Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 10
 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR10 Það stendur margt til hjá nýjum formanni skipulagsráðs. Hann sér tækifæri til breytinga sem aldrei fyrr og ætlar að endurskilgreina skipulag borgarinnar með sjálfbær hverfi að leiðarljósi. Hann vill færa hluta Árbæjarsafns í miðbæinn, flugvöllinn burt og gera Banka- stræti að göngugötu. Þá á að sekta eigendur tómra húsa í niðurníðslu, stöðva útþensluna og sameinast öðrum sveitarfélögum. Páll Hjaltason arkitekt er nýr formaður skipulagsráðs Reykjavíkur og situr fyrir Besta flokkinn. Tiltölulega lítið hefur heyrst frá Páli og Besta flokknum síðan í kosningun- um, fyrir utan stefnuskrá þeirra og Samfylk- ingar. Páll segir að tíminn hafi verið vel nýtt- ur til undirbúnings. Besta fólkið hafi sett sig inn í mörg erfið mál, en nú dugi ekki loforð lengur. „Við þurfum að fara að sanna okkur,“ segir hann. Vinna með embættismönnum hafi svo byrjað í ágúst og Páll segir að mikilla tíð- inda sé að vænta á næstunni. Við settumst niður í gær á kaffihúsi Höfða- torgs, þar sem borgin er með skrifstofur sínar. Höfðatorg rís hátt og er afar umdeilt. Því liggur beint við að spyrja Pál álits á því. „Þetta er frekar hátt byggt og dæmi um skort á yfirsýn. Hefði fólk skoðað þetta aðeins betur hefði það eflaust áttað sig á því,“ segir hann. Páll telur þessa byggingu dæmi um að borgarkerfið sjálft hafi misst trú á miðbæn- um, að byggja höfuðstöðvar þarna en ekki á auðum svæðum nær kjarnanum. Hvað þá með umdeildan Listaháskóla við Laugaveg, sem þú teiknaðir? „Umræðan um Listaháskólann er dæmi um hversu yfirborðsleg umræðan verður oft um skipulagsmál. Ég vann að sjálfsögðu út frá gefnum forsendum og viðkvæmust var staðsetningin og ég réði henni ekki. Verk mín verða bara að standa fyrir sínu. En annars er Listaháskólinn ekki í umræðunni sem stend- ur og ég að sjálfsögðu vanhæfur til að fjalla um hann og mun ekki gera það hjá borginni,“ segir Páll. Endurskoðun og illur arfur Nýr meirihluti erfði hátt á sjöunda tug skipu- lagsmála þegar hann tók við skipulagsráði, segir Páll. Þar af séu allt að tíu sem snúast um mikilvæga punkta í miðbæ, sem torséð er að full sátt verði um. „Það sem við getum gert er að fara yfir þessi mál með almannahagsmuni að leiðar- ljósi og reyna að láta ekki kerfið stoppa það sem hægt er að setja af stað. Við viljum ekki eyða öllum peningunum í að greiða verktök- um skaðabætur. Þó virðast sum mál þannig vaxin að borgin neyðist til að greiða skaða- bætur, sama hvernig fer,“ segir Páll en vill ekki nefna dæmi um þetta. Skoðað verði hvort borgin hafi leyft of mikið byggingamagn á ýmsum reitum. Eignarréttur sé óvíða sterkari en á Íslandi og byggingaréttur falli þar undir. Vonandi bæti væntanlegt þingfrumvarp um mannvirkjalög eitthvað úr þessum málum. „En þrátt fyrir þennan arf fjögurra borgar- stjórna á fjórum árum eru gríðarleg tækifæri fram undan. Nú er logn á markaði, nánast öll arkitektastéttin atvinnulaus og byggingaiðn- aður rólegur. Þetta eru tækifæri sem gefast einu sinni á öld,“ segir Páll. Hið sjálfbæra þorp Hverju á helst að breyta? „Stærsta málið er að endurvekja þorpið sem sjálfbæra einingu, hverfið. Við eigum að hætta að hugsa út frá einstökum reitum og hugsa í hverfum í staðinn. Skapa samhengi ekki bara í götunni heldur í þorpinu. Hvað viljum við hafa í hverfi? Er það ekki skóli, heilsugæsla, sundlaug, og apótek til dæmis. Það vantar sárlega að koma tómstundum barna í göngufæri við heimilin. Verslun þarf að vera í hverfunum eins og var áður en einkabíllinn tók yfir,“ segir arkitektinn. Með þessu leysist mörg önnur vandamál. Umferð minnki þegar fólk þarf ekki að keyra borgina á enda eftir öllu: „Svo er þetta lýð- heilsumál, að fólk gangi eða hjóli, en ekki síst samfélagsmál. Fólk á að geta farið á græn svæði í þorpinu sínu, það á að geta hist úti í búð og rætt málin, fólk á að geta kynnst nágrannanum. Þetta er límið í samfélaginu, sem hefur leyst upp síðustu áratugi.“ Þessi vinna sé ekki uppfinning Besta flokksins, heldur að ýmsu leyti þegar hafin hjá borginni. Enn séu innviðirnir til staðar í hverfunum, til dæmis verslunarhúsnæði. Það þurfi bara að virkja þá. „Núna eru um tíu aðalborgarkjarnar skil- greindir sem hverfi í Reykjavík, en auðvit- að eru miklu fleiri hverfi í raun. Hverfi eru yfirleitt skilgreind út frá stofnbrautum, eins fáránlega og það hljómar,“ segir Páll og hlær. Hverfi skuli skilgreind út frá göngufæri, fjarlægðir í skrefum. Með endurlífgun „þorpsins“ skapist for- sendur fyrir beinu lýðræði, að íbúarnir stjórni uppbyggingunni. Þétting byggðar fari fram á forsendum hverfanna sjálfra, í samráði við íbúa. Hverfin haldi sínum kar- akter. Sem dæmi ætti ekki að byggja annað en steinuð hús í Norðurmýri. Sem minnir á Listaháskólann. Hver er kar- akter Laugavegar? „Miðbærinn er öðruvísi en önnur hverfi og með aðrar áherslur. Hann er okkar allra og hluti af honum er elsta hverfið. Þar hefur alltaf verið uppbygging. Því er erfitt að segja að hann eigi að vera í einhverjum einum stíl, þótt mikilvægt sé að vernda eins mikið af gömlum byggingum og hægt er, eins og þau voru byggð og á upprunalegum stað. Það má ekki þynna út hið gamla. Að þessu leyti er ég öfgafullur friðunarsinni!“ Hvað með uppbyggingu eins og á horni Aðalstrætis og Túngötu, þar sem nýtt og stórt er byggt í gömlum stíl? „Það er dæmi um þetta. Mörgum finnst það vel heppnað en mér finnst það ekki til eftirbreytni. Eiginlega öll uppbygging sem er í gangi núna er á forsendum gömlu byggð- arinnar. Mér finnst það ekki spennandi fram- tíðarsýn að byggja eingöngu upp á þennan hátt, en ég er ekki öfgafullur í því. Ég vil treysta arkitektum fyrir því að gera þetta vel að byggja í gömlum anda en það á ekki að vera það eina sem við gerum.“ Þú talar um uppbygginguna eftir brunann á horni Austurstrætis og Lækjargötu sem „klisjukennda“. „Já, ég hef gert það. Þarna á að steypa heilmikið og erfitt að sjá svo sem hvernig þetta verður. En ég hef nú lært að best er að þegja um hús þar til þau eru byggð.“ Páll telur óæskilegt að færa til gömul hús, en þó betra en að fórna þeim. Gröndalshús vill hann sjá á sínum stað og Árbæjarsafn eigi að skila miðborginni aftur einhverjum húsum. Færa ÍR-húsið aftur í Landakotsskóla og ef til vill færa Dillonshús á bílastæðið við Suðurgötu, þar sem það var áður. „Í húsum Árbæjarsafns í miðbænum sé ég fyrir mér að verði þjónusta, söfn og slíkt, en ekki búseta. Þau eiga að vera hluti af safninu áfram, enda okkar menningararfur.“ En tómu húsin í eigu verktaka sem hafa verið að grotna niður, sum í mörg ár með til- heyrandi brunahættu og öðru. Hvað getur borgin gert til að bæta úr þessu? „Ég trúi því nú ekki að verktakarnir séu allir að gera þetta vísvitandi. Það var unnið mikið starf í tíð Ólafs F. Magnússonar og síðar Hönnu Birnu við að kortleggja þessi hús öll. Borgin getur krafist þess að ytra byrði húsanna sé í lagi og beitt dagsektum. Það má búast við slíkum aðgerðum á næstu vikum, en við förum mildilega í þær. Á bak við mörg þessara húsa er persónuleg harmsaga. Við höfum reynt að hafa uppi á sumum eigend- um þeirra og fundum til dæmis einn í fang- elsi. Við viljum því sýna mildi, en þetta er borgarstjóra mjög hugleikið og ég tek undir með honum.“ Strætó og sveitarfélögin Í samhengi við nýtt líf hverfanna þarf að efla almenningssamgöngur. Páli hugnast vel að hafa strætisvagna á forgangsakrein- um en vill ganga lengra en reynt hefur verið svo sem á Miklubraut. Víða tíðkist að stræt- isvagnar stýri umferðarljósum og þurfi því sjaldnar að nema staðar. Páll er áhugamaður um að græn torg komi í stað bílastæða í miðbænum. Þar eigi að fækka bílastæðum og gera fólki erfiðara fyrir að vera með einkabíl: „Borg er bilið á milli húsanna, eins og Jan Gehl arkitekt segir, almenningsrýmið, þar sem kynslóð- ir mætast,“ segir Páll. Bættar almennings- samgöngur séu ekki einkamál Reykjavíkur heldur þurfi að eiga um þær samstarf við nágrannasveitarfélögin. En hvernig meturðu líkurnar á því að Garð- bæingar eða Seltirningar fari að setja aukið fé í strætisvagna? „Það þarf að skoða þetta í víðara samhengi. Auka samstarfið í skipulagi og helst að sam- eina öll þessi sveitarfélög. Það er mjög sér- kennilegt að fólkið þar greiði lægra útsvar en Reykvíkingar og sæki svo til dæmis vel- ferðarþjónustu til okkar.“ Páll vill stuðla að sameiningu sveitarfélaganna á höfuðborg- arsvæðinu og bætir við hlæjandi að annars verði að standa við kosningaloforð um tollhlið fyrir Seltirninga. „Útþensla borgarinnar er komin úr bönd- um og við ætlum að stöðva hana. Flestir búa í austurhluta og vinna í vesturhluta. Eitt svæði sem fer brátt í endurnýjun til að sporna við þessu eru Elliðaárvogar, iðnaðarsvæð- ið milli Ártúnsbrekku og Bryggjuhverfis, Geirsnefs og Gullinbrúar. Þar á að taka illa farið iðnaðarhverfi og blanda inn byggð, en færa þyngsta iðnaðinn á Kjalarnes. Þetta er stærsta uppbyggingarsvæðið sem er í hendi,“ segir Páll. Þú vilt gera einkabílstjórum erfitt fyrir í miðbæ. Verður ekki verslunarfólk brjálað? „Við höfum verið að gera tilraunir með að loka götum í sumar og það er almenn ánægja með þær. Jafnvel hjá verslunarmönnum, sem kom svolítið á óvart. Ég sé fyrir mér að loka Bankastræti fyrir umferð og Laugavegi alveg upp að Klapparstíg. Við skoðum það betur í ljósi sumarlokananna. Samhliða þessu verði skoðað hvernig lífga megi við Laugaveg með nútímavæðingu verslunarhúsnæðis, án þess að skemma kar- akter götunnar: „Það má ekki taka burt þetta óvænta og tenginguna við söguna. Ekki sótt- hreinsa. Þetta er erfitt samspil.“ Flugvöllinn burt Ekki verður farið í Sundabraut á kjörtímabil- inu, að sögn Páls. Hann saknar þingmanna Reykjavíkur, sem hafi ekki sama metnað fyrir kjördæmi sínu og landsbyggðarþing- menn. Miklabraut verði ekki lögð í stokk heldur: „Við erum ekki að fara að rífa eða byggja eitthvað stórt, við ætlum fyrst og fremst að laga til.“ Hvað með Reykjavíkurflugvöll og hugsan- lega samgöngumiðstöð þar, sem margir kalla flugstöð? „Flugvöllurinn fer samkvæmt aðalskipu- lagi sem unnið hefur verið eftir og ég sé enga ástæðu til að breyta því, og í samræmi við byggingarþörf borgarinnar. Persónulega tel ég að framtíðarstaðsetning hans eigi að vera í Keflavík með góðum samgöngum í bæinn. Það kostar brot af kostnaði lestar að setja hraðbraut fyrir rútur, sem fara álíka hratt,“ segir hann. „Ég hef miklar efasemdir um samgöngu- miðstöðina og vonast til að við tökum ákvörð- un um hana á næstu vikum eða mánuðum.“ Eru ekki allir aðrir flokkar í borgarstjórn, ríkisstjórnin og lífeyrissjóðirnir á því að byggja hana? „Jú, þetta er dálítið skrýtið. En maður á eftir að láta sannfæra sig um að þetta sé málið. Ég á eftir að fá endanlega kynningu á þessu en við skulum sjá til hvað verður.” Vill sætta borgarana Að síðustu segir Páll að lögð verði áhersla á að ná sátt um borgina, skapa frið um fram- kvæmdir. „Við verðum að fá frið í þessa borg og hætta að rífast. Þetta er hægt. Borgin er okkar allra og við ætlum að stórauka upplýs- ingagjöf til að slá á tortryggni fólks. Partur af því að vera ábyrgur borgari er að fylgjast með því sem er að gerast. Ein leið til þess að skapa sátt er að raddir fólksins fái að heyr- ast,“ segir Páll og boðar ýtarlegar kynning- ar í Ráðhúsi. Loðað hafi við borgarstjóra hingað til að þeir hafi haft annað augað á framtíð sinni í landsmálum. Ef til vill sé þess vegna stórt þrívíddarkort af Íslandi í sal ráðhússins. „Við ætlum að skipta því út fyrir þrívíddarkort af höfuðborginni,“ segir formaður skipulagsráðs og brosir. Boðar endurkomu hins sjálfbæra þorps VIÐ REYKJAVÍKURTJÖRN MEÐ BOXERNUM ROCKY Arkitektinn Páll er æðstiprestur skipulagsmála í borginni, en hélt að Besti flokkurinn yrði bara grín sem tæki enda. Hann lítur á starfið sem þegnskyldu sína næstu fjögur árin en býst svo við að fara aftur að vinna sem arkitekt í fullu starfi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRÉTTAVIÐTAL: Páll Hjaltason, arkitekt og nýr formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar Klemens Ólafur Þrastarson klemens@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.