Fréttablaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 4
4 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
Umhverfis landið
DALABYGGÐ Hráefni úr héraði verður ráðandi á
miklu veislukvöldi á Hótel Eddu að Laugum í Sæl-
ingsdal annað kvöld. „Þar munu leiða saman hesta
sína matgæðingurinn Friðrik V., kokkur hótelsins
Snorri V., og hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir. Viðburð-
inn kjósum við að kalla Dala-bríarí, en allt var þetta
ákveðið í mesta bríaríi,“ segir í tilkynningu. Skemmt-
unin hefst klukkan hálfníu og verður hægt að kaupa
gómsæta rétti á meðan á tónleikum Hálfvitanna
stendur. Á matseðlinum er meðal annars hvannarlamb, hvannarreykt
og hvannargrafið með ostakremi, balsamico og ristuðu brauði og
Erpsstaðaskyr og rjómi.
Hálfvitar, hvannarreykt og grafið
DJÚPIVOGUR 85 kílómetra hjólatúr frá Djúpavogi til Egilsstaða um Öxi tók þau
Andrés Skúlason, oddvita Djúpavogshrepps, Bryndísi Reynisdóttur varaoddvita
og Þorbjörgu Sandholt, formann brottfluttra Djúpavogsbúa, fimm klukkutíma.
Þremenningarnir fóru ferðina síðastliðinn laugardag til þess að vekja athygli á
mikilvægi þess að fjallvegurinn um Öxi verði gerður að heilsársvegi. „Þetta var nú
auðveldara en ég hélt,“ segir Bryndís og bætir við að þau hafi teymt hjólin um
mesta brattann. Bryndís segir mjög mikilvægt fyrir íbúa Djúpavogs að vegurinn
verði heilsársvegur, hann sé 60 kílómetrum styttri en þjóðvegurinn um Breiðdal.
„Við sækjum svo mikla þjónustu til Egilsstaða, þar er flugvöllur og þar eru oft
haldnir fundir enda Egilsstaðir miðsvæðis á Austurlandi. Eins og staðan er núna þá
lokast vegurinn þegar fyrsti snjórinn fellur, enda ryður Vegagerðin ekki veginn.“
Vilja heilsársveg um Öxi
AKUREYRI Fimm voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í Hörgárdal í
fyrrakvöld. Ökumennirnir voru allir erlendir. Lögreglan á Akureyri segir
fátítt að svo margir séu stöðvaðir fyrir hraðakstur sama kvöldið og þá
ekki síður að útlendingar gerist sekir um brotið. Ökumennirnir voru
á bilinu 114 til 122 kílómetra hraða en leyfilegur hámarkshraði er 90
kílómetrar á klukkustund.
Hraðakstur í Hörgárdal
TRÖLLASKAGI Menntaskólinn á Tröllaskaga
verður settur í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn í
dag. „Þetta lítur mjög vel út, við erum með fleiri
nemendur en við bjuggumst við, alls sjötíu,“ segir
Lára Stefánsdóttir skólameistari. Hún segir flesta
vera á framhaldsskólaaldri, marga hafa byrjað
nám annars staðar en snúi nú heim og ætli að
hefja nám í heimabyggð. „Hluti er svo fólk sem
aldrei komst í nám.“ Menntaskólinn er á Ólafs-
firði og verður í húsi sem eitt sinn hýsti gagn-
fræðaskólann. „Hér hafa iðnaðarmenn unnið dag
og nótt við að gera þær endurbætur sem þurfti,“
segir Lára. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá
á mánudag.
70 nemendur í nýjum framhaldsskóla
SKAGAFJÖRÐUR Kálfa- og hrútasýning,
smalahundasýning og keppni í dráttarvélaakstri
er á meðal þess fjölmarga sem boðið verður
upp á á landbúnaðarsýningunni og bændahá-
tíðinni Sveitasælu í Skagafirði í dag. Sýningin
er haldin innan- og utandyra við Reiðhöllina
Svaðastaði. Jón Bjarnason, landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra, flytur ávarp við setningar-
athöfnina klukkan tólf en sýningin sjálf stendur
frá tíu til sex. Þá tekur við grillveisla en bændur
bjóða upp á grillað lambakjöt úr Skagafirði
og á meðan á henni stendur hefst kvöldvaka
með skemmtiatriðum á borð við bændafitness
og kappreiðar. Svo verður Papaball á Sauðár-
króki fyrir þá sem ekki vilja láta gott heita að
kvöldvöku lokinni. Á sunnudag verða opin bú í
Skagafirði frá eitt til fjögur. Nánari upplýsingar er
að finna á síðunni www.svadastadir.is.
Sveitasæla í Skagafirði
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
30°
29°
21°
30°
30°
23°
23°
24°
24°
XX°
27°
33°
22°
30°
15°
23°Á MORGUN
10-15 m/s á annesjum
annars hægari vindur.
MÁNUDAGUR
Strekkingur A-lands
annars hægari.
12
9
6
8
7
9
8
12
12
13
6
9
10
8
9
7
9
8
12
5
7
8
8
6
7
9
10 13
8 7
8
12
KÓLNANDI Í dag
verður heldur
þungbúið og víða
skúrir eða súld
norðan og austan
til. Vel viðrar til
menningarnætur,
bjart með köfl um
en heldur svalt er
kvöldar. Á morgun
og hinn verður
áfram vætusamt
N- og A-til en léttir
heldur til seinnipart
mánudags.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
ÁSBYRGI Fýlum hefur fækkað mikið í
Ásbyrgi, en Náttúrustofa Norðausturlands
hefur talið fýla á staðnum undanfarin
sumur. Fylgst hefur verið með fýlnum frá
sumrinu 1993. Minna er af honum í ár en
nokkru sinni fyrr. Í fyrra fjölgaði honum
aðeins en fækkar nú aftur mikið. Fækkunin
er rakin til ætisskorts í sjónum.
Fýlum fækkar í Ásbyrgi
Tölur víxluðust í töflu sem birt var
með frétt um verðkönnun ASÍ á skóla-
bókum í blaði gærdagsins. Verð á
nýjum bókum sem merkt voru Griffli
voru í raun verðin í Office 1 og öfugt.
LEIÐRÉTTING
ÍSRAEL, AP Ísraelsk og palestínsk
stjórnvöld hafa fallist á að hefja
friðarviðræður á ný í byrjun sept-
ember. Hillary Clinton, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá
þessu í gær.
Kvartettinn svonefndi, sem er
samstarfsvettvangur Evrópusam-
bandsins, Sameinuðu þjóðanna,
Rússlands og Bandaríkjanna í mál-
efnum Mið-Austurlanda, segir í
yfirlýsingu í gær að stefnt sé að því
að ljúka viðræðum á einu ári.
Leiðtogar Ísraels, Palestínu,
Egyptalands og Jórdaníu ætla að
hitta Barack Obama Bandaríkja-
forseta í Washington 1. september
og viðræður hefjast daginn eftir.
Óbeinar viðræður Ísraela og Pal-
estínumanna hafa staðið yfir und-
anfarnar vikur með milligöngu
Bandaríkjamanna. Himinn og haf
er enn á milli þeirra, en samt er
stefnt að því að ljúka viðræðunum
með samkomulagi sem fæli í sér að
Palestínumenn fengju sjálfstætt
ríki en Ísraelar gætu búið við frið.
George Mitchell, erindreki
Bandaríkjanna, segir að Bandarík-
in muni leggja fram tillögur sem
vonast er til að hjálpi til við að brúa
bilið. - gb
Viðræður Ísraela og Palestínumanna hefjast á ný í byrjun september:
Gefa sér eitt ár til að semja
FLUGVÖLLURINN Á GASA Meðal þess
sem Palestínumenn vonast til þess að fá
út úr viðræðum er að alþjóðaflugvöllur
þeirra verði nothæfur á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Rod Blagojevich,
fyrrverandi ríkisstjóri í Illinois,
segist engan glæp hafa framið,
en viðurkennir þó að hafa reynt
að stunda „pólitísk hrossakaup“
þegar hann bauð öldungardeild-
arþingsæti Baracks Obama til
kaups eftir að Obama varð for-
seti.
Blagojevich var í vikunni
dæmdur sekur um vægasta
ákæruatriðið af 24 í dóms-
máli gegn honum. Þrír kvið-
dómendanna tólf hafa upp-
lýst að ein kona í kviðdómnum
hafi staðfastlega neitað að telja
Blag ojevich sekan um alvarleg-
ustu ákæruatriðin, þótt hinir
ellefu væru sannfærðir um sekt
hans í flestum atriðum. - gb
Blagojevich neitar allri sekt:
Segist þó sekur
um hrossakaup
ROD BLAGOJEVICH Var rekinn úr emb-
ætti ríkisstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Skólaakstur gegn gjaldi
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur tekið
þá ákvörðun að bjóða nemendum í
Mosfellsbæ upp á skólaakstur í Borg-
arholtsskóla gegn gjaldi á haustönn.
Verður skólaaksturinn í tilraunaskyni
til áramóta.
MOSFELLSBÆR
EFNAHAGSMÁL Skattrannsóknar-
stjóri skoðar hvort krafist verði
kyrrsetningar eigna í um 300
málum sem eru á borði embætt-
isins. Þetta kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
Ríkisstjórnin hyggst rýmka
heimildir embættisins til að krefj-
ast kyrrsetningar. Þannig myndu
þær einnig ná til staðgreiðslu og
virðisaukabrota. Verði frumvarp-
ið samþykkt á Alþingi ná heimild-
irnar einnig til þeirra mála sem
rannsókn er hafin á, að sögn fjár-
málaráðherra. - þeb
Þrjú hundruð mál í skoðun:
Kyrrsetning
eigna rýmkuð
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 20.08.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,667
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
120,20 120,78
186,16 187,06
152,63 153,49
20,483 20,603
19,141 19,253
16,106 16,200
1,4073 1,4155
181,18 182,26
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR