Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 52
32 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> Í SCREAM 4
Anna Paquin, leikkonan úr
True Blood-sjónvarpsþáttun-
um, hefur samþykkt að leika
í fjórðu myndinni í Scream-
kvikmyndaflokknum. Courtney
Cox, Hayden Panettiere og Neve
Campbell munu einnig leika í
myndinni ásamt David Arguette.
Skemmti- og veitingastað-
urinn Austur fékk heldur
betur góðan gest í heim-
sókn á miðvikudags-
kvöld þegar Karl
Gústaf Svíakon-
ungur leit þar við
ásamt föruneyti
sínu.
Samkvæmt heim-
i ldum Fréttablaðs-
ins snæddi Karl kvöld-
verð á staðnum og skemmti
sér síðan fram á rauða nótt
í góðra vina hópi. Um tíu
manna lífvarðateymi sá um
að konungurinn gat skemmt
sér án þess að hafa nokkrar
áhyggjur. Ekki skemmdi það
fyrir að Karl og félagar höfðu
staðinn algjörlega út af fyrir
sig. Heimildir Fréttablaðsins
herma einnig að Karl hafi
verið mjög kurteis og alúð-
legur, enda ekki við öðru að
búast þegar slíkur þjóðhöfð-
ingi er annars vegar.
Karl hefur verið hér á
landi undanfarna daga í
einkaerindum og meðal ann-
ars rennt fyrir lax í Rangá.
Hann hefur einnig skoðað sig
um undir Eyjafjöllum.
Fregnir herma að hann
hafi ætlað af landi brott í
gær, vafalítið með góðar
minningar frá íslenskri nátt-
úru og hinu margrómaða
reykvíska næturlífi. - fb
Svíakóngur skálaði á Austur
AUSTUR Skemmti- og veitingastað-
urinn Austur fékk góðan gest á
miðvikudagskvöld.
KARL SVÍAKONUNGUR Karl leit
við á Austur ásamt föruneyti
sínu. Hann snæddi góðan mat og
skemmti sér síðan fram á rauða
nótt.
Tvöföld plata með sjaldheyrðu
efni söngkonunnar Emilíönu Torr-
ini er væntanleg 20. september á
vegum útgáfufyrirtækisins One
Little Indian. Á plötunni verða
smáskífulög sem Emilíana gaf út
hjá fyrirtækinu á árunum 1999 til
2001 ásamt endurhljóðblönduðu
efni og öðru fágæti. Þar á meðal
verða þrjú lög sem hún söng með
hljómsveitinni Slowblow: Flirt, 7-
Up Days og Weird Friendless Kid.
Emilíana hefur gefið út þrjár
plötur hjá One Little Indian. Fyrst
kom Love in The Time Of Sci-
ence árið 1999, síðan Fisherman´s
Woman 2005 og loks Me And Arm-
ini fyrir tveimur árum.
Tvöföld plata frá Emilíönu
EMILÍANA TORRINI Tvöföld plata með sjaldheyrðu efni Emilíönu Torrini er væntanleg
20. september.
Guðjón Davíð Karlsson mun
stjórna skemmtiþættinum
sem tekur við af Spaugstof-
unni. Þórhallur Gunnars-
son, fyrrverandi dagskrár-
stjóri Sjónvarpsins, snýr
einnig aftur á skjáinn og
hópurinn að baki síðasta
Áramótaskaupi mun einnig
stýra skaupi þessa árs.
„Nú er ég allt í einu orðinn stress-
aður, ég hafði ekkert gert mér
grein fyrir þessu eða var búinn að
gleyma þessu,“ segir Guðjón Davíð,
oftast kallaður Gói, en hann tekur
við laugardagskvöldum Ríkissjón-
varpsins af Spaugstofunni eftir
nánast tveggja áratuga nærveru
þeirra á skjánum. Umræddur dag-
skrártími er einn sá vinsælasti í
íslensku sjónvarpi og því ljóst að
augu þjóðarinnar verða á honum.
Guðjón tekur hins vegar skýrt
fram að nýju þættirnir verði ekk-
ert í líkingu við Spaugstofuna enda
dytti honum ekki í hug að feta í fót-
spor þeirra. Þátturinn verði blanda
af stuttum grínatriðum, svokölluð-
um sketsum, og svo viðtölum í sal.
Gói þvertekur hins vegar einnig
fyrir að vera næsti Hemmi Gunn,
svo öllum samlíkingum sé skellt á
Gói stjórnar laugardags-
þætti Ríkissjónvarpsins
NÝTT OG GAMALT FÓLK
Guðjón Davíð Karls-
son hefur fengið það
vandasama hlutverk
að taka við af Spaug-
stofunni. Hann verður
með laugardagsþátt
þar sem viðtöl-
um og stuttum
grínatriðum
verður blandað saman. Þórhallur
Gunnarsson mun snúa aftur á
skjáinn með viðtalsþátt á alvar-
legri nótum og Gunnar Björn
Guðmundsson mun leikstýra
Áramótaskaupinu aftur.
borðið og þær kláraðar. „Þetta er
ekki Gói í beinni, við ætlum að búa
til skemmtilega sketsa, eitthvað
gamanefni, en fyrst og fremst er
þetta ákaflega spennandi verkefni
sem ég hlakka til að taka þátt í.“
Laugardagsþátturinn með Guð-
jóni er hins vegar ekki eini nýi þátt-
urinn sem RÚV hyggst bjóða áhorf-
endum sínum upp á í haust. Að sögn
Sigrúnar Stefánsdóttur, dagskrár-
stjóra RÚV, mun Þórhallur Gunn-
arsson, fyrrverandi dagskrárstjóri
Sjónvarpsins, verða með viðtalsþátt
á alvarlegri nótunum á þriðjudags-
kvöldum klukkan hálf tíu en Þór-
hallur sneri aftur á skjáinn fyrir
nokkru þegar hann tók að sér föstu-
dags-Kastljósið um stundarsakir.
Sigrún hefur einnig gengið frá
ráðningu leikstjóra Áramótaskaups-
ins en hann verður sá sami og gerði
eftirminnilegt skaup í fyrra, Gunn-
ar Björn Guðmundsson. Spaugstof-
unni var boðið að gera Skaupið í ár
en þeir gáfu það frá sér vegna anna
á öðrum vígstöðvum. Hópurinn
allur sem skrifaði handritið að því
skaupi mun að öllum líkindum einn-
ig snúa aftur að stærstum hluta en
hann skipuðu Ari Eldjárn, Halldór
Högurður, Sævar Sigurgeirsson og
Anna Svava Knútsdóttir.
freyrgigja@frettabladid.is