Fréttablaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 86
58 7. ágúst 2010 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. birta, 6. óhreinindi, 8. frosts- kemmd, 9. meiðsli, 11. guð, 12. hljóð í ketti, 14. óróleg, 16. utan, 17. rotn- un, 18. besti árangur, 20. sjúkdómur, 21. heimsálfa. LÓÐRÉTT 1. tala, 3. kúgun, 4. vörurými, 5. næra, 7. sósa, 10. rönd, 13. meðal, 15. krot, 16. tunna, 19. golf áhald. LAUSN LÁRÉTT: 2. rofa, 6. im, 8. kal, 9. mar, 11. ra, 12. mjálm, 14. ókyrr, 16. án, 17. fúi, 18. met, 20. ms, 21. asía. LÓÐRÉTT: 1. fimm, 3. ok, 4. farmrúm, 5. ala, 7. majónes, 10. rák, 13. lyf, 15. riss, 16. áma, 19. tí. Fyrirsætan Lilja Ingi- bjargardóttir dvelur nú í New York þar sem hún vinnur að ýmsum verkefnum ásamt því að slaka á í Stóra eplinu. Eins og flestir vita þá sefur New York aldrei og skemmtanalífið þykir best í miðri viku. Eins og aðrir heims- borgarar fór Lilja út að skemmta sér í vikunni ásamt vinum og var eng- inn annar en Jared Followill með í för. Followill þessi er bassaleikari hljómsveitarinnar Kings of Leon og er hann jafnframt yngsti Followill- bróðirinn. Hann gat reyndar ekki skemmt sér fram á rauðanótt þar sem hann þurfti að rjúka, enda tónleikar daginn eftir, en Kings of Leon er nú á síðustu metrunum á tónleikaferðalagi um Bandaríkin ... Lilja mætti einnig á opnun sportbars hafnaboltahetjunnar Darryl Strawberry sama kvöld. Þar mættu meðal annars Ali Fedotowsky og Roberto Martinez, úr síðustu Bachelorette-þáttaröð sem kom meðal annars við á Íslandi, eins og frægt er orðið. Justin Timberlake mætti einnig á svæðið, en Lilja hjálpaði lítilli stúlku að komast inn á VIP-svæðið til að tala við stjörnuna. Var litla stúlkan afar þakklát Lilju ... Og vallarþulur Þróttar í Reykjavík, skemmtikrafturinn og rithöfundur- inn Sólmundur Hólm getur enn þá stært sig af því að liðið er með 100% sigurhlutfall í leikjum sem hann situr við hljóðnem- ann. Þróttur sigraði Fjölni á fimmtudag og eins og endanær spilaði Sólmundur Time, nýtt lag Herberts Guðmundssonar eftir hvert mark og einnig eftir leik. - afb FRÉTTIR AF FÓLKI Útvarpsstöðin FM 957 hefur dreg- ið úr spilun á laginu Elskum þess- ar mellur með röppurunum Erpi og Emmsjé Gauta vegna fjölda kvart- ana að undanförnu. Eins og titillinn gefur til kynna er lagið opinskátt og hefur það helst farið fyrir brjóstið á fjölskyldufólki. „Þetta er alltaf sami hópurinn sem kvartar,“ segir Svali á FM. „Ég skil þetta fólk mjög vel. Þetta er fólk sem hlustar mikið á stöðina og er með börnin í bílnum sem heyra þetta og eru kannski að syngja með. Á hinn bóginn er fullt af öðru fólki sem á börn en er ekkert sérstaklega mikið að pæla í þessu,“ segir hann. Þrátt fyrir kvartanirnar hefur engin ákvörðun verið tekin um að taka lagið af dagskrá. „Við gerum okkur grein fyrir því að textinn er á grensunni. Við erum að reyna að spila þetta en samt ekki alveg í klessu,“ segir Svali. Spurður segir hann að tölu- vert hafi verið kvartað yfir síðasta lagi Erps, Viltu dick?. „Okkur fannst það alls ekki vera gróft. En það má segja að þetta lag sé næsta skref fyrir ofan.“ Erpur segir það ekki koma sér á óvart að kvartað hafi verið yfir sínu nýjasta lagi. Það sé samt ekkert grófara en það sem hann hefur áður samið. „Þetta erum mest við að fíflast. Það er ekk- ert að því,“ segir Erpur og bendir þeim, sem vilja ekki heyra lagið í bílnum, á að skipta yfir á Latabæj- arstöðina. „Það er alltaf hægt að skipta um stöð og Latabæjarstöð- in er gerð fyrir fólk sem á krakka.“ Hann bætir við: „Mín kynslóð hlustaði á texta sem voru grófari en þetta þegar við vorum tíu, ellefu eða tólf ára og það gerðist ekkert alvarlegt.“ Myndbandið við Elskum þess- ar mellur er væntanlegt frá Erpi og Emmsjé Gauta og hefjast upp- tökur í næstu viku. „Það verður mjög flott. Þetta verða grófkorna smekklegheit með fullt af góðu gríni.“ Í kvöld syngur hann síðan á Nasa á Gay Pride-dansleik Páls Óskars. Þar ætla þeir félagar að fylgja eftir góðu samstarfi á Akureyri um verslunarmannahelgina. „Ég verð örugglega eini „streitarinn“ á sviðinu. Við tökum eitthvað gott. Ég veit að hommarnir vilja heyra Viltu dick?.“ freyr@frettabladid.is ERPUR EYVINDARSON: LATABÆJARSTÖÐIN FYRIR FÓLK SEM Á KRAKKA Kvörtunum rignir yfir FM 957 vegna mellulags Erps UMDEILDUR ERPUR Erpur Eyvindarson tekur við tónlistarverðlaunum FM 957 fyrr á árinu sem besti sólótónlistar- maðurinn. Svali á FM 957 skilur vel kvartanirnar sem hafa borist vegna lags Erps og Emmsjé Gauta. „Þetta er mjög stór sýning og það er mikill heiður fyrir mig að fá að vera með,“ segir tenórinn Bjart- mar Sigurðsson. Hann kemur fram á Tattoo-lista- hátíðinni í Edinborg í ágúst. Hátíð- in er árlegur viðburður og ein sú stærsta sinnar tegundar í Evr- ópu. Áhorfendafjöldi er yfir tvö hundruð þúsund manns auk þess sem hundrað milljónir manna eru taldar horfa á hátíðina í sjón- varpi í um þrjátíu löndum. „Þetta er minn stærsti áhorfendahópur hingað til,“ segir Bjartmar, sem syngur einsöng fyrir um níu þús- und manns í hvert skipti á alls níu tónleikum. Abdullah II., konung- ur Jórdaníu, verður meðal áhorf- enda 18. ágúst. Bjartmar skiptist á að syngja á hátíðinni við danskan tenór en að öllum líkindum verður það Íslendingurinn sem hefur upp raust sína fyrir konunginn. Tvö lög verða á efnisskránni, eða Her- e´s to the Heroes úr kvikmyndinni Dansar við úlfa og skoski þjóðern- issöngurinn Auld Lang Syne. Bjartmar viðurkennir að þegar hann var beðinn um að syngja á hátíðinni hafi hann haldið að um húðflúrs-hátíð væri að ræða en annað kom á daginn. „Það er mjög gott fyrir mig að fá að taka þátt í þessu,“ segir hann og gerir sér grein fyrir að tækifærið er afar stórt. Bjartmar, sem verður 35 ára í september, lýkur tveggja ára meistaranámi sínu í óperusöng við Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow í október. Að því loknu ætlar hann að reyna að komast að í erlendum óperuhúsum, helst í Þýskalandi. - fb Konungur á meðal áheyrenda BJARTMAR SIGURÐSSON Tenórinn syngur að öllum líkindum fyrir konung Jórdaníu á Tattoo-listahátíðinni í Edin- borg í ágúst. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M „Hann er ekkert klámfenginn eða neitt svo- leiðis, segir Óskar Eiríksson leikhúsfram- leiðandi. Söngleikur byggður á ævi Lindu Love- lace, aðalleikkonu klámmyndarinnar umdeildu Deep Throat, var frumsýndur á stærstu leikhúshátíð í heimi, Edinborg Fringe Festival, í gær. Óskar er maðurinn á bak við söngleikinn ásamt samstarfsaðilum frá Los Angeles. Hann segir söngleikinn ekki vera gróf- an. „Þetta er meira um líf hennar. Maður á kannski ekki að fara með tólf eða fjórtán ára krakka á hann en kannski sextán ára og upp úr. Þetta er ekki gert til að hneyksla áhorfendur, ekki nema að því leyti hversu hræðilegt líf hennar var.“ Lovelace, sem lést árið 2002, hélt því fram að fyrsti eiginmaður hennar hefði þvingað hana til að leika í myndinni. Eftir að hafa leikið í henni barðist hún ötullega gegn klámi og hélt fyrirlestra víða. Söngleikurinn var fyrst sýndur í Los Angeles í janúar í fyrra og gekk í hálft ár við góðar undirtektir. Hann fékk sautján tilnefningar til hinna ýmsu verðlauna og hreppti sjö. „Það var ákveðið að Edinborg yrði næsta skref til að sjá hver viðbrögðin yrðu. Aðalástæðan var að kynna þetta fyrir Evrópu til að sjá hvort það væri áhugi fyrir þessu.“ Eingöngu bandarískir leikarar taka þátt í söngleiknum, sem verður sýndur í fjór- ar vikur, sjö sinnum í viku. Þess má geta að kvikmynd er í bígerð um ævi Lovelace og mun Lindsay Lohan leika aðalhlutverk- ið. „Ég held að sú sýning hafi sprottið út frá söngleiknum,“ segir Óskar. - fb Setur upp söngleik um klámleikkonu LINDA LOVELACE Lovelace lék í klámmyndinni umdeildu Deep Throat sem kom út árið 1972. Óskar segir sýninguna ekki klám. Valgerður Eva Þorvaldsdóttir Aldur: 26 ára. Starf: Dragg- kóngur. Fjölskylda: Guðrún Móbus Bern- harðs og þrjár kisur. Foreldrar: Sigríður Eysteinsdóttir og Þorvaldur Stefánsson. Búseta: 101 Reykjavík. Stjörnumerki: Fiskur. Valgerður gengur einnig undir nafninu Tvistgeir og er annar hluti draggdúettsins Freðinn & Tvistgeir sem voru valdir nú í vikunni draggkóngar Íslands 2010. VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8. 1 Vegna skemmda í stálvirki. 2 Catalinu Ncogo. 3 Hann mæti í draggi, klæddur sem kvenmaður. Lækjargata 2a 101 R. sími 511-5001 opið alla daga 9.00 - 22.00 Vikutilboð Símahulstur og peningabudda fylgja með. Tvöfaldur bakpoki Litir: Rauður, grár, grænn og bleikur. tilboð 8.990,- fullt verð12.990,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.