Fréttablaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 8
8 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR VIÐSKIPTI Landsbankinn skoðaði ýmsa möguleika á því að selja Icelandic Group að hluta eða öllu leyti og önnur félög sem bankinn hafði tekið yfir og sett inn í eignar- haldsfélagið Vestia áður en ákveð- ið var að selja þau til Framtaks- sjóðs Íslands. Eftir því sem næst verður komist taldist sala á fyrir- tækjunum til annarra en verulega fjársterkra aðila á borð við lífeyr- issjóðina þrautin þyngri. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, játar að innan bankans hafi verið í skoðun að selja Icelandic Group og einstök félög en verið horfið frá því. Sú hugmynd að Framtakssjóðurinn keypti þau hafi komið upp í sam- ræðum hans við Finnboga Jóns- son, framkvæmdastjóra sjóðsins. Sextán lífeyrissjóðir mynda Fram- takssjóðinn. Steinþór skrifaði fyrir hönd Landsbankans í gær undir samn- ing um sölu á Vestia til Framtaks- sjóðsins. Kaupverð nemur 19,5 milljörðum króna. Með Vestia fylgja fimm fyrir- tæki. Auk Icelandic Group eru í Vestia Húsasmiðjan, Plastprent og Teymi. Innan Teymis eru fjögur fyrirtæki, þar á meðal fjarskipta- fyrirtækið Vodafone. Nokkur félög úr Vestia verða skilin eftir hjá Landsbankanum. Það eru bílaum- boðið Askja, rúmlega fjörutíu pró- senta hlutur í danska fyrirtækinu Cimbric Fiskekonserves, og sextán prósenta hlutur í Stoðum (áður FL Group). Þau félög sem ekki fylgja með eru í söluferli. Gert er ráð fyrir að Framtaks- sjóðurinn greiði áttatíu prósent af kaupverðinu að lokinni áreiðan- leikakönnun í október. Afganginn á að greiða að ári. „Það er engin launung að eign- arhald bankans á félögunum hefur truflað rekstur þeirra. Þótt bank- inn standi vel er hann með laskaða ímynd,“ segir Steinþór og bætir við að með sölunni skýrist eignarhald fyrirtækjanna til frambúðar auk þess sem eiginfjárstaða Lands- bankans batnar verulega. Það komi sér vel í þeirri óvissu sem komið hafi upp eftir niðurstöðu Hæsta- réttar í júní, sem dæmdi gengis- tryggð krónulán ólögmæt, að hans sögn. jonab@frettabladid.is SAMNINGAR HANDSALAÐIR Finnbogi Jónsson og Steinþór Pálsson takast í hend- ur eftir undirritun sölunnar á Vestia. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lífeyrissjóðir kaupa eignir Landsbanka Eignarhald Landsbankans truflaði rekstur fyrirtækja sem hann hafði tekið yfir. Ætlunin var að selja stök fyrirtæki en fáir réðu við kaupin. Bankinn sleppir ekki hendi af fyrirtækjunum og kaupir þrjátíu prósent í Framtakssjóðnum. Samhliða sölu Landsbankans á Vestia til Framtakssjóðsins skuldbatt bank- inn sig til að kaupa þrjátíu prósenta hlut í sjóðnum. Kaupverðið nemur átján milljörðum króna og greiðist á næstu þremur árum. Framtakssjóðurinn er svipaður öðrum fjárfestingarsjóðum að því leyti að hann er lokaður og kallar eftir nýju hlutafé þegar hann kaupir eignir. Við sölu eigna greiðir hann þeim jafnharðan söluandvirðið til baka sem lögðu honum til fé. Framtakssjóðurinn var stofnaður í desember í fyrra og er eina eign hans, að Vestia frátöldu, 32 prósenta hlutur í Icelandair Group. Stefnt er að því að skrá fyrirtæki í eigu Framtakssjóðsins á hlutabréfa- markað að hluta þegar rekstur þeirra er kominn á réttan kjöl og þau hæf til að greiða hluthöfum arð, segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri sjóðs- ins. Hann telur líklegt að af því geti orðið innan fjögurra ára. Stefnt að skráningu í Kauphöll VIÐSKIPTI Róbert Wessmann, fyrr- verandi forstjóri Actavis, svarar Björgólfi Thor Björgólfssyni full- um hálsi í yfirlýsingu til fjölmiðla en Björgólfur fullyrðir á heimasíðu sinni, btb.is, að Róbert hafi verið vikið úr starfi árið 2008. Róbert segist hafa hætt störfum hjá Act- avis til að snúa sér að eigin fjárfest- ingum. Aðra ástæðu fráhvarfs hans frá fyrirtækinu segir Róbert vera að hann hafi ekki haft áhuga á því að starfa frekar með Björgólfi. Á heimasíðu sinni segir Björg ólf- ur að við afskráningu á Actavis í Kauphöll hafi orðið ljóst að rekstr- aráætlanir stjórnenda stóðust engan veginn og víðtæk gæða- vandamál í verksmiðju félagsins í Bandaríkjunum hafi komið upp. Við úrlausn þessara vandamála hafi Róbert verið vikið úr starfi. Í yfirlýsingunni segir Róbert að störf hans hjá Actavis verði helst dæmd út frá því að á stuttum tíma hafi lítið íslenskt fyrirtæki orðið eitt af fimm stærstu í heimi á sínu sviði. Róbert segir það reyndar ekkert nýtt að Björgólfur fari með fleipur og varar við efni síðunnar sem sé vettvangur fyrir fjölmiðla- og áróðursmeistara Björgólfs til að hreinsa skaðað orðspor hans með því að finna blóraböggla fyrir því sem hefur farið miður í fjárfesting- um hans. - shá Róbert Wessmann segir Björgólf Thor Björgólfsson fara með ósannindi: Lýgur til að hreinsa sjálfan sig RÓBERT WESSMANN BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON FRÍTT Í STRÆTÓ Á MENNINGARNÓTT Maður tekur strætó 21. ágúst. Nánari upplýsingar á strætó.is Reykjavíkurborg býður strætó.is Hópþjálfun Gigtarfélags Íslands byrjar 1. september Skráning hefst mánudaginn 23. ágúst Sjúkraþjálfarar og hjúkrunar- fræðingur sjá um þjálfun. Fagfólk með áralanga reynslu. Þægilegt og rólegt umhverfi STOTT–PILATES: Góð aðferð til að styrkja og auka stöðugleika liða og bæta líkamsstöðu. Vinsælir tímar. Byrjenda-og framhaldshópar, einnig einstaklingstímar. Jóga: Aðlagað einstaklingum með gigt og þeim sem þurfa að fara varlega í þjálfu. Alhliða leikfi mi: Tímar sem henta vel fyrir þá sem eru að hefja þjálfun eða þurfa góða leiðsögn. Frábærir tímar fyrir gigtarfólk sem og aðra einstaklinga með stoðkerfi sverki Leikfi mi fyrir karlmenn: Hressileg liðkandi og styrkjandi þjálfun. Hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum Vatnsleikfi mi: Góð alhliða þjálfun í vatni. Þyngdarleysi í vatninu gerir það að verkum að auðveldara er að gera æfi ngar þar heldur en á þurru landi. Þjóðdansahópur: Kenndir verða Þjóðdansar frá ýmsum löndum svo sem Tyrklandi, Rúmeníu, Búlgaríu, og Skotlandi. Dansarnir eru mjög fjölbreytir og allir geta dansað þá þó þeir hafi aldrei stundað dans áður. Langfl estir eru hópdansar eða hringdansar og því er ekki nauðsynlegt að koma með dansfélaga. Nánari upplýsingar undir hópþjálfun á heimasíðunni www.gigt.is Upplýsingar og skráning á skrifstofu G.Í. Ármúla 5, sími 5303600 A ug lý si ng as ím i Allt sem þú þarft…
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.