Fréttablaðið - 21.08.2010, Síða 73
9 MENNING
SKÓLAVÖRUR
Pennaveski fyllt verð frá 799.-
Blýantur verð frá 20.-
Límstifti verð frá 95.-
Skrúfblýantur verð frá 99.-
Milliblöð verð frá 345.-
Plastmöppur verð frá 79.-
Gráðubogi verð frá 145.-
Reglustika verð frá 75.-
Skæri verð frá 299.-
Trélitir verð frá 385.-
Yddari með boxi verð frá 150.-
Strokleður verð frá 50.-
Teygjumappa verð frá 270.-
Reikningsbók A4 verð frá 339.-
Stílabók A4 verð frá 339.-
Reikningsbók A5 verð frá 265.-
Stílabók A5 verð frá 265.-
Fagbók verð frá 694.-
Bréfabindi 4 hr verð frá 399.-
Vasareiknivél verð frá 799.-
Skólataska verð frá 1.490.-
Línustrikuð gormaA4 80 bls verð frá 370.-
Rúðustrikuð gormaA5 80 bls verð frá 365.-
Áherslupenni verð frá 50.-
Lækjargata 2a 101 R.sími 5115001 opiða alla daga 9 til 22
Óperan sem Íslenska óperan
færir upp á komandi haustmiss-
eri er Rigoletto eftir Giuseppe
Verdi. Þetta áhrifamikla og
hádramatíska meistaraverk er
ein af þekktustu óperum sög-
unnar og er reglulega færð upp í
flestum óperuhúsum veraldar. Í
verkinu koma saman ástir, valda-
barátta og örlög í æsispennandi
fléttu, sem römmuð er inn af
hrífandi tónlist meistara Verdi
og inniheldur meðal annars hinar
þekktu aríur „La donne e mobile“
og „Questa o Quella“ að ógleymd-
um kvartettinum „Bella figlia
dell’amore“.
Það er Ólafur Kjartan Sigurðar-
son sem fer með hlutverk Rigo-
letto, Jóhann Friðgeir Valdimars-
son leikur Hertogann af Mantua,
Þóra Einarsdóttir er Gilda,
Jóhann Smári Sævarsson kemur
fram sem Sparafucile, Sesselja
Kristjánsdóttir sem Maddalena,
Bergþór Pálsson sem Monterone
og Bylgja Dís Gunnarsdóttir sem
Giovanna. Alls eru sex sýningar
ráðgerðar á verkinu og verður
frumsýning 9. október.
Rigoletto í
Óperunni
Ólafur verður í aðalhlutverkinu í Rigo-
letto eftir Verdi.
Bókin Saga
eftirlifenda –
Höður og Bald-
ur eftir Emil
Hjörvar Peter-
sen er komin
út hjá Nykri og
er þetta fyrsta
bókin í þrí-
leik. Þetta er
viðamikil saga
sem sameinar
margar grein-
ar skáldsagna-
gerðar svo úr
verður nýstárlegt verk. Sögunni
er lýst sem spennandi fantasíu-
trylli, tilvistarlegri en gjarnan
skoplegri frásögn af bræðrum
og ádeilukenndri lýsingu á stöðu
manna, vætta og goða í heimi
átaka og blekkinga. Rétt rúmlega
sjö þúsund ár hafa liðið frá hörm-
ungunum og sögusviðið er hlið-
stæður tími og er nú til dags.
Aðalpersónurnar eru bræðurnir
Höður og Baldur.
Emil Hjörvar, fæddur 1984,
hefur undanfarið getið sér gott
orð sem ljóðskáld. Hann hefur
gefið út tvær ljóðabækur, Refur
og Gárungagap sem hafa fengið
góðar viðtökur.
Eftirlifendur
ragnaraka
Emil Hjörvar Peter-
sen hefur gefið úr
bókina Saga eftir-
lifenda – Höður og
Baldur.
Sýningunni Annað auga lýkur
á Kjarvalsstöðum á sunnudag.
Þar eru til sýnis um sextíu ljós-
myndaverk eftir marga af eftir-
sóttustu listamönnum samtím-
ans á veraldarvísu en verkin
eru öll í eigu listaverkasafnar-
anna Péturs Arasonar og Rögnu
Róbertsdóttur. Safneign þeirra
telur um eitt þúsund verk, sem
er ein stærsta einkasafneign
á Íslandi. Sýningin var á dag-
skrá Listahátíðar í Reykjavík
2010. Sýningarstjóri er Birta
Guðjónsdóttir.
Auga fyrir auga lýkur
Sýningunni Annað auga lýkur á Kjar-
valsstöðum á sunnudag. Um sextíu
ljósmyndaverk eru þar til sýnis.