Fréttablaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 4
4 7. ágúst 2010 LAUGARDAGUR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 06.08.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 209,363 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 117,75 118,31 186,77 187,67 154,98 155,84 20,797 20,919 19,667 19,783 16,522 16,618 1,3683 1,3763 179,93 181,01 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR DALVÍK Fiskidagurinn mikli verður hald- inn í tíunda sinn í dag. Hátíðin er reyndar farin að teygja sig yfir heila viku, en var formlega sett í gær. Ýmis afmælisatriði munu einkenna hátíðina í ár og meðal annars gaf Aron Óskarsson hátíðinni frum- samið lag, „Kvöld- ið fyrir fiskidaginn mikla“ og frum- flutti það í gær. Þá verða í boði ýmsir tónleikar og sýningar, auk þess sem götunöfnum Dalvíkur er öllum breytt svo fyrri hluti þeirra sé fiska- nafn. Fiskisúpu- kvöldið vinsæla er svo í kvöld. Fiskidagurinn 10 ára FLATEY Messað verður í Flateyjarkirkju í dag, eins og hefð er fyrir fyrsta laugardag í ágúst. Athöfnin í dag hefst klukkan tvö og ætla félagar úr kór Reykhólapresta- kalls að syngja en undirspilið verður á harmonikku. Viðgerðum á kirkjunni lauk nýverið en viðgerðir á múr, þaki og turni hennar hafa staðið yfir í nokkur ár. Á döfinni er svo að gera við listaverk Baltasars Sampers sem prýða kirkjuna að innan. Messað í Flateyjar- kirkju BOLUNGARVÍK Þjóðverji í sjóstangveiði veiddi 219 kílóa stórlúðu við Bolungarvík í gær. Fiskurinn var 248 sentimetrar á lengd og er talið líklegt að lúðan gæti jafnvel verið sú stærsta sem nokkurn tímann hefur veiðst á sjóstöng. Það er haft eftir Hauki Vagnssyni á heimasíðunni vikari.is. Þó nokkrar lúður hafa veiðst á sjóstöng á Vestfjörðum í sumar. Stærsta stórlúða heims veidd? STRANDABYGGÐ Ekki er til nægilegt húsnæði í sveitarfé- laginu Strandabyggð að mati atvinnumálanefndar sveitarfé- lagsins. Nefndin hefur lýst yfir áhyggjum sínum af þessu og segir það standa samfélaginu þar fyrir þrifum þegar auglýst sé eftir fólki til starfa þar. Sveitar- stjórn Strandabyggðar ætlar að leita lausna á málinu. Skortur á húsnæði í Strandabyggð VESTMANNAEYJAR Fimmtíu þúsund manns hlustuðu á kvölddagskrá Þjóðhátíðar í Eyjum síð- astliðið sunnudagskvöld. Hápunktur útsendingar- innar er brekkusöngur undir stjórn Árna Johnsen sem stendur í klukkutíma og hefur hann lengi verið sendur út í beinni útsendingu á Rás 2, en í ár var ákveðið að senda alla kvölddagskrána út. Samkvæmt hlustunartölum Capacent stillti um fimmtungur Íslendinga á aldrinum tólf til 80 ára einhvern tímann á útsendinguna. Brekkusöngurinn vinsæll Umhverfis landið SANDGERÐI Nokkuð hefur verið um innbrot í Sandgerði undanfarna daga. Um verslunarmannahelgina var brotist inn í Reynisheimilið og félagsheimili Golfklúbbs Sandgerð- is, auk þess sem brotist var inn í tvö einbýlishús þar sem flatskjám, tölvum og fleiru var stolið. Talið er að við inn- brotið í Reynisheimilið hafi þjófarnir notað stiga og verið kunnugir aðstæðum, því þeir fóru beint inn um glugga á skrifstofu á annarri hæð. Kunnugir þjófar brutust inn NÁTTÚRA Mun færri hreindýr eru nú á syðsta veiðisvæðinu, svoköll- uðu svæði 9, en reiknað var með þegar ákveðið var hversu mörg dýr ætti að veiða á svæðinu, segir Sig- urður Guðjónsson, hreindýraleið- sögumaður á svæðinu. Hann segir að banna ætti veiðar alfarið til að stofninn nái sér á strik. „Ég myndi stöðva veiðarnar, það er það eina sem hægt er að gera,“ segir Sigurður. „Ef offjölgun verð- ur í kjölfarið er hægt að bjarga því strax með veiðum, en það er útilok- að að lífga við dýr sem hafa verið drepin.“ Svæði níu er syðsta veiðisvæðið, en undir það falla Hornafjörður, Mýrar og Suðursveit. Hreindýr eru talin yfir vetrar- tímann og segir Sigurður að sig gruni að dýr sem talin séu að vetri færi sig á milli svæða í meira mæli en áður hafi verið talið. Það leiði til þess að færri dýr séu eftir á svæð- inu til að veiða upp í kvótann. Við það bætist að landeigendur heim- ila sumir ekki veiði og þá verði enn meira álag á skepnur sem eftir séu á veiðisvæðum. Miðað við síðustu talningu sé nú því til kvóti á fleiri dýr en séu á svæðinu. Sigurður sendi bæjarráði Horna- fjarðar erindi um málið, en því var vísað til umhverfis- og skipulags- nefndar. - bj Segir ekki nóg af hreindýrum á syðsta veiðisvæðinu til að ná veiðikvótanum: Vill setja veiðibann á svæðinu VEIÐAR Hreindýr sem talin eru á syðsta veiðisvæðinu að vetri halda ekki endi- lega til þar að sumri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÖGREGLUMÁL Ökumaður mótor- hjóls mældist á 170 kílómetra hraða skammt frá Dalvík seint á fimmtudagskvöld. Maðurinn reyndi að stinga lög- regluna af en náðist eftir stutta eftirför. Hann reyndist nýlega hafa verið sviptur ökuréttindum eftir að hafa ekið á tæplega 120 kílómetra hraða á Akureyri. Nokkur erill hefur verið á Dal- vík vegna ölvunar og fjöldi fólks er á svæðinu vegna Fiskidagsins mikla. Einn gisti fangageymslur aðfaranótt föstudags. - þeb Stöðvaður í annað sinn: Á 170 kílómetra hraða á Dalvík STJÓRNSÝSLA Áhrif fæðingar- orlofs karla á verkaskiptingu ungra foreldra verður könn- uð, samkvæmt þingályktun- artillögu sem Árni Páll Árna- son, félags- og tryggingamála- ráðherra, hefur undirbúið. Til- lagan er um framkvæmda- áætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2010 til 2014. Áætlunin er unnin í samráði við einstök ráðuneyti, Jafnréttisstofu og Jafnréttisráð. Kanna á sérstak- lega áhrif niðurskurðar á greiðsl- um úr fæðingarorlofssjóði á orlofs- töku feðra. - sv Áætlun í jafnréttismálum: Vill láta kanna þátttöku feðra ÁRNI PÁLL ÁRNASON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 26° 26° 22° 26° 25° 22° 22° 23° 21° 30° 27° 35° 21° 25° 15° 23°Á MORGUN Stíf A-átt suðaustast, annars mun hægari. MÁNUDAGUR Hæglætis veður, líkur á þoku við V-ströndina. 15 15 16 16 15 14 14 14 14 12 11 5 4 6 13 1 4 2 8 4 6 7 14 16 15 18 16 15 15 18 18 14 BJARTVIÐRI Á MORGUN Það verða skúrir suð- vestan til fram á síðdegið svo það er best að grípa regnhlífi na með í Gleðigönguna í dag. Það léttir hins vegar til í kvöld og á morgun lítur út fyrir sumarblíðu víða um land. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaðurÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum 2010 vegna ársins 2011 sem jafnframt er síðasta úthlutun sjóðsins. Þjóðhátíðarsjóður minnir á að frestur til að senda umsóknir um styrki 2010 vegna ársins 2011 er til og með 31. ágúst n.k. Nánari upplýsingar eru veittar í símum 569 9628 og 569 9781 eða á netfanginu: thjodhatidarsjodur@ sedlabanki.is. Að öðru leyti er vísað í ítarlegri auglýsingar sem birtust í stærstu dagblöðunum 19. júní sl., og fi nna má einnig m.a. á vefslóðinni http://www.sedlabanki.is/?PageID=28. Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs PÓLLAND, AP Bronislaw Komorow- ski tók við sem forseti Póllands í gær, rúmum mánuði eftir sigur á Jaros- law Kaczinsky í seinni umferð forsetakosn- inga. Áður en Komorowski var settur inn í embættið við hátíðlega athöfn á þingi minntust þingmenn með stuttri þögn fyrri forseta, Lech Kaczinsky, sem fórst í flugslysi í Rússlandi í apríl ásamt mörgum helstu ráðamönnum landsins. Komorowski er tæplega sextug- ur hægrimaður, ákafur talsmaður frjálsra viðskipta og Evrópusam- bandsins. - gb Pólland fær nýjan forseta: Forvera minnst með þögn BRONISLAW KOMOROWSKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.