Fréttablaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 72
MENNING 8
Á síðasta vetri í Borgar-leikhúsinu var sett nýtt met í aðsókn, áskriftar-sölu og Grímutilnefn-ingum. Gestirnir voru
tæplega 220 þúsund talsins, kort-
in seldust í yfir tíu þúsund eintök-
um og verk leikhússins fengu 38
tilnefningar til Grímunnar, sem
er meira en nokkru sinni áður í
íslensku leikhúsi.
Magnús Geir Þórðarson, leik-
hússtjóri, segir að hvergi verði
slakað á klónni í vetur. „Við vitum
að það eru miklar væntingar eftir
meðbyrinn á síðasta ári. Við lítum
á það sem hvatningu til að halda
áfram og gera enn betur. Við
kappkostum að vera einlæg í list-
inni og segja sögur sem okkur
finnst eiga erindi og taka þannig
á brýnum málum,“ segir Magnús
Geir, sem er að hefja sitt þriðja
ár við stjórnvölinn. „Við erum
afskaplega spennt fyrir nýju leik-
ári, sem verður mjög fjölbreytt.
Stefnan verður í megindráttum
sú sama og verið hefur en með
nýju kryddi. Þetta verður blanda
af verkum sem ættu að kæta og
gleðja en líka verða áleitin og
kraftmikil verk sem eiga brýnt
erindi við samtímann.“
Tuttugu verk verða á boðstól-
um. Á stóra sviðinu verður í sept-
ember frumsýnt verkið Enron,
eitt umtalaðasta leikrit heims síð-
asta árið, og jólasýningin í ár er
eitt höfuðverk leikbókmenntanna,
Ofviðrið, í leikstjórn hins kunna
Oskaras Korsunovas. Eftir ára-
mótin kemur á svið gamanleik-
urinn Nei, ráðherra! eftir Ray
Cooney. Á Nýja sviðinu í október
verður síðan frumsýnd ný leik-
gerð af verðlaunasögu Auðar
Jónsdóttur, Fólkið í kjallaranum.
Ögrandi nútímaverk hafa verið
áberandi á nýja sviðinu og í þeim
flokki er Elsku barn, frumsýnt
rétt eftir jól. Í apríl ræður Hús-
móðirin, glænýr gleðileikur með
Vestuportshópnum, ríkjum á
nýja sviðinu. Sigurður Sigurjóns-
son leikur í einleiknum Afinn á
litla sviðinu sem mun einnig hýsa
ruslóperuna, Strýhærða Pétur.
Benedikt Erlingsson mun jafn-
framt stýra Sóleyjarkvæðum
eftir Jóhannes úr Kötlum eftir
áramót.
Sýningin Gauragangur sem
heillaði leikhúsgesti í fyrra snýr
aftur og Skoppa og Skrítla koma
líka aftur á svið. Barnasýningin
Horn á höfði heldur áfram og þá
mun Gói opna heim ævintýranna
með Eldfærunum. Eftir áramót
hefst undirbúningur fyrir einn
vinsælasta fjölskyldusöngleik
allra tíma, Galdrakarlinn í Oz, en
þá býður Borgarleikhúsið hæfi-
leikaríkum börnum í áheyrnar-
prufur. Sýningarnar Jesús litli,
Fjölskyldan og Harry og Heimir
halda einnig áfram í takmarkað-
an tíma.
TUTTUGU FJÖLBREYTT
VERK Á BOÐSTÓLUM
Mikil aðsókn var í Borgarleikhúsið síðasta vetur. Magnús Geir Þórðarson leikhús-
stjóri vill nýta sér meðbyrinn og gera enn betur í ár.
Tvær bækur eftir franska spennu-
sagnahöfundinn Fred Vargas eru
komnar út í kilju hjá Bjarti og ein
til viðbótar er væntanleg. Bækurn-
ar sem eru komnar út heita Var-
úlfurinn og Kallarinn. Sú sem er
væntanleg nefnist Þríforkurinn.
Fred Vargas er dulnefni franska
sagn- og fornleifafræðingsins
Fréderique Audoin-Rouzeau sem
fæddist í París árið 1957. Hún
hefur þrívegis hlotið glæpasagna-
verðlaunin Gullna rýtinginn á
undanförnum árum og er Vargas
fyrsti rithöfundurinn sem hlýtur
þau fyrir þrjár bækur í röð, eða
árin 2006, 2008 og 2009.
Vargas starfaði sem mikils met-
inn vísindamaður í Frakklandi og
rannsakaði meðal annars hættu-
legar farsóttir á borð við svarta
dauða, áður en hún ákvað að reyna
fyrir sér sem rithöfundur. Bækur
hennar gerast í París og snúast um
lögreglufulltrúann Adamsberg og
aðstoðarmenn hans. Áhugi Vargas
á miðöldum endurspeglast í mörg-
um skáldsögum hennar, sérstak-
lega í gegnum persónuna Marc
Vandoosler, sem er ungur sérfræð-
ingur í þessu tímabili mannkyns-
sögunnar.
Þrír Gullnir rýtingar
Öflugur leikhópur Borgarleikhússins mun skemmta áhorfendum í vetur.
Magnús Geir Þórðarson segir að
nýja leikárið verði bæði fjölbreytt og
skemmtilegt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞRJÚ STÓR VERK:
Ofviðrið - William
Shakespeare
Enron - Lucy Prebble
Nei, ráðherra - Ray
Cooney
Tvær bækur eftir franska spennusagna-
höfundinn Fred Vargas eru komnar út
í kilju.
Tónlistarhátíðin Berjadagar
hófst á Ólafsfirði í gær og lýkur
á morgun, sunnudag. Þetta er í
tólfta sinn sem hátíðin er hald-
in. Á Berjadögum verða þrennir
tónleikar og einnig verður sung-
ið og leikið á sauðagarnir, hald-
in sögustund og myndlistarnám-
skeið verða í boði fyrir börn.
Forn hljóðfæri og handrit verða
sýnd að ógleymdu markaðstorgi
Berjadaga.
Gestir geta fleygt sér í berja-
mó, bragðað á berjaafurðum,
hlýtt á söguna um Ásu sem týnd-
ist í eldgosinu, skoðað myndir
barnanna í Fjallabyggð og þess á
milli leyft tónlist að endurnæra
andann og sálina.
Listamenn Berjadaga 2010
verða Herdís Egilsdóttir, kennari
og listakona, Guðný Einarsdóttir
organisti, Frederique Friess sópr-
ansöngkona, Ólöf Sigursveinsdótt-
ir sellóleikari, Hrönn Þráinsdótt-
ir píanóleikari, Sönghópurinn
Kordía, Melkorka Ólafsdóttir
flautuleikari, Hildigunnur Hall-
dórsdóttir fiðluleikari og Diljá
Sigursveinsdóttir fiðluleikari og
listrænn stjórnandi hátíðarinnar.
Nánari upplýsingar um hátíð-
ina má finna á síðunni Fjalla-
byggd.is/berjadagar.
Berjadagar hafnir
Barokksveit Barokksveit Berjadaga undirbýr sig fyrir tónleika á hátíðinni.