Fréttablaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 6
6 13. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
VIÐSKIPTI Kaupendur trygginga-
félagsins Sjóvár gætu þurft að
reiða fram rúma sex milljarða
króna fyrir hlut í félaginu eigi
núverandi eigendur að koma út á
sléttu. Að öðrum kosti gætu þeir
síðarnefndu tapað háum fjárhæð-
um, samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins.
Ríkið, skilanefnd Glitnis og
Íslandsbanki lögðu sextán millj-
arða inn í Sjóvá til að forða félag-
inu frá gjald-
þroti fyrir rúmu
ári. Ríkissjóður
lagði fram 11,6
milljarða.
Viðskipta-
blaðið greindi
frá því í gær að
viðræður væru
langt komn-
ar um kaup
hóps fjárfesta á
rúmum fjörutíu
prósenta hlut
í Sjóvá. Ekki
hefur náðst end-
anleg sátt um
verð.
Fjárfestarnir
Heiðar Már
Guðjónsson,
fyrrverandi
framkvæmda-
stjóri Novators, félags Björgólfs
Thors Björgólfssonar, og Ársæll
Valfells, lektor við Háskóla
Íslands, leiða hópinn ásamt syst-
kinunum Guðmundi og Berglindi
Jónsbörnum, kenndum við útgerð-
arfyrirtækið Sjólaskip. Fjórmenn-
ingarnir kaupa helming á móti
fagfjárfestum, svo sem lífeyris-
sjóðum. Hvorki náðist í Heiðar né
Ársæl í gær.
„Við vonum að niðurstaða af
eða á fáist á næstu vikum,“ segir
Haukur Benediktsson, forsvars-
maður Eignasafns Seðlabankans,
sem fer með 73 prósenta hlut rík-
isins í tryggingafélaginu. Skila-
nefnd Glitnis á átján prósenta hlut
og Íslandsbanki níu.
Margir munu hafa haft áhuga á
Sjóvá eftir að Íslandsbanki setti
félagið í söluferli í byrjun árs en
talið félagið of dýrt, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Þá
mun óvissa um virði eigna Sjóvár,
ekki síst skuldabréf félaga á borð
við Askar Capital, sem farið er í
þrot.
Ekki er vitað hvort viðræður
eigenda og væntanlegra fjárfesta
hafi skilað sér í lægra verði. Talið
er að einhver lending hafi náðst
þar sem viðræður séu komnar
þetta langt. Fari verðið undir sex
milljarða króna sé ljóst að núver-
andi eigendur þurfi að færa tap í
bækur sínar. jonab@frettabladid.is
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Sama á hverju gengur
– þú getur alltaf reitt þig á Siemens.
A
T
A
R
N
A
Þvottavél og þurrkari
frá Siemens.
Einstök gæði.
Góð þjónusta.
Láttu sjá þig og
gerðu góð kaup.
ÁRSÆLL VALFELLS
HEIÐAR MÁR
GUÐJÓNSSON
Ríkið gæti tapað á Sjóvá
Hópur fjárfesta vinnur að tilboði í Sjóvá. Hið opinbera setti tæpa tólf milljarða króna í reksturinn til að
bjarga félaginu frá gjaldþroti fyrir rúmu ári. Fjöldi fjárfesta hafði áhuga á rekstrinum en taldi verð of hátt.
SJÓVÁ Verðmiðinn á Sjóvá mun hafa verið of hár í upphafi. Lending er sögð í farvatninu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fjárfestingarfélagið Milestone keypti Sjóvá árið 2006.
Félagið var í eigu bræðranna Karls og Steingríms
Wernerssona. Skilanefnd Glitnis tók Milestone yfir eftir
fall bankanna haustið 2008. Um miðjan maí í fyrra var
tilkynnt að Sjóvá uppfyllti ekki skilyrði laga um gjald-
þol og að tíu milljarða króna vantaði til að eigið fé
teldist jákvætt. Eftir fjárhagslega endurskipulagningu
og uppstokkun á rekstrinum eignaðist ríkið, skilanefnd
Glitnis og Íslandsbanki félagið. Þá gerði embætti sérstaks
saksóknara húsleit í húsakynnum Milestone, Sjóvár og
á heimilum stjórnenda fyrirtækjanna í júlí í fyrra vegna
gruns um brot á lögum um hlutafélög, starfsemi trygg-
ingafélaga eða umboðssvik. Rannsókn á málinu stendur
enn yfir hjá embættinu.
Sjóvá var í raun gjaldþrota
FJÖLMIÐLAR Ný könnun Capacent á lestri dag-
blaða kom út í gær. Samkvæmt henni er meðal-
lestur Fréttablaðsins í maí til júlí 61,4 prósent
en meðallestur Morgunblaðsins 32,1 prósent
hjá öllum aldurshópum. Lestur Morgunblaðs-
ins hefur ekki áður mælst minni í könnunum
Capacent. Samkvæmt þessu hefur Fréttablaðið
91,3% meiri lestur en Morgunblaðið.
Lestur á báðum blöðum hefur dregist saman
frá síðustu könnun, sem náði til febrúar, mars
og apríl. Þá var lestur Fréttablaðsins 64,0 pró-
sent en lestur Morgunblaðsins 34,8 prósent.
Þetta er svipuð þróun og undanfarin ár en blaða-
lestur dregst yfirleitt saman á sumrin. Á sama
tímabili í fyrra lásu 61,1 prósent landsmanna
Fréttablaðið en 39,1 prósent Morgunblaðið.
Alls hafði 81,0 prósent lesið að minnsta kosti
eitt tölublað Fréttablaðsins í hverri viku en 54,2
prósent að minnsta kosti eitt tölublað Morgun-
blaðsins. Í síðustu könnun var uppsafnað-
ur lestur Fréttablaðsins 81,6 prósent en
Morgunblaðsins 57,7 prósent.
Munurinn á blöðunum er mestur í hópn-
um 18 til 49 ára á höfuðborgarsvæðinu þar
sem 74,9 prósent lesa Fréttablaðið daglega
en 24,9 prósent lesa Morgunblaðið. Það er
munur um 210 prósent. - mþl
Blaðalestur dregst saman yfir hásumarið samkvæmt könnun Capacent:
Nær helmingi fleiri lesa Fréttablaðið en Mogga
FRÉTTABLAÐIÐ OG MORGUNBLAÐIÐ Lestur beggja
blaða dregst saman frá síðustu könnun en það er sama
þróun og sést yfirleitt á sumrin.
LANDBÚNAÐUR Stjórn Landssam-
taka sauðfjárbænda (LS) ákvað á
fundi sínum á mánudag að nýta
heimild og gefa út nýtt viðmið-
unarverð á kindakjöti. Verðskrá-
in hækkar um fimm prósent frá
í fyrra, sem er sambærilegt við
hækkun vísitölu neysluverðs á
sama tíma.
Verðlagning á kindakjöti er
frjáls en LS hefur heimild til að
gefa út viðmiðunarverð til bænda.
Í tilkynningu frá stjórn samtak-
anna kemur fram að sala á kinda-
kjöti hafi verið með svipuðu móti
innanlands á fyrstu sex mánuðum
ársins og í fyrra. - jab
Fá meira fyrir kindakjötið:
Salan lítið
breytt milli ára
HEILBRIGÐISMÁL Viðbúnaðarstig
vegna svínainflúensu (H1N1)
hefur verið lækkað úr því að vera
hættustig og niður á óvissustig, að
því er fram kemur á vef Almanna-
varna.
Breytingin kemur í kjölfar yfir-
lýsingar Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar (WHO) frá því á
miðvikudag um að heimsfaraldur
inflúensu sé genginn yfir. Stofn-
unin hvetur þó til ýtrustu árvekni
því reynslan hafi sýnt að heims-
faraldrar gangi yfir í síðari bylgj-
um sem erfitt sé að spá fyrir um.
Fram kemur að helmingur
Íslendinga hafi þegar verið bólu-
settur, en hér sé líka til nægilegt
bóluefni gegn flensunni sem nota
megi þyki ástæða til. - óká
Viðbúnaður vegna flensu:
Af hættustigi
yfir í óvissuna
BÓLUSETNING Búist er við að svínainflú-
ensa gangi sem árlegur faraldur eftirleið-
is, en án viðlíka skaða og haustið 2009.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KJÖRKASSINN
Telur þú landbúnaðarráðherra
hafa hagsmuni almennings að
leiðarljósi í mjólkurmálinu?
Já 17,6%
Nei 82,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér að hið opinbera
eigi að niðurgreiða smokka á
Íslandi?
Segðu skoðun þína á Vísi.is