Fréttablaðið - 21.08.2010, Side 104
64 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
Oft kallaður
Smalinn
FÓTBOLTI KR-ingar hafa unnið fjóra
leiki í röð í Pepsi-deild karla og eru
aðeins átta stigum frá toppsætinu.
Þeir eiga auk þess leik til góða á
toppliðin. Baldur Sigurðsson stýrði
miðju liðsins eins og herforingi í 2-
1 sigrinum á Fram á fimmtudag.
Hann er fyrir vikið leikmaður
umferðarinnar hjá Fréttablaðinu.
„Þetta var það besta sem gat
komið fyrir okkur eftir tapið í bik-
arúrslitunum. Ef við hefðum tapað
hefðum við kannski dottið í ein-
hvern leiðinda pakka þarna niðri,
vonbrigði og svekkelsi. En það kom
aldrei annað til greina en að rífa
sig upp eftir gríðarleg vonbrigði
með bikarúrslitaleikinn,“ sagði
Baldur en þar tapaði KR 4-0.
„Þessi sigur mun gefa okkur
mikið,“ segir Baldur en KR-ingar
mæta Valsmönnum á mánudaginn
þar sem þeir eiga harma að hefna
frá því fyrr í sumar. Á fimmtudag-
inn er svo komið að leiknum gegn
Fylki sem liðið á inni.
„Sigur í þessum báðum leikj-
um skilar okkur í mjög góða stöðu.
Eftir þá eigum við leiki gegn ÍBV
og Blikum, toppliðunum. En við
erum ekki búnir að vinna þessa
leiki en það er komin upp spenn-
andi staða,“ segir Baldur.
Hann segir stöðuna raunar
bæði spennandi og skrýtna. „Sam-
kvæmt fjölmiðlum og fólkinu úti í
bæ hefur sumarið verið vonbrigði.
Logi var látinn fara og við ekki að
spila vel. Auðvitað á þetta rétt á
sér að sumu leyti en svona er þetta
bara alltaf hjá KR held ég. Kannski
er fínt ef við náum að fljóta í gegn-
um þetta bakdyramegin og önnur
lið taka ekkert eftir okkur,“ segir
miðjumaðurinn.
Rúnar Kristinsson tók við KR af
Loga Ólafssyni og hefur unnið alla
fjóra deildarleikina til þessa. „Ég
held að þetta sé öllu batteríinu að
þakka. Leikmannahópurinn hefur
verið samrýndur og allir þjálfarar-
nir líka. Rúnar á allan heiður skil-
inn fyrir sitt starf, hann kann sitt
fag,“ segir Baldur sem er nokkuð
sáttur spilamennsku sína í sumar.
. „Ég er mest sáttur með að ég
hef verið að spila nokkuð stöðugt.
En þetta snýst allt um liðið, því ef
vel gengur er maður ánægður. Ef
maður spilar vel en liðið illa tekur
maður ekkert eftir því,“ segir
smalinn Baldur Sigurðsson.
hjalti@frettabladid.is
Bakdyramegin í baráttuna
Baldur Sigurðsson er leikmaður 16. umferðar Pepsi-deildarinnar. KR er á góðri
leið með að smeygja sér bakdyramegin í toppbaráttu eftir fjóra sigra í röð. Bald-
ur segir að sumarið hafi verið skrýtið þar sem kröfurnar á KR séu miklar.
SMALINN Baldur var frábær í leiknum gegn Fram á fimmtudaginn. Að gömlum sið
stýrði hann miðjunni frá A til Ö. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Ég fékk þetta viðurnefni fyrir
nokkrum árum þegar ég var að
spila með Völsungi. Við höfðum
unnið þriðju deildina og vorum
á leiðinni á lokahóf. Strákarnir
komu til mín í Húnavatnssýsl-
una til að sækja mig á lokahóf-
ið. Þegar þeir komu stóð ég uppi
í brekku, alklæddur í smalafötin
enda var ég að koma úr fjallinu.
Strákarnir dóu nánast úr hlátri
og eftir þetta festist Smalinn við
mig. Ég hef gaman af þessu.“
FÓTBOLTI Ingi Jónsson var eftirlits-
maður á vegum UEFA á leik AIK
Solna frá Svíþjóð og Levski Sofia í
Evrópudeildinni á fimmtudaginn.
Eftir leikinn brutust út gríðarlegar
óeirðir þar sem meðal annars var
ráðist að Inga.
„Það voru óeirðir á leik AIK og
Rosenborg fyrir um mánuði síðan.
Ég var þar og UEFA sendi mig
aftur út á þennan leik til að vera
augu og eyru sambandsins á svæð-
inu,“ sagði Ingi við Fréttablaðið.
„Eftir leikinn hljóp um fimmtíu
manna hópur inn á völlinn. Þeir
fóru í gegnum girðingu þar sem
sjónvarpsbílarnir voru en óeirða-
lögreglan henti þeim út. Svo þegar
við komum út þá var bara götubar-
dagi á milli lögreglumannanna
og þessara vitleysinga. Þetta er
ákveðinn hópur sem tengist AIK
þó ekki en gefur sig út fyrir að
styðja liðið,“ segir Ingi.
Hann telur að um 300 manns
hafi barist við um eitt hundrað
lögreglumenn. „Það réðust að mér
fjórir eða fimm menn og reyndu
að taka af mér símann minn og
myndavélina. Það tókst ekki, þeir
ná engu af svona víkingum,“ sagði
Ingi, léttur þrátt fyrir allt.
„Við vorum í mikilli hættu. Við
vorum á svæði þar sem leikmenn-
irnir komu út og þar biðu rútur
eftir leikmönnum. Þangað inn
rigndi grjóti og öllu lauslegu. Þeir
eyðilögðu nánast rútu Levski-liðs-
ins, voru með blys og létu öllum
illum látum,“ segir Ingi.
„Ég hef aldrei lent í þessu áður
og ég var orðinn verulega hrædd-
ur. Þetta var alvöru bardagi. Við
komumst ekki út fyrr en klukkan
ellefu,“ sagði Ingi.
Hann segir að AIK hafi verið
sektað um 15 þúsund evrur, rúmar
tvær milljónir íslenskra króna,
eftir leikinn gegn Rosenborg.
„Þetta er miklu alvarlegra mál en
það,“ sagði Ingi.
- hþh
Íslenskur dómaraeftirlitsmaður lenti í stórhættu:
Ég var orðinn
verulega hræddur
LÆTI Rúta Levski-liðsins var illa leikin eftir árásina. AFP
Kannast þú við eftirfarandi?
• Enginn tími fyrir hreyfingu og hollan mat
• Borða „ekki neitt“ en fitna samt
• Niðurrif og neikvæða hugsun
• Verki í baki, vöðvum eða liðum
• Svefnleysi, slen og streitu
• Átak án varanlegs árangurs
Vilt þú fá meira út úr lífinu?
Heilsulausnir eru námskeið fyrir þá sem vilja læra að lifa heilbrigðu lífi. Innifalið er:
Hreyfing í notalegu umhverfi - Sjúkraþjálfari kennir rétta líkamsbeitingu - Heilsuráðlegginar læknis - Aðhald og stuðningur
Vikuleg vigtun - Fræðsla um næringu – Matseðlar og innkaupalistar – Mæling á fituhlutfalli og vöðvamagni
Útreikningur á grunnefnaskiptum - Þolpróf - Markmið og jákvæð hugsun.
Heilbrigt líf – Heilsulausn 1
Námskeið fyrir hraust fólk sem vill tileinka
sér heilbrigt líf.
Hefst 30. ágúst – 4 vikur
Má, mi og fö kl. 07.30 eða 17.30
Verð kr. 29.900
Verð á námsk. + árskorti kr. 5.930 pr. mán í eitt ár
Betra líf – Heilsulausn 2
Námskeið fyrir þá sem glíma við mein í stoðkerfi s.s.
bakverki, álagsmeiðsl, vöðvabólgur og afleiðingar slysa
• Mat sjúkraþjálfara í byrjun og lok
• Hreyfing undir leiðsögn sjúkraþjálfara
Hefst 30. ágúst – 8 vikur
Má, mi og fö kl. 8.30 eða 16.30
Verð á námsk. + árskorti kr. 8.360 pr. mán í eitt ár
Léttara líf – Heilsulausn 3
Námskeið fyrir fólk sem glímir við lífsstílstengda sjúk-
dóma s.s. offitu, sykursýki og/eða hjartasjúkdóma
• Einstaklingsviðtal hjá lækni í upphafi og lok námskeiðs
• Hópvinna samkvæmt hugrænni atferlismeðferð
Hefst 30. ágúst – 12 vikur
Má, mi og fö, kl. 10.00, 14.00 eða 18.30 (uppselt)
Verð á námskeiði + árskorti 11.900 kr. pr. mán í eitt ár
Heilsuborg - Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - Sími: 560 1010 - www.heilsuborg.is
Taktu næsta skref
í átt að betri heilsu!