Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 64
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nikótínlaus borgarstjóri
fær stuðning á Facebook
Jón Gnarr borgarstjóri átti sinn
fyrsta nikótínlausa dag í gær.
„Byrjaði að reykja 13 ára og hef
verið nikótínfíkill síðan,“ skrifaði Jón
Gnarr í fyrrakvöld á Dagbók borgar-
stjóra á Facebook. Hann segist
hafa verið háður nikótíntyggjói í
fimm til sex ár auk þess að reykja
vindla við sérstök tækifæri. „Þessu
lauk í kvöld. Ég er ekki lengur þræll
nikótíns. Þvílíkt frelsi!“ 520 borgar-
búar lýstu ánægju með framtakið á
síðunni og sextíu og átta tjáðu sig
um það sérstaklega. Í hádegishléi
sínu í gær gerði borgarstjórinn svo
Facebook-vinum sínum grein fyrir
því hvernig bindindið gengi: „Takk
fyrir stuðninginn með að
hætta nikótíni. Málið er
að ég áttaði mig á því
að ég er ekki að missa
neitt vegna þess að það
var aldrei neitt, nema
mín eigin blekking. Mun
ekki eyða heilsu
minni, tíma,
eða pening-
um í nikótín
framar.“
Jóel stofnar ofurgrúppu
Saxófónleikarinn Jóel Pálsson
hefur stofnað hljómsveitina Horn
sem ætlar að spila splunkunýja
tónlist á Jazzhátíð Reykjavíkur
í kvöld. Tónleikarnir verða á
skemmtistaðnum Sódómu og með
Jóel á sviði verður einvala lið hljóð-
færaleikara, eða þeir Davíð Þór
Jónsson, Eyþór Gunnarsson, Einar
Scheving og Ari Bragi Kárason. Í
kjölfar tónleikanna bregða þeir sér
í hljóðver um helgina
þar sem nýju lögin
verða tekin upp.
Jazzhátíð Reykjavíkur
lýkur á sunnudaginn
á afmælisdegi saxófón-
leikarans Charlie Parker.
Af því tilefni verður
þessi lokadagur
hátíðarinnar helgað-
ur honum. -fb
Fréttablaðið er með 201%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
74,9%
24,9%
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið,
18–49 ára. Könnun Capacent í maí til júlí 2010.
1 Fær ekki að tryggja barn með
athyglisbrest
2 Morðið í Hafnarfirði:
Karlmaður í haldi
3 Elin Nordegren: Gekk í
gegnum helvíti
4 Svíakóngur drakk kampavín á
Austur
5 Bæjarstjóri gáttaður á bréfi
forstjóra Magma