Fréttablaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 71
7 MENNING
dagskrá
bíómyndum áður. Það var ákveð-
in öryggistilfinning að hafa þessa
reynslubolta í tökuliðinu. Þetta var
mjög góður hópur.“
Stuttmyndir með Erpi
Eins og áður segir sló Grímur í gegn
með stuttmyndum sínum og hlaut
hann meðal annars Eddu-verðlaun-
in fyrir Bræðrabyltu, auk fjölda
erlendra viðurkenninga. Hann er
sammála því að gerð Sumarlands-
ins hafi verið rökrétt framhald af
stuttmyndagerðinni. „Maður er
orðinn 33 ára gamall og það var
jafnvel byrjað að kalla eftir því
að maður tæki þetta skref,“ segir
hann og bætir við að viðbrigðin séu
nokkur við gerð leikinnar myndar í
fullri lengd. „Þetta er aðeins flókn-
ara og aðeins meira stress kannski.
En ég var búinn að ganga í gegnum
þennan skóla, þannig séð, að gera
stuttmyndir sem hafa alltaf orðið
betri og betri. Maður var ágætlega
tilbúinn í þetta.“
En hvaðan kemur þessi kvik-
myndaáhugi? „Ég byrjaði í leiklist
þegar ég var krakki og lék í tveimur
leiksýningum í Þjóðleikhúsinu. Ég
byrjaði sem patti að syngja í Óliver
Twist, Síðan æxlaðist þetta þannig
að móðir félaga míns Erps Eyvind-
arsonar keypti VHS-myndavél og
við byrjuðum að gera stuttmynd-
ir á hana þegar við vorum fjór-
tán ára gamlir. Þá skiptumst við
á að taka upp og leika. Við lékum
öll hlutverkin, konur og karlmenn
og allan pakkann,“ segir Grímur
og hlær. „Svo var maður í mennta-
skóla að gera stuttmyndir. Ég gerði
Klósettmenningu með Rúnari Rún-
arssyni. Þá vorum við átján ára og
hún gekk rosalega vel og vann verð-
laun. Maður síaðist smátt og smátt
inn í þetta. Á einhverjum tíma-
punkti reyndi maður að kúpla sig út
úr þessu og kíkti í háskólann en svo
endaði maður aftur í þessu.“
Grímur fór í kvikmyndanám til
Prag í Tékklandi árið 2002 og dvaldi
þar í tvö ár. Þar kviknaði áhugi hjá
honum að gera leiknar kvikmyndir.
„Ég hef aldrei tekið þessa ákvörðun
um að verða leikstjóri. Það er eins
og manni hafi bara verið ætlað að
fara í þetta.“
sem sameinar óperu, djass og
söngleikjatónlist. Páll Óskar stíg-
ur á svið og flytur lögin sín með
Sinfóníuhljómsveitinni í nóv-
ember. Kvikmyndatónlist verða
einnig gerð góð skil á þessu síð-
asta starfsári hljómsveitarinnar
í Háskólabíói eftir fimmtíu ár í
húsinu.
Á næsta ári verður tónleika-
húsið Harpa nýtt heimili Sin-
fóníunnar. „Það er ljóst að það
verður gjörbylting á allri aðstöðu
hljómsveitarinnar í nýju tónlist-
arhúsi. Salurinn verður líka gjör-
bylting fyrir tónleikagesti. Það
eru afskaplega spennandi tímar
framundan,“ segir Sigurður.
Opnunartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar á þessu starfs-
ári verða 10. september þar sem
píanóleikarinn Víkingur Heiðar
stígur á svið.
Í UPPÁHALDI HJÁ
GRÍMI:
Elephant (2003)
Gus Van Sant
Happiness (1998)
Todd Solondz
Taxi Driver (1976)
Martin Scorsese
The Conformist (1970)
Bernardo Bertolucci
Í tilefni opnunarhátíðar Menningarhúss-
ins Hofs og Akureyrarvöku verða haldnir
tónleikar í Hofi föstudaginn 27. ágúst kl.
19.30 og síðar um kvöldið, kl. 22.30. Fyrri
tónleikarnir verða sendir út beint á Rás 2.
Söngkonan Lay Low tekur þar á móti
gestum og flytur norðlenska tónlist í
bland við sína eigin. Flytjendur eru auk
Lay Low: Kammerkórinn Ísold, Eyþór
Ingi Jónsson, Kór Hrafnagilsskóla, María
Gunnarsdóttir, Strengjasveit, Daníel Þor-
steinsson, Lára Sóley Jóhannsdóttir, Blás-
arakvartett, Vilhjálmur Ingi Sigurðarson,
Slagverksveit, Rokksveitin Malignant
Mist og fleiri.
Tónleikarnir eru þeir fyrstu sem haldn-
ir eru í Menningarhúsinu Hofi. Miðaverð
er 1.500 kr. en öllum 20 ára og yngri er
boðið frítt á tónleikana. Nánari upplýsing-
ar eru á síðunni menningarhus.is.
Lay Low á opnunarhátíð
Lay Low Söngkonan Lay Low kemur fram á tónleikunum í
Menningarhúsinu Hofi föstudaginn 27. ágúst.
Hvað getur NUTRILENK
Active gert fyrir þig?
Ég hef stundað lyftingar allt frá 13 ára
aldri. Ég byrjaði 18 ára að stunda kraft-
lyftingar og hef keppt bæði í þeim og
aflraunum síðastliðin ár. Undanfarin ár
hef ég fundið þegar nær dregur
keppnistímabilum, æfingaálag eykst og
þyngdin verður meiri þá eykst álag á
liðina og verkir gera vart við sig hér og
þar í líkamanum. Olnbogar og hné
verða t.d. aumari en vanalega og liðirnir
eiga það til að bólgna upp. Oft hef ég
þurft að bíta á jaxlinn sökum verkja.
Ónot í fingri var hreinlega að gera út af
við mig og var ég hættur að geta beygt
fingurinn. Ég var búinn að fara á milli
lækna en ekkert sást né fannst. Svo
heppilega vildi til að ég var beðinn um
að prófa nýtt efni á íslenskum markaði,
NutriLenk Active sem hefur áhrif á
liðvökvann og liðkar stirða liði. Ótrúlegt
en satt þá varð ég laus við verkinn á
einungis á nokkrum vikum. Ég byrjaði á
að hlaða upp efninu í 2 vikur þ.e. 2 hylki
á dag og fór svo niður í 1 hylki á dag.
Annað sem kom mér á óvart var að
þrátt fyrir að vera búinn að léttast þetta
mikið þá hefur mér sennilega aldrei liðið
betur t.d. í olnbogum og öxlum, en
þetta eru staðir sem ég bjóst við að
verða jafnvel viðkvæmari á meðan ég
var að léttast. Það er frábært að finna
þennan liðleika og vera laus við verki en
þess vegna er auðvitað mikið
auðveldara að æfa af krafti fyrir mót
sumarsins segir Árni Freyr Gestsson að
lokum en hann stefnir á að keppa á
mótum í undir 105 kg. flokki.
Aðeins 1 hylki á dag
losaði mig út úr
verkjapakkanum!
NUTRILENK
Árni Freyr Gestsson
aflraunamaður
NÁTTÚRULEGT
FYRIR LIÐINA
• NUTRILENK Active inniheldur vatns-
meðhöndlaðan hanakamb sem
inniheldur hátt hlutfall af náttúrulegum
efnum svokallaðri Hýalúrónsýru sem
getur hjálpað við að endurbyggja og
viðhalda jafnvægi í liðum.
• NUTRILENK Active eykur liðleika og lið-
heilbrigði og sér til þess að liðirnir þínir
séu heilbrigðir og vel smurðir, svo þú
getir æft að fullum krafti án hindrana.
• NUTRILENK Active auðvaldar liðunum
að jafna sig eftir æfingar.
NUTRILENK Active er unnið úr sérvöldum
hanakömbum og inniheldur því engin
fiskiprótein eða skelfisk, hvert hylki inni-
heldur 28 gr. Hýalúrónsýru.
Þægilegt aðeins eitt hylki á dag.
Hver er munurinn á NUTRILENK Active
og NUTRILENK Gold ?
NUTRILENK Active er hentugt fyrir þá sem
þjást af stirðleika og verkjum í liðum það
hefur jákvæð áhrif á liðvökvann.
NUTRILENK Gold er hentugt fyrir þá
sem þjást af minnkuðu liðbrjóski og
slitnum liðum. Gott byggingarefni fyrir
liðbrjóskið.
Get ég tekið inn hvorutveggja?
- Já það getur unnið
mjög vel saman.
NUTRILENK Active
er fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum
stórmarkaðanna.
----------------------------------------------
ACTIVE
Skráðu þig á
síðu
na
NUTRILENK fyrir
liðina
– því getur fylgt
heppni!