið fram að ganga komi það bæði neytendum og bændum illa.
BÚVÖRUMARKAÐUR Frumvarp landbúnaðarráðherra hefur töluvert verið gagnrýnt út
frá samkeppnissjónarmiðum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
PÁLL GUNNAR
PÁLSSON
NÁTTÚRA Heildarfjöldi frjókorna
í Reykjavík í júlí var langt yfir
meðaltali og sló út met sem sett
var sumarið 1991, að því er fram
kemur í samantekt Náttúrufræði-
stofnunar Íslands. Frjókorn á
Akureyri voru hins vegar langt
undir meðaltali.
Heildarfjöldi frjókorna í rúm-
metra fór í 4000 frjó, en metið frá
1991 voru 2500 frjó. Á Akureyri
fór heildarfjöldi frjóa í rúmmetra
í 378, sem er langt undir meðal-
tali júlímánaðar, sem er um 770
frjó í hverjum rúmmetra. - bj
Munur á frjókornamælingum:
Metsumar í
Reykjavík
STJÓRNMÁL Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, segir
„algjörlega ótímabært“ að tala um hvort hún samein-
ist að einhverju leyti Hreyfingunni. Þór Saari, þing-
maður Hreyfingarinnar, bauð þá flokksmenn
VG sem vildu velkomna í sinn flokk í blað-
inu í gær. Lilja segist finna fyrir miklum
stuðningi almennra kjósenda VG og vilji
ekki bregðast þeim nema nauðbeygð.
„Það hafa margir, aðallega pólitískir
andstæðingar, sagt að ég eigi betur heima
þar. Margir sem kusu Hreyfinguna kusu
áður VG og þetta er því svipaður kjós-
endahópur. Ég starfaði með Þór
Saari í búsáhaldabyltingunni og hef
þekkt hann lengur en marga í VG.
Þannig að ég kann mjög vel við þau
í Hreyfingunni. En mér líður ágætlega í VG og á þar
mjög gott samstarf við marga,“ segir Lilja.
Spurð hvort hún útiloki slíkt samstarf, jafn-
vel með fleiri þingmönnum úr VG, en
blaðið hefur haft veður af slíkum
þreifingum, segist Lilja ekki vilja
svara því, hún hafi ekki hugsað þau
mál í þaula: „Við vinstrimenn viljum
hafa gott samstarf, og hvort sem við
enduðum í sama flokknum eða störf-
uðum saman á ólíkum sviðum,
held ég að sé bara algjörlega
ótímabært að segja um. Ég
væri líka mjög ánægð með
það ef Hreyfingin gengi í
VG!“ - kóþ
Þingmaður VG segir ótímabært að tala um hvort og hvernig samstarf gæti orðið:
Vill ekki útiloka Hreyfinguna
„Magnús, var við ramman
reip að draga í keppninni?“
„Nei, fyrir mér var þetta ekki
keppni.“
Magnús Jónsson var valinn draggdrottn-
ing Íslands í annað skipti á fimmtudags-
kvöld. Keppnin var hörð í þetta skiptið og
sagðist Magnús ekki hafa átt von á sigri.
FERÐIR „Þeim tókst að finna kjól
sem er líkur þeim sem Vigdís
Finnbogadóttir var í á frægri
mynd frá níunda áratugnum. Ég
sé núna að það hæfir mér vel að
vera forseti,“ segir söngkonan
Hafdísi Huld en mynd af henni í
hlutverki forseta Íslands verð-
ur til sýnis á ljósmyndasýningu
í miðborg Lundúna sem verður
opnuð á fimmtudag.
Hinn hálfíslenski ljósmynd-
ari Emilie Fjóla Sandy, og vin-
kona hennar, Kamilla Weinhardt,
standa að sýningunni. „Við spurð-
um einstaklinga í skapandi grein-
um hvað þeir höfðu viljað verða
þegar þeir voru börn,“ segir
Emilie. - mmf / sjá Ferðalög
Ljósmyndir í Lundúnum:
Hafdís Huld
sem forseti
HAFDÍS HULD Söngkonan vildi verða
forseti Íslands. MYND/ÚR EINKASAFNI
STJÓRNSÝSLA Runólfur Ágústsson
afþakkaði laun á uppsagnarfresti
í bréfi til félagsmálaráðuneytis-
ins. Þetta kemur fram í yfirlýs-
ingu sem Run-
ólfur sendi frá
sér í gær.
Í yfirlýsing-
unni sagðist
hann jafnframt
hafa skilað inn
til ráðuneyt-
isins umbeðn-
um gögnum um
fjármál sín og
félaga tengdum
honum.
Fréttablaðið óskaði eftir því við
félagsmálaráðuneytið í gær að fá
gögnin afhent og fékk það svar að
málið yrði skoðað og að haft yrði
samband síðar um daginn. Ekk-
ert heyrðist hins vegar meira frá
ráðuneytinu í gær. - sh
Runólfur svarar ráðuneytinu:
Afþakkar laun
eftir uppsögn
RUNÓLFUR
ÁGÚSTSSON
Stika leið á Breiðbak
Ferðaklúbburinn 4x4 ætlar með
heimild Skaftárhrepps að stika
hálendisleið á Breiðbak. Merkingum
mun lítið hafa verið sinnt í áratugi.
HÁLENDIÐ
SKIPULAGSMÁL Skipulagsstofn-
un hefur úrskurðað að viðbót við
snjóflóðavarnir í Bolungarvík
skuli ekki háð mati á umhverfis-
áhrifum. Frá þessu greinir vest-
firski miðillinn bb.is.
Skipulagsstofnun segir að við-
bótin sé ekki líkleg til að hafa í
för með sér umtalsverð umhverf-
isáhrif og að miðað við núverandi
aðstæður muni fyrirhugað snjó-
flóðavarnarvirki hafa jákvæð
áhrif á öryggi íbúa. Neikvæð
áhrif verði helst sjónræn, einkum
meðan á framkvæmdum stendur.
Það verði þó ekki veruleg áhrif.
- þeb
Úrskurður Skipulagsstofnunar:
Snjóflóðavarnir
fara ekki í mat
SPURNING DAGSINS