Fréttablaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 2
2 13. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
HEILSA Ný tækni í lýtalækningum
hefur gert það að verkum að aðgerð-
ir í handarkrikum vegna of mikill-
ar svitamyndunar hafa færst í vöxt.
Guðmundur Már Stefánsson, lýta-
læknir hjá Domus Medica, segir að
gerðar séu um fimm slíkar aðgerðir
í mánuði og kosti á bilinu 100 til 150
þúsund krónur.
„Nýja tæknin gerir það að verk-
um að það myndast ekki ör í handar-
krikanum eins og áður og í því
liggur þessi tískubylgja,“ segir Guð-
mundur.
Aðgerðin er framkvæmd með
skafsogi. Megnið af svitakirtlum
undir höndunum er eyðilagt sem
gerir það að verkum að svitamynd-
un minnkar til muna. Lítið gat er
gert á húðina og farið er með lítið
tæki þar inn undir sem eyðileggur
á milli 70 og 80 prósent kirtlanna.
Upphaflega var aðgerðin fram-
kvæmd á þann veg að stór hluti af
húðinni undir höndunum var skor-
inn burt. Jaðrarnir voru síðan los-
aðir upp, færðir til og saumaðir
saman.
„En því fylgir ör eftir holhönd-
inni endilangri og eru margar konur
ekki hrifnar af því,“ segir Ólafur
Einarsson, annar lýtalæknir hjá
Domus Medica. „En það er skárra
en að vera alltaf lyktandi.“
Ólafur segir marga hafa þurft
að líða fyrir of mikla svitamyndun
árum saman og það sé algjör óþarfi.
Vandamálið sé ekki síður hjá körl-
um en konum.
„Ég man sérstaklega eftir einum
lögreglumanni sem var búinn að
eyðileggja nokkra einkennisbún-
inga með svita og leið mikið fyrir.
Hann fór svo í þessa aðgerð og eyði-
lagði ekki fleiri lögreglubúninga
eftir það.“
Baldur Tumi Baldursson, húðsjúk-
dómalæknir á Landspítalanum, segir
aðgerðina tiltölulega hættulausa og
oft á tíðum virka mjög vel fyrir þá
sem þjást af of mikilli svitamyndun
undir höndum. Hann segir brottnám
svitakirtla ekki orsaka aukna svita-
myndun annars staðar á líkamanum.
Þó telur hann að Botox-sprautur séu
notaðar undir hendurnar í fleiri til-
fellum heldur en aðgerðirnar, en
slíkt minnkar einnig svitamyndun.
Þó þarf að endurtaka Botox-með-
ferðina með hálfs árs millibili.
Um tuttugu prósent þeirra sem
fara í svitakirtlaaðgerð með skaf-
sogi þurfa að koma aftur í aðgerð
og í einstaka tilvikum þarf að fram-
kvæma aðgerðina þrisvar.
sunna@frettabladid.is
Í tísku að fjarlægja
svitakirtla úr holhönd
Aðgerðum vegna of mikillar svitamyndunar snarfjölgar á Íslandi. Framkvæmd-
ar eru um fimm slíkar aðgerðir í mánuði hjá Domus Medica eftir tilkomu nýrr-
ar tækni. Neyðarlegt vandamál fyrir marga, segir lýtalæknir.
VANDAMÁL Margir glíma við of mikla svitamyndun og líða fyrir það árum saman, að
sögn lýtalæknis hjá Domus Medica. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
„Steindór, fáið þið storminn í
fangið?“
„Við gefumst ekki upp þótt á móti
blási.“
Fjárfestingar sjávarúvegsfyrirtækisins
Storms Seafood hafa verið í umræð-
unni vegna aðkomu erlendra fjárfesta
að félaginu. Steindór Sigurgeirsson er
eigandi Storms Seafood.
SPURNING DAGSINS
VERKALÝÐSMÁL Flest benti til þess að slitna myndi upp
úr viðræðum slökkviliðsmanna við sveitarfélögin
þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Verk-
fall myndi því hefjast klukkan átta í dag og standa
til miðnættis.
Frá slökkviliðinu í Reykjavík verða menn sendir
norður til Akureyrar strax í bítið til að sinna verk-
fallsvörslu. Þeir halda síðan til Húsavíkur síðar í
dag ásamt slökkviliðsmönnum frá Akureyri, þar sem
mæða mun á verkfallsvörslunni þegar flugið flyst
þangað eftir að verkfallið skellur á klukkan átta á
Akureyrarflugvelli.
Slökkviliðsmenn á Akureyri eru afar ósáttir við
fyrirætlanir Isavia, Akureyrarbæjar og slökkviliðs-
stjórans á Akureyri um að senda bíl slökkviliðsins í
annað sinn til Húsavíkur til að sinna þar öryggisstörf-
um á verkfallstímum.
Sigurður Hermannsson, umdæmisstjóri Isavia á
Norðurlandi og flugvallarstjóri Akureyrarvallar, ósk-
aði eftir heimild fyrir notkun á sömu slökkvibifreið á
Húsavíkurflugvelli og í síðustu viku.
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia,
fullyrðir að bifreiðin muni ekki verða færð til Húsa-
víkur og í stað hennar muni Isavia notast við slökkvi-
bifreið frá Bakkaflugvelli, en hún uppfylli allar til-
skildar öryggiskröfur.
Sigurður Hermannsson gat þó ekki staðfest að bif-
reiðin frá Akureyri myndi ekki fara til Húsavíkur, né
hvort sú frá Bakka væri komin á staðinn.
- sv/gb
Hópur slökkviliðsmanna frá Reykjavík og Akureyri sinnir verkfallsgæslu í dag:
Spenna í viðræðum í gærkvöldi
STJÓRNMÁL Minnihlutinn í borgarstjórn
Reykjavíkur lagði í gær fram bókun á fundi
borgarráðs þar sem seinagangur í vinnu við
fjárhagsáætlun borgarinnar er gagnrýndur.
Jón Gnarr, borgarstjóri, segir vinnuna hafa
verið eðlilega og bendir á að botninn detti
úr stjórnsýslu Reykjavíkur yfir hásumarið
vegna sumarfría.
„Ég held að þetta sé nú bara að vinnast allt
eðlilega. Það voru auðvitað kosningar og svo
skömmu eftir þær tóku við sumarfrí og það er
bara þannig að þá dettur botninn úr stjórn-
sýslu Reykjavíkurborgar eins og ég hef upp-
lifað,“ segir Jón Gnarr en bætir við að eftir
sinni bestu vitund sé vinnan við fjárhagsáætl-
unina á áætlun.
Í bókun minnihlutans
kemur fram að samkvæmt
tímaáætlun vegna vinnu við
fjárhagsáætlun borgarinnar
hafi fagráð borgarinnar átt
að nota tímann frá byrjun
júní til að ljúka vinnu við
stefnumótun og forgangs-
röðun vegna fjárhagsáætl-
unarinnar. Nú um miðjan
ágúst hafi hins vegar enn
ekki neinir fundir verið boðaðir vegna þeirr-
ar vinnu í nokkru fagráði borgarinnar. Að
auki er bent á að aðgerðahópur borgarráðs
vegna fjármála hafi heldur ekki fundað á
þessu tímabili og því liggi formlega ekkert
fyrir um þá vinnu sem framundan er vegna
fjárhagsáætlunar fyrir komandi ár.
Jón Gnarr segist ekki þekkja eða muna
hvaða tímaáætlanir hafi verið lagðar fram en
taldi víst að vinnan hefði farið eðlilega fram.
- mþl
Borgarstjóri segir vinnu við fjárhagsáætlun hafa verið eðlilega:
Gagnrýna seinagang í borgarráði
RÁÐHÚSIÐ Borgarstjóri segir botninn detta úr stjórn-
sýslu borgarinnar yfir hásumarið vegna sumarfría.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
JÓN GNARR
VIÐSKIPTI Framtakssjóður lífeyris-
sjóðanna hefur fengið skilyrta
undanþágu frá tilboðsreglum laga
um verðbréfaviðskipti vegna Ice-
landair Group. Lögin kveða á um
að gera verði öðrum eigendum
yfirtökutilboð nái einhver yfir-
ráðum yfir 30 prósenta eignarhlut
eða meiru í skráðu félagi.
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur
ákveðið að Framtakssjóðurinn
megi fara með allt að 32,5 pró-
sent hlutafjár í Icelandair vegna
þátttöku sjóðsins í fjárhagslegri
endurskipulagningu félagsins.
Aðkoma sjóðsins markar mikil-
vægt skref í endurskipulagning-
unni og uppfyllir sjóðurinn því
skilyrði laganna um undanþágu,
að mati FME. - óká
Framtakssjóður fær leyfi FME:
Mega eiga allt
að 32,5 prósent
STJÓRNMÁL Þingmenn Framsókn-
ar tóku í gær undir með þing-
mönnum Hreyfingar og kröfðust
nefndarfundar á þingi um vinnu-
brögð stjórnvalda vegna gengis-
tryggðra lána og ferils upplýs-
inga um þau í stjórnkerfinu.
Fyrir fundinn verði kallaðar
meðal annarra fyrrum ráðuneyt-
isstjóri og núverandi lögfræðing-
ur viðskiptaráðuneytis.
Á Vísi í gær sagði Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokks, að viðskiptaráðherra og
ríkisstjórnin öll ætti að víkja. - kóþ
Stjórnarandstaðan vill fund:
Krafist skýringa
á ferli málsins
LITHÁEN Íslenskur karlmaður
hefur verið handtekinn í Vilnius,
höfuðborg Litháen, vegna 1 kíló-
gramms af fíkniefnum, kókaíni
og hassi, sem fundust við húsleit.
Eftir því sem fram kom í kvöld-
fréttum RÚV fékk alþjóðadeild
Ríkislögreglustjóra tilkynningu
um málið frá yfirvöldum í Lit-
háen í morgun. Haft var eftir
Smára Sigurðssyni, yfirmanni
alþjóðadeildar, að maðurinn hafi
áður komið við sögu lögreglunn-
ar á Íslandi. - jhh
Íslendingur handtekinn:
Tekinn með
dóp í Litháen
LÖGREGLUMÁL Kærð hafa verið
til lögreglu auðgunarbrot þar
sem afritum segulranda á debet-
kortum og upplýsingum um PIN
númer þeirra hefur verið náð af
viðskiptavinum hraðbanka.
Meint brot uppgötvuðust þegar
tekið var út af debetkortum sex
Íslendinga í hraðbönkum í Frakk-
landi án leyfis í byrjun mánað-
arins. Áttu einstaklingarnir það
sameiginlegt að hafa fest debet-
kort sín í hraðbanka í Reykjavík
og fengið aðstoð frá erlendum
karlmanni við að losa það og
gefið upp PIN númer sín í leið-
inni.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu er um að ræða þekkta
blekkingaraðferð. - mþl
Auðgunarbrot til rannsóknar:
Debetkortaupp-
lýsingum stolið
VIÐSKIPTI Kreditkortavelta land-
ans erlendis sýnir að Íslendingar
eru byrjaðir að taka upp veskið á
nýjan leik í útlöndum enda hefur
kaupmáttur landans á erlendri
grund aukist undanfarið með
styrkingu krónunnar.
Í júlí nam kreditkortavelta land-
ans erlendis 3,6 milljörðum króna
og jókst um 37 prósent að raun-
gildi frá sama mánuðií fyrra.
Íslendingar í útlöndum:
Kortavelta jókst
um 37 prósent
KJÖRUNUM MÓTMÆLT Á meðal þess sem slökkviliðsmenn
krefjast er að laun þeirra endurspegli sérþekkingu þeirra og
sérþjálfun sem starf þeirra krefst. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bruni í timburhúsi
Eldur kom upp í íbúðarhúsi úr timbri
á Hellu í gærkvöldi. Skemmdir urðu
nokkrar en enginn var inni í húsinu.
HELLA