Fréttablaðið - 21.08.2010, Qupperneq 10
21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
NÁTTÚRA Ekki er hægt að fullyrða
að neysluvatn í sumarbústaðalandi
í landi Kárastaða við Þingvallavatn
sé mengað vegna seyrulosunar í
grenndinni um síðustu helgi, segir
Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseftirlits Suður-
lands. Sýnataka í tveimur sumar-
bústöðum í landi Kárastaða við
Þingvallavatn leiddi í ljós að vatnið
er ekki drykkjarhæft. Tekin voru
sýni í kjölfar frétta sem bárust af
því að Holræsa- og stífluþjónusta
Suðurlands hefði losað seyruvökva
á vatnsverndarsvæði Þingvalla eftir
að hafa verið fengin til að dæla upp
úr rotþróm á svæðinu. Elsa segir
að til þess að komast að niðurstöðu
verði áfram tekin sýni á svæðinu
næstu vikur.
Elsa bendir á að mjög strang-
ar reglur gildi um fráveitumál og
neysluvatnsmál á vatnsverndar-
svæði í kringum Þingvelli. Þær
hafi verið settar til að vernda líf-
ríki vatnsins. Hins vegar hafi aldrei
verið gerð úttekt á því hvort sum-
arbústaðaeigendur við vatnið hlýði
þeim reglum sem settar voru árið
2006. Neysluvatnsöflun og fráveitu-
mál heyri undir hvern og einn sum-
arbústaðareiganda og þau séu ekki
eftirlitsskyld. „Við leggjum því
áherslu á að farið verði í það þarfa
verk að kanna ástand fráveitna og
neysluvatnsmála á öllu verndar-
svæði Þingvalla,“ segir Elsa.
Ólafur Örn Haraldsson þjóð-
garðsvörður tekur undir þessi sjón-
armið og segir mjög brýnt að gera
úttekt á þessum málum. „Við höfum
ekkert heildaryfirlit um ástand rot-
þróa við vatnið. Þetta er eitt af brýn-
ustu verkefnum sem þjóðgarðurinn
þarf að beita sér fyrir.“ Ólafur Örn
segir vatns- og fráveitumál í góðu
lagi í þjónustumiðstöð og á tjald-
svæði enda hafi miklu verið kostað
til þar. Sumarbústaðaeigendur hafi
örugglega margir hverjir farið að
ströngustu kröfum, en vandamálið
sé að vitneskjan um stöðuna liggi
ekki fyrir.
Ólafur harmar mjög atvik síð-
ustu helgar og telur það algjörlega
óafsakanlegt. Holræsa- og stíflu-
þjónustan sendi frá sér yfirlýsingu
í vikunni þar sem atvikið var harm-
að. Fyrirtækinu var veitt áminning
af Heilbrigðiseftirlitinu í kjölfarið.
Gunnar V. Guðmundsson, for-
maður Félags sumarbústaðaeig-
enda í landi Kárastaða, telur mjög
líklegt að seyrulosunin hafi valdið
menguninni. „Menn hafa verið að
drekka vatnið í mörg ár og aldrei
neitt komið upp. En eins og stað-
an er núna þá tökum við vatn með
okkur eða sjóðum.“
sigridur@frettabladid.is
Mengað vatn
Í ljós kom eftir sýnatöku Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands að neysluvatn í sumarbústöð-
um í landi Kárastaða sé mengað.
Kárastaðir
ÞINGVALLAVATN
Vilja úttekt á
rotþróm við
Þingvallavatn
Brýnt er að gera úttekt á neysluvatns- og fráveitu-
málum við Þingvallavatn að mati Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands og þjóðgarðsvarðar. Strangar reglur voru
settar 2006 en ekki er vitað hvernig þeim er fylgt.
Í LANDI KÁRASTAÐA Þjóðgarðsvörður ætlar að beita sér fyrir því að gerð verði úttekt
á neysluvatns- og fráveitumálum umhverfis Þingvallavatn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
REYKJAVÍK Mánaðarlegir vinnu-
fundir allra borgarfulltrúa
verða fastir liðir í starfsáætlun
borgar stjórnar
Reykjavíkur,
sem samþykkti
tillögu Hönnu
Birnu Kristj-
ánsdóttur um
það í gær.
Hanna Birna
segir að til-
gangurinn sé
að bæta störf
borgarstjórnar,
en með fundunum sé aukið sam-
starf borgarstjórnar um stefnu-
mótun og brýn verkefni. Hún seg-
ist telja að aukin samvinna skili
mestum árangri fyrir borgarbúa.
Fyrsti fundurinn verður hald-
inn áður en borgarstjórn kemur
saman á ný í september. - þeb
Allir eiga að sitja nýja fundi:
Samvinna auk-
in í Reykjavík
ÖRYGGISMÁL Bræðsluofn á Grund-
artanga hefur verið tekinn í notk-
un á ný eftir banvænt vinnuslys
sem varð í verksmiðjunni þann
29. júní síðastliðinn. Vinnueftir-
litið lokaði ofninum í kjölfar þess
að starfsmaður sem vann þar við
skörun brenndist alvarlega þegar
gos varð í ofninum og eldtunga
barst úr honum. Maðurinn lést í
kjölfarið.
Vinnueftirlitið ákvað að banna
einnig vinnu við hina tvo ofna
Grundartanga um tíma eftir slysið.
Þegar fyrir lá að það tengdist sér-
stökum aðstæðum við framleiðslu
55 prósenta kísiljárns í ofninum
þar sem slysið átti sér stað, voru
hinir tveir opnaðir á ný. Rannsókn
á málinu stendur þó enn yfir.
Elkem Ísland hefur ákveðið að
hætta framleiðslu á 55 prósenta kís-
iljárni. Eingöngu verður unnið með
65 prósenta kísiljárn í umræddum
ofni framvegis. Áhættumat fyrir-
tækisins hefur verið endurskoðað
og hafa ýmsar öryggisráðstafan-
ir verið gerðar, svo sem uppsetn-
ing öryggismyndavéla við hvern
ofn og talstöðvar í skörungsvagna.
Aðgengi að öllum ofnunum hefur
nú verið takmarkað. Vinnueftirlitið
mun greina frá frekari niðurstöð-
um rannsóknarinnar þegar þær
liggja fyrir, síðar í haust. - sv
JÁRNBLENDIVERKSMIÐJAN Bræðsluofn-
inn á Grundartanga hefur verið tekinn í
notkun á ný eftir banaslys í júní.
Vinnueftirlitið opnar bræðsluofn á Grundartanga á ný eftir banaslys:
Járnframleiðsluháttum breytt
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
Bólstaðarhlíð 20 | 105 Reykjavík | S: 553 2590 | isaksskoli@isaksskoli.is
Langar þig til að syngja í karlakór
sem hefur mikinn metnað?
Þá er hér tækifæri sem þú ættir að hugleiða.
Karlakórinn Fóstbræður vill bæta við sig söngmönnum í allar raddir
fyrir næsta starfsár (2010-2011) sem hefst í september nk.
Þú þarft að hafa góða söngrödd, tónheyrn og vera yngri en 45 ára.
Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur V. Snævarr í síma 898 7050,
gsnaevarr@simnet.is.
Fóstbræður er ein elsta tónlistarstofnun landsins og hefur starfað óslitið í hart nær hundrað ár.
Kórinn hefur frá upphafi verið metnaðarfullur í verkefnavali og sem dæmi komið reglulega fram með
Sinfóníuhljómsveit Íslands í viðamiklum hljómsveitarverkum. Auk þess að syngja hefðbundið efni fyrir
karlakóra hafa Fóstbræður stuðlað að nýsköpun með frumflutningi nýrra verka. Þá hefur kórinn slegið
á létta strengi, t.d. með tónleikum og útgáfu í samstarfi við Stuðmenn og með landsfrægum söng hinna
vinsælu Fjórtán Fóstbræðra á sínum tíma. Fóstbræður hafa unnið til verðlauna í erlendum söngkeppnum
og síðast hlaut kórinn gullverðlaun á tónlistarhátíð Musica Sacra í Pag. Í júlí 2008 sungu Fóstbræður
á sumarlistahátíð í Vilnius með hinni þekktu Christophers Chamber Orchestra og aftur á Reykholtshátíð
í júlí 2009. Kórinn fer reglulega í söngferðir innanlands sem utan. Stjórnandi kórsins er Árni Harðarson.