Fréttablaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 32
32 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
K
lukkan er rúm-
lega sjö að morgni.
Hamarshögg og vél-
argnýr kveða við.
Smiðirnir eru að
losa sundur svefn-
herbergisálmur og vélamenn og
bílstjórar að fjarlægja malar púð-
ana undan þeim. Aðrir að jafna
úr hlössum og snurfusa svæðið.
Hálftíu-kaffið er veisla eins og
allar máltíðir hjá ráðskonunni
virðast vera. Furðulegt að menn
geti haldið línunum í lagi í jafn
fantagóðu fæði.
Það er flokkur frá fyrirtækinu
Skútabergi á Akureyri sem sér um
lokafrágang á virkjanasvæðinu
við Ufsarveitu, Kelduá og Grjótá.
Ótal treilerbílar, fulllestaðir tækj-
um, skemmum, gámum, tönkum
og skúrum að ógleymdri steypu-
stöð eru farnir þaðan á síðustu
vikum og mánuðum. Jafnframt
eru vatns- og raflagnir grafnar
upp og jarðýtum og gröfum beitt
í þágu landsins. Allir aðskotahlut-
ir eru fluttir burtu. Eftir standa
mannvirkin sem reist voru til raf-
orkuframleiðslu, stíflur og lón og
vegir sem liggja að þeim, ásamt
ósýnilegum jarðgöngum í kíló-
metratali sem vatn flæðir um.
Með Laugarfell í norðri, Haf-
ursfell í norðvestri, Snæfell í suð-
vestri, og Vatnajökul í suðri hófst
búskapurinn við Ufsarveitu á
mjóum grjótmel fyrir sléttum sex
árum, um miðjan ágúst 2004. Á
sama tíma og byrjað var að grafa
göng fyrir vatnið úr væntanlegu
lónsstæði.
Þá eins og nú var unnið í kapp-
hlaupi við tímann því vetur leggst
snemma að í 670 metra hæð norð-
an undir Vatnajökli. Mörg handtök
þurfti til svo vistin yrði bærileg
fyrir um 100 manna vinnuflokk,
sem síðar margfaldaðist. Í því
fólst meðal annars að finna vatn
í jörðu sem dygði til neyslu og
þvotta, í ómælt magn af steypu
og til kælingar á borum. Fljótlega
bættist baráttan við frostið við.
Sumir sem vinna við hreinsun-
ina nú voru meðal frumbyggjanna
á melnum og kunna frá þessu
að segja. Þeir og félagar þeirra
keppast nú við að má út merki um
mannvistina og skila landinu á
milli fjallanna sem upprunaleg-
ustu þar sem kyrrðin mun ríkja.
Áfanga í virkjunarsögu lokið
Hreinsun og frágangi á virkjanasvæðinu á Austurlandi er að ljúka. Nú um helgina verða síðustu verktakabúðirnar hífðar upp á
bíla og keyrðar í burtu. Gunnþóra Gunnarsdóttir kíkti í heimsókn áður og fylgdist með tiltekt á fjöllum í þoku og sudda.
AFMÆLISBÖRN Örnólfur Eiríksson vélamaður og Gróa Sigurbergsdóttir ráðskona eiga
bæði afmæli þennan dag og Gróa ber fram svellandi tertu í kvöldkaffinu.
SUNNUDAGSSTEIKIN Ívar Jónsson, Sesselja Tryggvadóttir, Guðmundur Sigurjónsson,
Stefán Leifsson og Hlynur Árnason hlakka til að taka til matar síns.
KLÁRIR Í SLAGINN Hlynur Árnason, Aðalgeir Halldórsson, Sigmundur Sigurðsson og
Guðmundur Sigurjónsson eru í niðurrifi og flutningi á vinnubúðum.
VERKSTJÓRINN Ragnar Þrúðmarsson
hefur í mörg horn að líta.
HANDAFLIÐ VIRKJAÐ Sesselja stokkin af gröfunni til
að reyna að losa kapalinn.
JARÐÝTUSTJÓRINN Viggó Brynjólfsson 84 ára vinnur
tólf tíma vinnudag. Hann er líka harmóníkuleikari
og nýbúinn að gefa út disk.
BÚÐIRNAR Svona leit þorpið út í september 2007, séð ofan af sementstanki eða úr bómu.
MYND/PÁLL BENEDIKTSSON.
TÆKJAKONA Sesselja Tryggvadóttir beitir lagni á gröfunni við að hreinsa ofan af rafmagnsköplum.
FLUTNINGAR Einn af svefnskálunum að leggja af stað. Hlynur og Geiri fylgjast með að allt stemmi.