Fréttablaðið - 17.08.2010, Side 2
2 17. ágúst 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Mikið úrval af frábærum tilboðum - líttu við
FJÖLMIÐLAR „Okkur er sagt að þetta hafi verið vin-
sælasti þátturinn á Rás 1 undanfarin ár,“ segir
Karl Th. Birgisson, umsjónarmaður þáttarins Orð
skulu standa á Rás 1 hjá Ríkisútvarpinu. Ákveðið
hefur verið að taka þáttinn af dagskrá í vetur.
„Við vitum að við eigum stóran hlustendahóp og
mjög dyggan,“ segir Karl sem segist undrandi á
ákvörðuninni. Ásamt honum sjá Hlín Agnarsdóttir
og Davíð Þór Jónsson um Orð skulu standa. Karl
segir að þáttur þeirra sé sá eini „sem er helgaður
íslensku máli í gervallri stofnuninni“.
Því andmælir Sigrún Stefánsdóttir dagskrárstjóri.
Morgunútvarpið fjalli mikið um íslenskt mál og í
bígerð séu málfarsþættir í samvinnu við háskóla-
samfélagið. Loks sé umfjöllun RÚV um íslenskt
mál gerð góð skil í þáttaröð sem gerð er í tilefni
áttatíu ára afmælis Ríkisútvarpsins sem sendir
verða út á útsendingartíma Orð skulu standa í
vetur. Sigrún segir að spara þurfi 9% í rekstrinum
í vetur til viðbótar við 20-30% sparnað undanfar-
in ár. Þátturinn hafi verið vinsæll og eftirsjá sé að
honum. „En svona er lífið,“ segir Sigrún Stefáns-
dóttir. -pg
Vinsælasti þáttur Rásar 1 víkur fyrir þáttaröð í tilefni 80 ára afmælis:
Þátturinn Orð skulu standa tek-
in af dagskrá í sparnaðarskyni
STJÓRNMÁL Væntingavísitalan, sem
Capacent Gallup mælir reglu-
lega, virðist samkvæmt saman-
burði sem sjá má á vef Datamark-
et haldast þétt í hendur við fylgi
Sjálfstæðisflokksins, að minnsta
kosti síðustu árin. Stjórnmála-
fræðingur segir erfitt að svara
því hvort um tilviljun sé að ræða
eða raunverulega fylgni.
Væntingavísitalan lækkaði í
kjölfar hryðjuverkaárásanna á
Tvíburaturnana í New York 11.
september 2001. Á sama tíma
jókst fylgi Sjálfstæðisflokks. Það
lækkaði hins vegar um það leyti
sem íslensk stjórnvöld ákváðu að
styðja innrásina í Írak.
Fylgi flokksins og vísitala
væntinga hafa fylgst þétt að frá
því í byrjun árs 2008. Báðar kúrf-
ur náðu botninum á sama tíma.
Undanfarin misseri hafa vænt-
ingar almennings til efnahags-
lífsins batnað og um leið eykst
fylgi Sjálfstæðismanna.
Grétar Þór Eyþórsson stjórn-
málafræðingur segist ekki vita
hvort fylgnin hafi í raun og veru
einhverja sögu að segja, en sú
staðreynd að væntingavísitalan
byrji að tengjast fylgi Sjálfstæð-
isflokksins um og upp úr áramót-
um 2007 og 2008 segi að Íslend-
ingar tengi væntingar sínar að
einhverju leyti við flokkinn að
minnsta kosti ári fyrir hrun.
„Vísitalan byrjar að fylgja
gengi Sjálfstæðisflokksins á
meðan hann situr í ríkisstjórn í
aðdraganda hrunsins,“ segir Grét-
ar. „Þetta hefur ekkert endilega
neitt með það að gera að hann sé
í andstöðunni eins og í dag.“
Grétar telur mögulegt að kjós-
endum landsins sé tamt að tengja
Sjálfstæðisflokkinn við von um
betri tíð með blóm í haga og það
sé ein skýringin. Hins vegar þurfi
að spyrja þeirra spurninga hvers
vegna væntingavísitalan hafi ekki
haldist í hendur við fylgið fyrir
lok 2007 og hvers vegna tenging-
in sé svona gríðarlega sterk eftir
hrun. „Kannski er þetta flokkur
vonarinnar, það er spurning.“
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðiflokksins, sagðist ekki
hafa neina skoðun á fylgni vænt-
ingavísitölunnar við fylgi flokks-
ins og kvað málið ópólitískt.
sunna@frettabladid.is
Sjálfstæðisflokkur
fylgir væntingum
Væntingavísitalan á landinu og fylgi Sjálfstæðisflokksins virðast haldast þétt
í hendur á síðustu árum. Er Sjálfstæðisflokkurinn flokkur vonarinnar? spyr
stjórnmálafræðingur. Formaður flokksins vill lítið tjá sig um málið.
50
40
30
20
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
200
150
100
50
0
Væntingavísitala (stig)
Fylgi Sjálfstæðisflokks (í prósentum)
pr
ós
en
tu
r
st
ig
Heimild: Capacent
Fylgið fellur með vísitölunni
BRETLAND, AP Tony Blair, fyrrver-
andi forsætisráðherra Bretlands,
ætlar að ánafna særðum bresk-
um hermönnum allan ágóða af
væntanlegri ævisögu sinni. Blair
skapaði sér miklar óvinsældir
í Bretlandi fyrir stríðsrekstur-
inn í Írak og Afganistan. Hundr-
uð breskra hermanna hafa fallið í
þessum styrjöldum, auk þess sem
þúsundir eru slasaðir.
Ágóðinn af sölu bókarinnar,
sem væntanlega mun nema millj-
ónum punda, rennur til nýrrar
endurhæfingarmiðstöðvar fyrir
alvarlega særða hermenn. - gb
Blair gerir yfirbót:
Gefur særðum
hermönnum fé
TONY BLAIR Ánafnar nýrri endurhæfing-
armiðstöð allan ágóða af ævisögu sinni.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓLK Appelsínugulur, þýskur
Porsche traktor, árgerð 1956, er
nýjasti sýningargripur Búvéla-
safnsins á Grund í Reykhóla-
hreppi. Þetta kemur fram á
vefsíðu hreppsins.
Á Grund halda bræðurnir Unn-
steinn Hjálmar og Guðmundur
Ólafssynir búvélasafn. Þeir hafa
sankað að sér fjölmörgum göml-
um vélum og traktorum og gert
upp til sýningar.
Sagt er að appelsínuguli litur-
inn á traktornum hafið verið val-
inn til þess að traktorarnir yrðu
sem mest áberandi svo hrað-
skreiðari farartæki ættu auðveld-
ara með að vara sig á þeim. - mþl
Dráttarvélasafnið á Grund:
Porsche traktor
bætist í safnið
PORSCHE TRAKTORINN Unnsteinn
Hjálmar Ólafsson, bóndi á Grund, ásamt
Tindi Guðmundssyni, bróðursyni sínum,
á nýja traktornum.
MYND/HLYNUR ÞÓR MAGNÚSSON
ELDSVOÐI
Bruni í Laugardalnum
Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgar-
svæðinu var kallað til þegar eldur
kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi við
Austurbrú upp úr hádegi í gær. Hafði
kviknað í tuskum á eldavél og greið-
lega gekk að slökkva eldinn.
Sextán milljóna flygill
Bösendorfer flygillinn, sem KEA
keypti á sextán milljónir króna, var
fluttur inn í menningarhúsið Hof á
Akureyri í gær. Vikudagur.is greindi
frá þessu. Flygillinn verður annar af
tveimur flyglum í húsinu, hinn verður
Ingimarsflygillinn svokallaði, sem var
keyptur á sínum tíma fyrir söfnunarfé
í minningu Ingimars Eydal.
AKUREYRI
Engir dagforeldrar
Ekkert dagforeldri er nú starfandi í
Bolungarvík, en tvær dagmæður voru
starfandi síðastliðinn vetur. Bolungar-
víkurkaupstaður hefur vakið sérstaka
athygli á þessu og hvatt áhugasama
bæjarbúa til að sækja um leyfi til
dagvistunar.
VESTFIRÐIR
„Kolbrún, fyllist þið ekkert
sektarkennd yfir þessu?“
„Nei, það er víst okkar að leggja
þetta á fólk.“
Kolbrún Jónatansdóttir er framkvæmda-
stjóri Bílastæðasjóðs. Á Menningarnótt
um næstu helgi verða þeir sem leggja
ólöglega í miðborg Reykjavíkur sektaðir
en undanfarin ár hefur Bílastæðasjóður
horft í gegnum fingur sér með það á
þessum degi.
KARL TH. BIRGISSON SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR
Væntingavísitalan
Væntingavísitala Gallup er byggð á
fimm spurningum:
1. Mati á núverandi efnahagsað-
stæðum.
2. Væntingum til efnahagslífsins
eftir 6 mánuði.
3. Mati á núverandi ástandi í
atvinnumálum.
4. Væntingum til ástands í atvinnu-
málum eftir 6 mánuði.
5. Væntingum til heildartekna heim-
ilisins eftir 6 mánuði.
STJÓRNMÁL Gylfi Magnússon mun sitja áfram
sem efnahags- og viðskiptaráðherra, sagði
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
eftir þingflokksfund Samfylkingarinnar í
gær. Þar var rætt um stöðu Gylfa, en ekki
var rætt sérstaklega hvort hann ætti að
segja af sér í kjölfar umræðu um álit sem
Seðlabankinn lét vinna um gengistryggð lán.
„Það er ekkert sem gefur mér tilefni til
að víkja honum [Gylfa] úr sæti viðskiptaráð-
herra út af þessu máli,“ sagði Jóhanna við
fjölmiðlafólk að fundi loknum. Hún sagði
Gylfa hafa skýrt mál sitt og hún telji svör
hans fullnægjandi. Hún sagði að á fundinum
hefði ekki komið annað fram en að Gylfi nyti
fulls trausts þingflokksins.
„Ég hef að vísu verið óánægð með að hafa
ekki fengið þessi álit send frá Seðlabankan-
um og efnahags- og viðskiptaráðuneytinu,“
sagði Jóhanna. Spurð hvaða skýringar hún
hafi fengið á því sagði hún að Seðlabankinn
teldi, miðað við framvindu málsins, að eðli-
legt hefði verið að forsætisráðherra og fjár-
málaráðherra hefðu fengið lögfræðiálitið.
Hún sagði að bankinn teldi þó að það hefði
litlu breytt.
„Gylfi var spurður margra spurninga,
hann svaraði þeim vel og gaf greinargott
yfirlit yfir málið. Þingmenn voru sáttir
við greinargóð og góð svör,“ sagði Þórunn
Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður
Samfylkingarinnar, eftir fundinn í gær. - bj
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra fundaði með þingflokki Samfylkingarinnar um umdeilt lögfræðiálit:
Ekki tilefni til að víkja Gylfa segir Jóhanna
FUNDAÐ Ekki var rætt um mögulega afsögn Gylfa
Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, á fundi
með þingflokki Samfylkingarinnar í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNING DAGSINS