Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 6
6 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR Verið velkominn Ný krakkajóganámskeið að hefjast hjá Jóga stúdíó. Mánudagar 2-4 ára klukkan 16:30 Miðvikudagar 5-7 ára klukkan 16:30 Fimmtudagar 8-12 ára klukkan 16:30 Krakkajóga Seljavegi 2, gamla Héðinshúsinu, við hliðina á Loftkastalanum Nánari upplýsingar og skráning á jogastudio.is. Einnig hægt að skrá í síma 772-1025 Ágústa og 695-8464 Drífa. ÚTFÖR Mikið fjölmenni, um ell- efu hundruð manns, var við útför Hannesar Þórs Helgasonar sem var gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði klukkan eitt í gær. Færri komust að í kirkjunni en vildu og var athöfninni því varpað á skjá í íþróttasal Víðistaðaskóla. Séra Gunnar Rúnar Matthías- son jarðsöng og Björgvin Hall- dórsson, Stefán Hilmarsson, Páll Rósinkrans og Karlakórinn Þrestir sungu við athöfnina. Hannes Þór var fæddur 9. júlí 1973 og var því 37 ára er honum var ráðinn bani á heimili sínu við Háaberg í Hafnarfirði 15. ágúst síðastliðinn, - jss ÚTFÖRIN Um ellefu hundruð manns voru við útför Hannesar Þórs Helgasonar. Útför Hannesar Þórs Helgasonar fór fram frá Víðistaðakirkju í gær: Fjölmenni við jarðarförina EFNAHAGSMÁL Unnið er að lokafrá- gangi skjala til þess að hægt verði að leggja þriðju endurskoðun efna- hagsáætlunar Íslands og Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (AGS) fyrir stjórn sjóðsins. Þetta kom fram á reglubundnum upplýsingafundi sjóðsins í Washington í gær. Gerry Rice, yfirmaður ytri sam- skipta hjá AGS, svaraði spurn- ingum blaðamanna og var ekki á honum að skilja að óleyst deila um Icesave við Breta og Hollendinga gæti orðið til að tefja endurskoðun- ina. „Það sem ég get sagt um það mál er að náðst hefur samþykki sendinefndar- innar og verið er að ganga frá gögnum. Við sjáum enn fram á að málið verði lagt fyrir stjórnina í sept- ember,“ sagði hann. Í grein Stein- gríms J. Sigfússonar fjármálaráð- herra í Fréttablaðinu í gær segir hann þá sem nú tali digurbarka- lega um að þó hafi ekki gengið verr en raun beri vitni þrátt fyrir óleyst Icesave-mál vita minnst um bar- áttuna bak við tjöldin við að halda hlutum í horfinu. „Til dæmis að knýja fram aðra endurskoðun sam- starfsins við AGS þrátt fyrir stöðu Icesave-málsins,“ segir hann. Lausn Icesave sé nauðsynleg for- senda áframhaldandi endurreisn- ar og liður í að koma á eðlilegu ástandi í samskiptum við umheim- inn, opna aðgang að erlendum fjár- málamörkuðum og endurreisa orð- spor landsins. „Icesave-málið er því ekki einangrað vandamál held- ur hluti af mjög stórri heild, því að koma Íslandi áfram.“ - óká GERRY RICE Enn er stefnt að þriðju endurskoðun áætlunar Íslands og AGS í september: Unnið að lokafrágangi skjala Hefur þú sagt þig úr þjóðkirkj- unni? Já 25,5 Nei 74,5 SPURNING DAGSINS Í DAG: Ættu orkufyrirtæki frekar að selja græna orku til annarra fyrirtækja en álvera? Segðu skoðun þína á Vísi.is NORÐUR-KÓREA, AP Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, lagði leið sína til Norður-Kóreu í vikunni í þeirri von að fá látinn þar lausan Aija- lon Gomes, bandarískan ríkisborgara sem hefur setið þar í fangelsi síðan í janúar. Gomes var dæmdur til átta ára þrælkunarvistar þar í landi fyrir að hafa komið ólöglega inn í landið yfir landamærin frá Kína. Svo virðist sem Carter hafi feng- ið litlu ágengt því Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, virtist ekki hafa áhuga á að hitta hann heldur hélt í óvænta heimsókn til Kína. - gb Carter í Norður-Kóreu: Reyndi að fá fanga lausan JIMMY CARTER SJÁVARÚTVEGUR Höfundar svokall- aðrar samningaleiðar í sjávarút- vegi gera að tillögu sinni að meiri- hluta aflaheimilda verði úthlutað til útgerðarinnar með sérstökum samn- ingum. Því magni sem út af stendur verður úthlutað með byggðasjónar- mið eða önnur félagsleg sjónarmið að leiðarljósi. Reglur um strand- veiðar eru nefndar við úthlutun úr minni pottinum og þeim möguleika velt upp að hluti aflans yrði til sölu á tilboðsmarkaði. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er í skýrslunni talað um að fimm til tuttugu prósent af afla- heimildum falli í minni pottinn. Útgerðin fái því 80 til 95 prósent í sinn hlut á grundvelli heimilda sem þeir hafa öðlast í gegnum tíðina með upphaflegri úthlutun kvóta eða kvótakaupum í núgildandi kerfi. Höfundar telja mögulegt að gjald verði greitt af auðlindinni með þeim hætti að fast gjald verði greitt við samningsgerð. Til viðbótar verði greitt hlutfall auðlindarentu í ríkis- sjóð. Auðlindarentan er hagnað- ur útgerðarinnar eftir að kostnað- ur hefur verið dreginn frá tekjum vegna nýtingarinnar. Starfshópur um endurskoðun fisk- veiðistjórnunarkerfisins sat á mara- þonfundi í gær við að ljúka vinnu sem hófst fyrir rúmu ári. Grunnhug- myndin að samningaleiðinni í sjáv- arútvegi virðist hugnast meirihluta starfshópsins. Fyrir liggur að mik- ill meirihluti nefndarmanna hafn- ar hugmyndum um fyrningarleið og útfærslum á henni. Jón Steins- son, prófessor í hagfræði, hefur þróað fyrningarleiðina að beiðni formanns starfshópsins, Guðbjarts Hannessonar. Svokölluð tilboðs- leið eða leigutilboðsleið hans liggur Útgerðin fái 80 til 95% aflaheimilda Grunnhugmyndin að svokallaðri samningaleið í sjávarútvegi gerir ráð fyrir að stærsti hluti aflaheimilda verði í höndum útgerðarinnar á grundvelli upphaf- legrar úthlutunar afla eða kvótakaupa. Fyrningarleið virðist úr sögunni. AUÐLINDIN NÝTT Hlutverk nefndarinnar er risavaxið; að setja fram valkosti til þess að sátt náist um fiskveiðistjórnunarkerfið. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE Ár Álagning veiðigjalds (milljónir króna) 2004 695 2005 756 2006 421 2007 425 2008 180 2009 1.015* *Áætlun Tekjur ríkisins af veiðigjaldi 2004-2009 fyrir nefndinni en Jón telur að hún gæti skilað fjórtán milljörðum á ári í tekjur þegar fram í sækir. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, situr í nefndinni. Hann vildi ekkert tjá sig um hvaða leið eða útfærslur á fiskveiðistjórn- unarkerfinu eru til umræðu eða hvaða leið hugnist útgerðarmönn- um helst. Margoft hefur komið fram hvaða skoðun hagsmunaaðilar í sjávar- útvegi hafa á fyrningarleiðinni og útfærslum á henni. Hún þýðir upp- brot greinarinnar og fjöldagjaldþrot, að þeirra mati. Innan úr nefndinni hafa þau skilaboð borist að samn- ingaleiðin sé það fyrirkomulag sem hagsmunaaðilar berjist fyrir. svavar@frettabladid.is Ufsarlón tæmt Landsvirkjun hefur hafið tæmingu Ufsarlóns. „Ef áætlanir standast eiga íbúar á bökkum Jökulsár ekki að verða mikið varir við framkvæmdina,“ segir á vef Fljótsdalshrepps. FLJÓTSDALSHREPPUR Hvergerðingar aldrei fleiri Hvergerðingar hafa aldrei verið fleiri. Samkvæmt nýjustu tölum Hagstof- unnar eru þeir 2.324. Í tilkynningu bæjarnins er ánægju lýst með þetta og segist sveitarfélagið hafa unnið markvisst að því að bæta umhverfi og aðstöðu íbúa. HVERAGERÐISBÆR REYKJAVÍK Byggingarfulltrúinn vill að skúr sem reistur hefur verið án leyfis við verslunarhús- næðið í Nóatúni 17 verði rifinn. „Það er mat slökkviliðsins að skúrinn valdi mikilli sambruna- hættu ef hann brennur en hann liggur nánast við glugga á gafli hússins,“ segir byggingarfulltrúi. Eldhættan sé sérstaklega mikil því kofinn sé klæddur tjörupappa. Hann vill skýringar frá eiganda hússins, Íshamri ehf. og bendir á að skúrinn kunni að verða fjar- lægður á kostnað eigandans. - gar Byggingarfulltrúi vill skýringar: Eldfimur skúr við Nóatúnshús Terta í boði Fagnað er um þessar mundir 50 ára afmæli Sundlaugar Húsavíkur. Af því tilefni er íbúum og gestum sveitar- félagsins boðið í sund laugardaginn 28. ágúst. „Terta í boði,“ segir á vef Norðurþings. HÚSAVÍK FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.