Fréttablaðið - 13.08.2010, Síða 31
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010
TERRY VERÐUR AÐ TAKA TIL HJÁ SÉR
Chelsea hefur titil að verja. „Það
hefur verið sagt að ef þú ætlir að
verða meistari þurfir þú tvo leik-
menn í hópinn sem eru jafn góðir
og bestu leikmennirnir þínir til að
viðhalda hungrinu og pressunni á
hinum leikmönnunum. Hættan er
sú þegar þú verður meistari að þú
verðir saddur og sæll. Það eru bara
sterkir leikmannahópar og sterk-
ir stjórnendur sem ná að verja titla
sína,“ segir Guðjón.
Stuðningsmenn Chelsea hafa
áhyggjur af fyrirliða sínum sem
hefur ekki verið svipur hjá sjón síð-
ustu mánuði. „John Terry verður að
taka til hjá sér og einbeita sér að fót-
boltanum. Hann verður að láta aðra
hluti eiga sig. Það er algjört lykil-
atriði fyrir Chelsea. Þegar
Mourinho var byggði hann
liðið upp á öflugum og ög-
uðum varnarleik og við
sáum Chelsea ekki tapa
eftir að hafa náð for-
ystu. Lyklarnir í þeim
pakka voru Petr Cech og
Terry.“
Arsenal náði að halda
Cesc Fabregas innan
sinna raða en Guðjón
telur liðið ekki nægilega sterkt
til baka. „Ég held að Arsenal
geti nýtt sér þá reynslu sem
ungu leikmennirnir lögðu inn
á reikninginn síðasta tímabil.
Ég hef þó verið þeirrar skoð-
unar að liðið þurfi að fá sér
mjög sterka miðverði og helst
markmann. Ef þeir hefðu náð
því væri Arsenal með lið sem
væri þyngra í baráttunni en í
fyrra. Ég held að þeir verði í þess-
ari baráttu en liðið er svolítið brot-
hætt.“
Guðjón telur að það verði erf-
itt fyrir Liverpool að komast inn í
pakkann. „Ég kannast nú aðeins við
Roy Hodgson og menn hafa talað
um að hann sé endurfæddur. Ég
hef nú aldrei litið á hann sem endur-
fæddan því hann er búinn að vera
að gera góða hluti í langan tíma. Það
sem hann klikkaði á þegar hann var
hjá Blackburn var að hann ætlaði að
fara að æfa eins og með Evrópulið.
Hann kallaði mannskapinn inn á
morgnana til æfinga, svo áttu menn
að borða og leggja sig áður en þeir
mættu aftur á æf-
ingu seinni partinn,“ segir Guðjón.
„Þetta kunnu Bretarnir ekki. Þeir
voru vanir tveggja til þriggja tíma
æfingu hjá þjálfaranum en ekki að
þetta væri brotið upp með því að
hafa tvær æfingar. Hodgson áttaði
sig svo á því að þetta eru hlutir sem
gengu bara ekki.“
ÓLÍK STEFNA NÝLIÐANNA
Nýliðarnir í deildinni koma inn með
ansi ólík markmið. „Blackpool er
ekki að fara inn í þessa deild með
það sem aðalmarkmið að vera þar.
Félagið á eftir að klára að byggja
völlinn sinn og laga fullt af hlutum.
Það mun nota það nýja fé sem það
fær fyrir að vera þarna til að skjóta
stoðum undir innri uppbyggingu.
Sjálfsagt hafa þeir engar áhyggjur
af því hvort þeir falli því þeir bara
telja það víst. Svona er hugsunin
og áherslurnar hjá þessum liðum
ólík,“ segir Guðjón.
„Þegar Barnsley komst upp í
úrvalsdeildina á sínum tíma
þá notuðu þeir peningana til
að laga völlinn og laga æf-
ingasvæðið. Svo féllu þeir
bara en nýttu sér pening-
ana til að setja styrkari stoð-
ir undir klúbbinn.“
Newcastle er hins vegar komið
til að vera. „Newcastle er eng-
inn smá klúbbur og er með um og
yfir 50 þúsund manns á leikjum hjá
sér, það er sérstök upplifun að fara
á leiki hjá þeim á St James´Park.
Newcastle verður alltaf stór klúbb-
ur en það er bara spurningin hvern-
ig þeim tekst til. Þeir eiga skilyrð-
islaust að vera meðal stóru liðanna.
Ég er að vonast til að Newcastle nái
að festa sig í sessi. Þetta eru ástríðu-
fullir stuðningsmenn sem eru trúir
sínum klúbbi,“ segir Guðjón.
elvargeir@frettabladid.is
tiplandi ballerínur
a með reynslu úr sjálfri hringiðunni. Hann spáir spennandi baráttu um enska meistaratitilinn.
Guðjón Þórðar-
son hefur trú
á nýja stjóra
Liverpool.
Síminn, sem er einn styrktaraðila
enska boltans á Stöð 2 Sport 2, býður
upp á nýja þjónustu fyrir áhuga-
menn um enska boltann. Nú geta
áskrifendur fengið mörkin send
beint í símann og berast þau innan
við tveimur mínútum eftir að bolt-
inn hafnar í markinu í Englandi.
Sævar Freyr Þráinsson, for-
stjóri Símans, segir að boðið verði
upp á fjórar mismunandi leiðir við
að fá umfjöllun um leikina í enska
boltanum senda í símann: „Í fyrsta
lagi verður hægt að fá mörk uppá-
haldsliðanna í símann og berast
þau innan við tveimur mínútum
eftir að þau hafa verið skoruð. Í
öðru lagi verður hægt að fá upp-
hitunarþátt sendan fyrir hvern
leik, sem fer yfir uppstillingu lið-
anna, tölfræði og árangur á tíma-
bilinu. Í þriðja lagi er hægt að fá
samantekt á helstu atriðum úr
leik rétt eftir að honum lýkur og
í fjórða lagi er hægt að fá saman-
tekt með mörkum og helstu atvik-
um í lok leikdags á aðalleikdegi
hverrar umferðar.“ Langflestir 3G-
símar munu geta tekið við mörkun-
um og gjaldið verður hóflegt. Ann-
aðhvort verður þjónustan innifalin
í áskriftarleiðinni „Netið í símann“
eða notandinn greiðir fyrir hvert
mark eða samantekt sem er send
í símann. Sævar sagðist aðspurð-
ur telja að knattspyrnuáhugamenn
myndu fagna aukinni þjónustu og
sagðist sjá fram á skemmtilegan
og spennandi fótboltavetur. „Mitt
lið, Arsenal, á eftir að vinna deild-
ina að þessu sinni og verður það
fyrst og fremst fyrir tilstilli Ars-
havins, sem mun blómstra í vetur.
Chamakh, sem kom frá Bordeaux
í sumar, mun gera góða hluti og
sömuleiðis Fabregas, þó hann verði
ekki sami yfirburðamaður í liðinu
og hann var síðasta vetur,“ sagði
Sævar Freyr að lokum.
Ensku mörkin beint í símann
Sævar Freyr Þráinsson MYND/XXXXX
512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
VERÐFRÁ AÐEINS 140 KR.Á DAG
*VILDARÁSKRIFENDUR FÁ ALLT AÐ 30% AFSLÁTT AF
TRYG
GÐU
ÞÉR
ÁSKR
IFT Í
SÍMA
512 51
00
EÐA Á S
TOD2.I
S
Enska deildin byrjar með látum um helgina og
svo mætast Arsenal og Liverpool á sunnudag.
Fylgstu með frá byrjun!
VEISLAN HEFST
Á MORGUN