Fréttablaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 64
36 7. ágúst 2010 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. VILMUNDUR GYLFASON FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Þar sem tilveran og til- gangurinn heyja orustu þar tapa báðir.“ Vilmundur Gylfason (1948- 1983) var ljóðskáld, blaða- maður og stjórnmálamaður. MERKISATBURÐIR 1727 Öræfajökull tekur að gjósa með svo miklu öskufalli í þrjá daga að vart sér mun dags og nætur. Með fylgir gríðar- legt vatnshlaup sem legst aðallega milli Sandfells og Hofs. 1939 Haukur Einarsson synd- ir Grettissund frá Drangey til lands á mettíma, þrem- ur klukkustundum og tut- tugu mínútum. 1960 Vilhjálmur Einarsson bætir eigið Íslandsmet í þrístökki frá því í Mel- bourne 1956 er hann stekkur 16,70 metra á frjálsíþróttamóti í Reykja- vík. Útilegumennirnir Fjalla- Eyvindur Jónsson og Halla Jónsdóttir voru tekin til fanga á Sprengisandi þennan dag árið 1772. Það var Einar Brynjólfsson á Stóra-Núpi sem átti leið norður sandinn, ásamt fjórum mönnum. Þeir voru með fjörutíu hesta undir skreið. Skammt norðan við Biskupsþúfu komu þeir auga á dável hlaðna kofahvirfingu á lækjarbakka og er þeir riðu enn lengra sáu þeir aðra kofa og búfénað í haga. Þarna fundu þeir þau Eyvind og Höllu, sem bæði báðu sér lífs og griða. Þau slógust þó í för með þeim án átaka og á leiðinni fræddi Eyvind- ur Sunnlendingana um ýmis örnefni og kennileiti. Þegar kom norður í Mývatnssveit reið Einar með fanga sína til Reykjahlíðarkirkju og seldi þá í hendur Jóni hreppstjóra Tómassyni. Skömmu síðar slapp Eyvindur úr haldinu og tókst fljótlega að frelsa Höllu. Þau lágu úti í tæpa tvo áratugi. ÞETTA GERÐIST: 7. ÁGÚST 1772 Fjalla-Eyvindur og Halla handtekin Þáttaskil urðu í lífi Braga Ólafsson- ar er Flugfélag Íslands hætti reglu- bundnu áætlunarflugi til Vestmanna- eyja 3. þessa mánaðar. Hann hafði verið umdæmisstjóri félagsins í Eyjum í tæp 40 ár. Bragi býr í virðulegu og vinalegu húsi austarlega í bænum og er úti í garði að taka fyrir nýrri stétt þegar Fréttablaðið forvitnast um hvernig honum sé innanbrjósts og hvað hann hyggist fyrir núna. „Ég er alveg sáttur enda kominn á aldur og hafði reiknað með að hætta 67 ára en er að verða 71,“ segir Bragi glaður. „Ég átti að hætta um síðustu áramót en þá var sýnt að áætl- unarferðir legðust af í byrjun ágúst og ég var beðinn að halda áfram þangað til. Nú fer ég að sinna hugðarefnum og get alltaf fundið mér eitthvað að gera, til dæmis mun ég örugglega fara oftar upp á fastalandið en áður, það hefur ekki alltaf verið tími til þess því vinnu- dagurinn hefur oft verið langur. Ég fór yfirleitt út á flugvöll fyrir sjö til að geta gefið fólki upplýsingar áður en Herjólf- ur fór sína fyrstu ferð. Svo var stundum ófært hluta dagsins og verið að athuga skilyrðin með klukkutíma millibili. Þá hljóp maður ekkert frá.“ Bragi hóf að vinna kringum flug- ið árið 1965 og tók við sem umdæm- isstjóri 1973. „Það var mikið um að vera eftir Vestmannaeyjagosið og 1974 fluttum við 49.000 farþega milli Eyja og Reykjavíkur. Dag eftir dag voru sex vélar í förum hér á milli, það voru svo margir að skoða gosið. Eyjamenn voru líka að tínast heim aftur og mikið að gera við að flytja varning.“ Fleira segir hann hafa breyst við gosið. Eitt var það að nóg efni fékkst til að lengja flugbrautina í Eyjum. Við það löguðust aðstæður en veðráttan hefur þó ævin- lega háð flugi þangað. „Við höfum allt- af haft þessa suðaustanátt að glíma við og stundum líka misvinda,“ segir Bragi. „Fólk er stundum undrandi á því að það sé ekki flogið, það er fallegt veður og blaktir varla hár á höfði niðri í bænum en vindpokarnir við völlinn fara í hringi.“ Reglur Flugfélagsins hafa verið mjög ábyggilegar að sögn Braga. „Það er mikil gæfa að vera við starfsemi sem ekkert óhapp hefur hent.. Ég hef líka átt mjög gott samstarf við starfsmenn og mína yfirmenn hjá Flugfélaginu og svo haft margt gott fólk í vinnu. Lengi framan af voru engar reglugerðir um aldurstakmark og ég réði oft skóla- stráka, sem voru mjög áhugasam- ir. Þetta er skorpuvinna sem hentaði þeim því þegar vélarnar koma verður að snúa þeim sem fyrst til baka svo það þarf snör handtök við að afgreiða þær. Þessum mönnum hefur vegnað vel í lífinu og flestir þakka það því að hafa fengið snemma að taka til hendinni og vera treyst til ábyrgðarstarfs eins og að vinna í kringum flugvélar.“ gun@frettabladid.is BRAGI I. ÓLAFSSON: UMDÆMISSTJÓRI FLUGFÉLAGSINS Í TÆP 40 ÁR Gæfa að vera við starfsemi sem ekkert óhapp hefur hent KOMINN Í GARÐVINNU Bragi kveðst alltaf geta fundið sér eitthvað að gera og sér fram á að fara oftar upp á fastalandið en áður. MYND/SIGURÐUR AGNAR AFMÆLI ÞÓRDÍS BJÖRNSDÓTT- IR skáld er 32 ára. DAVID DUCHOVNY leikari er fimmtugur. BRUCE DICK- INSON tón- listarmaður og flugstjóri er 52 ára. HARPA HARÐAR- DÓTTIR óperusöng- kona er fimmtug. erf idr yk kjur G R A N D Hlýlegt og gott viðmót á Grand hótel. Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum. Næg bílastæði og gott aðgengi. Grand Hótel Reykjavík Sigtún 38, 105 Rvk. Sími: 514 8000 www. grand.is erfidrykkjur@grand.is Verið velkomin Elskulegur eiginmaður, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, Grétar Sigurðsson, Hjaltabakka 14, Reykjavík, lést að morgni fimmtudags 5. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Sigríður Þóra Ingadóttir Rósa Dagný Grétarsdóttir Guðni Þór Arnórsson Laufey Grétarsdóttir Eyþór Harðarson Ingi Grétarsson Svandís Geirsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. 80 ára afmæli Sigríður Inga Þorkelsdóttir Eng javegi 21, Ísafi rði, verður 80 ára þann 8. ágúst. Maki Kristján J. Kristjánsson. Ætting jum og vinum verður boðið til kaffi samsætis að Hásölum við þjóðkirkjuna í Hafnarfi rði sunnu- daginn 8. ágúst kl. 14.00 - 18.00. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Valborg Sigurbergsdóttir, Hábæ 36, Reykjavík, sem lést mánudaginn 2. ágúst, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju 10. ágúst kl. 13.00. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Páll Bergmann Reynisson Guðrún Eiðsdóttir Grétar Reynisson Lilja Ruth Michelsen Sóley Reynisdóttir Sigurður Jóhannesson barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.