Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 33
27. ágúst föstudagur 5 Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins. Gott bragð fyrir heilbrigðar tennur... IKAÞÁTT Besta bíómyndin: Fríða: Fight Club Smári: The Sting Pálmar: American History X Besta íþróttaliðið: Öll saman í kór: Reynir og Liverpool. Og Steven Gerrard er bestur! EKKI HREINRÆKTUÐ BLÚS- HLJÓMSVEIT Fyrri plata Klassart, Bottle of Blues, kom út árið 2007 og hlaut frábær- ar viðtökur gagnrýnenda, en árið áður höfðu Smári og Fríða unnið Blúslagakeppni Rásar 2 með sam- nefndu lagi. Þá kölluðu systkin- in sig Mean Mr. Mustard and His Sister Pam, með vísun í Bítlalagið fræga, en breyttu nafninu, að sögn vegna þess að Smári vildi ekki verða þekktur sem Smári sinnep. Pálmar gekk til liðs við sveitina eftir útkomu Bottle of Blues og í dag er sveitin skipuð systkinun- um þremur ásamt Björgvini Ívari Baldurssyni gítarleikara og Þor- valdi Halldórssyni trommara. „Í kjölfarið á sigrinum í Blúslaga- keppninni höfum við tekið eftir því að margir gera sjálfkrafa ráð fyrir því að við séum hreinrækt- uð blúshljómsveit, en það er mis- skilningur,“ segir Smári. „Blúsinn er kannski undirliggjandi í tónlist- inni okkar en við spilum ekki blús meðvitað. Í rauninni á ég erfitt með að lýsa músíkinni okkar svo vel sé, en aðalmálið er bara að gera þetta almennilega.“ Fríða Dís semur flesta textana á nýju plötunni, Bréf frá París, en auk texta frá Braga Valdimar Skúla- syni semur rithöfundurinn Vig- dís Grímsdóttir tvo texta, þar á meðal við titilllagið. „Ég hef aldrei komið til Parísar en það hefur verið draumur minn frá því ég var lítil stelpa,“ segir Fríða. „Vigdís er uppáhalds rithöfundurinn minn og þess vegna settum við okkur í samband við hana með það fyrir augum að hún semdi texta fyrir okkur og hún var svo yndisleg að taka okkur opnum örmum. Ég sagði Vigdísi söguna og hún samdi text- ann upp úr henni.“ HÖLDUM ÁFRAM AÐ VANDA OKKUR Auk fjölmargra tónleika að und- anförnu hafa meðlimir Klassart verið niðursokknir í verkefni tengt Hallgrími Péturssyni, einu helsta sálmaskáldi Íslendinga. „Hall- grímur var prestur í Hvalsnesi við Sandgerði og þar er meðal annars að finna legstein Steinunnar dótt- ur hans,“ segir Pálmar. „Tengslin eru því sterk og af því tilefni fórum við í allar kirkjur á Suðurnesjum og lékum lög eftir okkur við texta Hallgríms. Við einbeittum okkur að hans veraldlega skáldskap og stefnum á að gefa eitthvað af þessu efni út á næsta ári. Að öðru leyti ætlum við bara að halda áfram að vanda okkur og sjá hvert spilamennskan skilar okkur,“ segir Pálmar að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.