Fréttablaðið - 17.08.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.08.2010, Blaðsíða 6
6 17. ágúst 2010 ÞRIÐJUDAGUR Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift *Árleg nafnávöxtun frá 15.01.2001 til 31.07.2010. Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti. @Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 460 4700 eða kynntu þér málið á www.iv.is ALÞINGI Þrír þingmenn úr stjórn og stjórnarandstöðu vilja að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra komi á fund iðnaðarnefndar til að ræða áform um stækkun friðlands í Þjórsárverum. Morgunblaðið greindi frá því í gær að ráðherrarnir tveir beiti sér fyrir stækkun friðlandsins í Þjórsár- verum í samstarfi við fjármálaráð- herra. Gangi breytingin eftir verði ekki hægt að ráðast í Norðlingaöldu- veitu. „Norðlingaölduveita þarfnast þess að einungis um 2-3 ferkílómetr- ar ógróins lands hverfi undir vatn og verður það lón langt utan friðlands- ins um Þjósárver,“ segir í bréfi sem Jón Gunnarsson og Tryggvi Þór Herbertsson, Sjálfstæðisflokki, sendu frá sér í gær með ósk um fund í iðnaðarnefnd. Nauðsynlegt sé vegna efnahagshorfa í landinu að útvega rafmagn til atvinnuuppbygg- ingar. Norðlingakosturinn sé „einn besti kosturinn sem er í boði út frá umhverfissjónarmiðum“. Í tilkynningu lýsir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Sam- fylkingarinnar, því yfir að hann styðji ósk Jóns og Tryggva um fund í iðnaðarnefnd vegna málsins. -pg Stjórnarþingmaður tekur undir með tveimur þingmönnum Sjálfstæðisflokksins: Vilja ráðherra á fund vegna Norðlingaölduveitu Á Gylfi Magnússon að segja af sér sem efnahags- og viðskipta- ráðherra? JÁ 57,5% NEI 42,5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Vilt þú að lögregla fái heimildir til að rannsaka einstaklinga án þess að grunur sé um ákveðið brot? Segðu þína skoðun á visir.is ALÞINGI Þrír þingmenn vilja fund í iðnaðarnefnd vegna áforma um að stækka friðlandið í Þjórsárverum. Þeir segja Norðlingaölduveitu nauðsynlega fyrir atvinnuuppbyggingu. KIRGISISTAN, AP Alþjóðlegu mann- réttindasamtökin Human Rights Watch saka úkraínska hermenn um að hafa stutt og jafnvel tekið virkan þátt í ofbeldisaðgerðum Kirgisa gegn minnihluta Úsbeka í Kirgisistan í júní. Átökin kostuðu að minnsta kosti 370 manns lífið. Frásögnum Úsbeka og Kirgisa ber þó engan veginn saman. Svo virðist sem Úsbekar hafi gerst sekir um margvíslegt ofbeldi fyrstu nóttina, en eftir það hafi Kirgisar fjölmennt til átakanna og hagað sér helmingi verr. - gb Mannréttindasamtök ásaka: Hermenn tóku þátt í ofbeldinu HERMENN Í KIRGISISTAN Átökin í júní kostuðu 370 manns lífið. NORDICPHOTOS/AFP MENNTUN Börn sem eru dugleg að læra á leikskólum eru að jafnaði með hærri laun við 27 ára aldur en börn sem ekki sýna sömu framþróun á leikskólanum. Þetta kemur fram í niðurstöðum rann- sóknar vísindamanna við Har- vard-háskóla í Bandaríkjunum. Þeir skoðuðu niðurstöður úr prófum sem lögð voru fyrir leik- skólabörn og komust að því að börn sem bættu árangur sinn fengu umtalsvert hærri laun við 27 ára aldur en jafnaldrar þeirra sem ekki bættu árangur sinn. Ástæðuna má meðal annars rekja til þess að þau börn eru líklegri til að mennta sig meira en önnur. - bj Árangur á leikskóla hefur áhrif: Dugleg börn fá hærri laun Á LEIKSKÓLA Börn sem eru í smærri deildum á leikskólanum eru líklegri til að mennta sig en börn sem eru í stærri hópum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi handtók nýverið par í fjölbýlis- húsi í bænum, grunað um dreif- ingu fíkniefna. Maðurinn var í óðaönn að tína innpakkaðar sölu- einingar af maríjúana, samtals sextíu grömm, í klósettið þegar lögregla fór inn í íbúðina. Þá tók lögreglan á Selfossi tvær kannabisræktanir, aðra í Flóa- hreppi en hina í Hveragerði í lið- inni viku. Á síðarnefnda staðnum fundust áhöld til neyslu fíkniefna og merki um neyslu á hvítum efnum. - jss Tóku fíkniefnasala: Setti maríjúana í klósettiðLÖGREGLUMÁL Þriggja bíla árekst-ur varð á Vesturlandsvegi við Lyngholt í Hvalfjarðarsveit á sunnudagseftirmiðdag. Árekst- urinn var eitt fjögurra umferðar- óhappa sem voru tilkynnt til lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum á sjötíu mínútna tímabili á sunnudag. Ökumaður eins bílsins ætlaði að beygja af veginum og hægði því á sér. Annar bíll ók aftan á hann og sá þriðji þar á eftir. Slys á fólki voru minni háttar en bíl- arnir skemmdust töluvert mikið. Umferð á veginum tafðist tals- vert í kjölfar slyssins. - þeb Nóg um að vera hjá lögreglu: Fjórir árekstrar á 70 mínútum NEYTENDUR Helmingur fólks á aldr- inum 18 til 29 ára verður var við meira heimabrugg og smygl á áfengi nú heldur en áður. Meira en helmingur fólks kaupir annaðhvort minna áfengi eða ódýrari tegund- ir. Slíkt þýðir oft á tíðum kaup á vörum sem eru með lægra áfeng- isinnihald og þar af leiðandi minni innheimta áfengisgjalda hjá ríkinu. Kemur þetta fram í nýrri könn- un sem gerð var á vegum Félags atvinnurekenda í júlí þessa árs. Almar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda, segir að óeðlilegt megi teljast að ný skattastefna ríkisstjórnar- innar leiði af sér stækkandi svartan mark- að með áfengi. Slíkt hljóti að teljast áhyggju- efni í ljósi for- varnar- og heil- brigðisstefnu ríkisins. „Við vöruðum við frekari hækk- unum á sköttum og áfengisgjöld- um,“ segir Almar. „Við teljum ljóst að frekari hækkanir ríkisstjórn- arinnar leiði til aukins brasks með vín og annað áfengi á svörtum markaði.“ Hann segir niðurstöð- urnar því ekki koma sér á óvart. Samkvæmt sölutölum ÁTVR hefur sala á áfengi dregist mikið saman á síðustu misserum. Almar segir tenginguna við ólöglegt brugg og smygl á vodka greinilega í ljósi talnanna. „Lítrasala á ókrydduðu brennivíni og vodka dróst saman um 24 prósent milli ára á meðan bjór dróst saman um sjö prósent, rauðvín um sex prósent og hvítvín um þrjú. Hvað segir það okkur?“ Almar telur víst að tekjur ríkis- ins af áfengissölu í ÁTVR hafi ekki skilað sér eins og áætlað var og þó að salan sé að minnka þetta mikið sé ólíklegt að neyslan sé að minnka samhliða því. „Vissulega er ríkið að fá ein- hverja tekjuaukningu,“ segir Almar. „En miðað við þetta gríð- arlega umfang hækkana í verði eru þær ekki miklar.“ Áfengis- og tóbaksgjöld hafa skilað 8,3 prósentum meiru til ríkissjóðs á fyrstu fimm mánuð- um ársins á sama tíma og áfengis- gjöld hafa tvisvar sinnum hækkað um tíu prósent. Samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar kveðast 37 prósent af fólki á aldrinum 30 til 67 ára kaupa minna áfengi nú en áður og 28 pró- sent af fólki á aldrinum 18 til 29 ára. Einungis 1,9 prósent segjast kaupa áfengi í meira mæli nú en fyrir ári. sunna@frettabladid.is Brugg og smygl eykst með hærri sköttum Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir skattastefnu ríkisstjórnar- innar leiða af sér stækkandi svartan markað með áfengi. Slíkt hljóti að teljast áhyggjuefni. Fólk verður meira vart við brugg og smygl, samkvæmt rannsókn. ÁTVR VIÐ AUSTURSTRÆTI Rúmur helmingur fólks segist eyða minna í kaup á áfengi nú heldur en áður. Á meðan verður fólk meira vart við heimabrugg og ólöglegt smygl. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ALMAR GUÐMUNDSSON KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.