Fréttablaðið - 21.08.2010, Síða 6
6 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
SAMGÖNGUR „Þetta er auðvitað nokkuð skrýt-
in staða. Fólk kemst ekki að hjólreiðaverk-
stæði fyrir nýjum hjólreiðastíg,“ segir James
Fletcher, eigandi hjólreiðaverkstæðisins
Borgarhjóla á Hverfisgötu 50.
Tímabundinn hjólreiðastígur var tekinn í
notkun á Hverfisgötu í gær. Um tilraunaverk-
efni á vegum Reykjavíkurborgar er að ræða
til að efla mannlíf í miðborginni og hvetja til
aukinna hjólreiða.
James lýsir ánægju sinni með framtak yfir-
valda um að efla hjólreiðamenninguna í borg-
inni. Hann er hins vegar gagnrýninn á hvern-
ig staðið er að framkvæmdinni. „Það var
enginn fyrirvari gefinn. Þeir voru byrjaðir
þegar bréfið kom inn um lúguna hjá mér.“
Hann óttast að hann verði af viðskiptum
vegna þess að stígurinn hefur verið lagður
fyrir framan verkstæðið. „Menn verða að átta
sig á því að flestir sem koma hingað með bilað
hjól koma akandi.“
James huggar sig þó við að um tilrauna-
verkefni sé að ræða og hyggst koma áhyggj-
um sínum á framfæri við umhverfis- og sam-
göngusvið Reykjavíkur.
35 gjaldskyld bílastæði á Hverfisgötu verða
helguð hjólreiðum í þessari tilraun sem stend-
ur út septembermánuð. Á næsta ári er fyrir-
hugað að bæta við tíu kílómetrum af hjólaleið-
um í borginni og mun tilraunin á Hverfisgötu
verða nýtt til upplýsingaöflunar um þá fram-
kvæmd. - shá
Eigandi Borgarhjóla óánægður með framkvæmd borgaryfirvalda á Hverfisgötu og óttast að missa viðskipti:
Ný hjólaleið er í vegi reiðhjólaverkstæðis
GRÆN HVERFISGATA Hér er vandi Borgarhjóla í hnot-
skurn. Bíl lagt á hjólastíginn fyrir framan verkstæðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Hvað vilt þú?
Komdu á Kjaraþing og taktu þátt í að móta
kröfugerð VR fyrir kjaraviðræður í haust.
Kjarasamningar eru lausir í lok nóvember og vinna við
kröfugerð VR stendur sem hæst. VR leggur áherslu á að allir
félagsmenn hafi tækifæri til að taka þátt í að móta kröfur
félagsins fyrir komandi viðræður og býður til Kjaraþings.
Kjaraþingið verður haldið laugardaginn 4. september
næstkomandi kl. 12:00 til 16:00 í Gullhömrum. Á þinginu
verður farið yfir stöðuna í kjara- og efnahagsmálum og kröfur
VR vegna komandi kjaraviðræðna ræddar. Þingið er opið öllum
fullgildum félagsmönnum VR og viljum við hvetja þá sem
áhuga hafa að skrá sig sem fyrst, hægt er að skrá sig á netinu
eða hjá þjónustuveri VR í síma 510 1700.
Leggðu þitt af mörkum fyrir sterkt og öflugt VR til framtíðar.
Í dag, laugardaginn 21. ágúst
verður farin gönguferð frá
Hellisheiðarvirkjun til Nesjavalla-
virkjunar. Gengið verður upp Sleggjubeinsskarð
og upp á Vörðuskeggja sem er 805 metra hár.
Þaðan verður farið niður í Kýrdal og í Nesjavalla-
virkjun. Gangan tekur u.þ.b. 6 klst. og er frekar erfið, að jafnaði um brattar
fjallshlíðar. Nauðsynlegur búnaður eru góðir gönguskór, góður hlífðar-
fatnaður og nesti. Orkuveita Reykjavíkur leggur til ferðir frá Reykjavík
í Hellisheiðarvirkjun og til baka frá Nesjavallavirkjun og er mæting
í höfuðstöðvar Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1 kl. 10:00. Áætlaður komu-
tími til baka er kl. 18:00. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Leiðsögu-
maður er Hans Benjamínsson, kynningarfulltrúi Hellisheiðarvirkjunar.
Hellisheiðarvirkjun –
Nesjavalla -
virkjun
Orkuveita Reykjavíkur rekur
stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
Athugið að efni dagsins getur riðlast af
ýmsum ástæðum og er því bent á að nánari
upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar.
Hefur þú gaman af kórsöng?
Já 60,1%
Nei 39,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú að taka þátt í viðburð-
um menningarnætur?
Segðu þína skoðun á vísir.is
LÖGREGLUMÁL Rannsóknin á morði
Hannesar Helgasonar er umsvifa-
meiri en lögreglan á að venj-
ast. „Málið á sér dýpri rætur en
gengur og gerist,“ sagði Björgvin
Björgvinsson rannsóknarlögreglu-
maður á blaðamannafundi í gær.
Lögreglan er meðal annars að
skoða tengsl Hannesar við útlönd,
og sem annað dæmi um umfang
rannsóknarinnar skoðaði lögregl-
an upptökur öryggismyndavéla
í verslun 10-11 við Staðarberg í
Hafnarfirði. Skoðuð voru mynd-
bönd frá laugardagskvöldinu og
aðfaranótt sunnudagsins síðasta
til þess að átta sig á mannaferð-
um í hverfinu. „Við notumst við
allar upplýsingar sem við mögu-
lega getum,“ segir Friðrik Smári
Björgvinsson, yfirmaður rann-
sóknardeildar lögreglunnar,
spurður um málið.
Hannes bjó með unnustu sinni í
húsinu við Háaberg í Hafnarfirði
þar sem honum var ráðinn bani
aðfaranótt sunnudags. Lögregl-
an gat ekki svarað því hvort fleiri
hefðu aðsetur í húsinu að jafnaði.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum var Hannes sofandi í rúmi
sínu þegar morðinginn kom inn til
hans í þeim eina til-
gangi að ráða hann
af dögum. Dánar-
stund er talin hafa
verið seint á aðfara-
nótt sunnudags. Enginn
annar var í húsinu og bendir
allt til þess að sá sem verknaðinn
framdi hafi annaðhvort haft lykil
að húsinu eða komið inn um ólæst-
ar dyr.
„Atlagan virðist hafa beinst að
Hannesi einum og ekki er talið
að tilviljun hafi ráðið því að farið
hafi verið í hús hans og honum
ráðinn bani á þennan hátt,“ segir
Friðrik.
Hannes hlaut fjölda stungusára
og var skorinn með hnífi sem lík-
lega hefur verið einhvers konar
eldhúshnífur, oddhvass og beittur.
Skurði var einnig að finna á hönd-
um hans sem bendir til þess að
hann hafi veitt mótspyrnu. Blað
hnífsins er í kringum 20 senti-
metra langt og tveggja sentimetra
breitt. Lögregla gat ekki svar-
að því hvort hnífurinn hafi verið
tekinn úr eldhúsi Hannesar. Morð-
vopnið er enn ófundið.
Hátt í fjórða tug manna hafa
verið yfirheyrðir í tengslum við
morðið og hafa um fimm manns
fengið réttarstöðu grunaðs manns.
Lögreglan segir ekkert benda til
þess að hinum almenna borgara
stafi hætta af morðingjanum.
sunna@frettabladid.is
BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON OG FRIÐRIK SMÁRI BJÖRGVINSSON Lögreglan í Reykjavík
hélt í gær blaðamannafund þar sem kynnt var staða rannsóknarinnar á morðinu á
Hannesi Helgasyni. Málið er sagt óvenjuflókið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ELDHÚSHNÍFUR Talið er að hníf-
urinn sem notaður var líkist
þessum, en lögregla
segir hnífsblaðið
hafa verið allt að
20 sentimetra
langt.
Erfitt mál sem á sér
óvenjudjúpar rætur
Upptökur frá verslun 10-11 í Hafnarfirði voru skoðaðar af lögreglu í tengslum
við morðið á Hannesi Helgasyni. Málið á sér dýpri rætur en lögreglan á að venj-
ast. Hannes bjó með unnustu sinni í húsinu en var einsamall um nóttina.
FÓLK Búist er við að þátttaka í
Reykjavíkurmaraþoni Íslands-
banka, sem fram fer í dag, verði
svipuð og síðustu tvö ár, eða
nálægt ellefu þúsund manns.
Skráningarhátíð Reykjavíkur-
maraþons Íslandsbanka stóð í gær-
dag, milli klukkan tíu árdegis og
sjö að kvöldi.
Boðið var upp á margvísleg-
ar uppákomur um leið og hlaupa-
garpar sóttu skráningargögn, svo
sem bol, númer í hlaupinu, tíma-
tökuflögu og fleira.
Sömuleiðis gátu þeir sem ekki
höfðu forskráð sig í hlaupið skráð
sig á staðnum. Í tilkynningu bank-
ans kemur fram að í gærmorgun
hafi tæplega 7.600 manns verið
búnir að skrá sig.
Að venju eru hlaupnar nokkrar
vegalengdir: maraþon, 42,2 kíló-
metrar; hálfmaraþon, 21,1 kíló-
metri; 10 kílómetrar og þriggja
kílómetra skemmtiskokk.
Á vefnum hlaupastyrkur.is er
hægt að heita á þá hlaupara sem
hafa valið að hlaupa í þágu góðs
málefnis. Opið er fyrir áheit allt til
miðnættis mánudaginn 23. ágúst.
- óká
HANDAGANGUR Í ÖSKJUNNI Í gær var nóg að gera við skráninguna í Reykjavíkur-
maraþon Íslandsbanka sem fram fer í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram í dag:
Búist við svipaðri þátttöku og síðast
KJÖRKASSINN