Fréttablaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 62
42 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. skál, 6. slá, 8. rjúka, 9. kerald, 11.
í röð, 12. mögla, 14. bragsmiður, 16.
kallorð, 17. tala, 18. erlendis, 20. tveir
eins, 21. skref.
LÓÐRÉTT
1. fituskán, 3. fíngerð líkamshár, 4.
ástir, 5. efni, 7. heimakoma, 10. rölt,
13. hafið, 15. ryk, 16. híbýli, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ílát, 6. rá, 8. ósa, 9. áma,
11. tu, 12. kurra, 14. skáld, 16. hó, 17.
níu, 18. úti, 20. ff, 21. stig.
LÓÐRÉTT: 1. brák, 3. ló, 4. ástalíf, 5.
tau, 7. ámusótt, 10. ark, 13. rán, 15.
duft, 16. hús, 19. ii.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Geir Waage.
2 Hjartaáfalls.
3 Barneignir.
Rithöfundurinn Ólafur Gunnarsson
kemur við sögu í nýrri ljóðabók banda-
ríska bít-skáldsins Rons Whitehead, The
Storm Generation Manifesto. Þeir eru
skráðir höfundar samnefnds ljóðs sem
birtist í bókinni. Einnig er þar mynd af
þeim saman á góðri stundu á Íslandi.
„Þetta ljóð varð þannig til að ég kom
með nokkur stikkorð og hugmyndir en
það var í raun Ron sem samdi það. Ég
vildi endilega að hann skrifaði sjálfan
sig fyrir því en hann er svo mikill höfð-
ingi og var mér svo þakklátur fyrir að
eiga nokkrar hugmyndir í ljóðinu að hann
gerir mig að meðhöfundi,“ segir Ólafur.
Hann þýddi á sínum tíma skáldsögu bít-
skáldsins Jacks Kerouac, On the Road, og
kynntist Whitehead fyrir nokkrum árum
er hann ritstýrði bók í tilefni af fimmtíu
ára afmæli sögunnar. Síðan þá hafa þeir
verið í góðu sambandi.
Whitehead tók þátt í bít-hátíð á heimili
Ólafs fyrir tveimur árum og núna vill bít-
skáldið endurtaka leikinn með enn stærri,
fjögurra daga hátíð. Hún á að heita The
First Storm Generation og verður haldin
á þremur stöðum hér á landi næsta sumar
á Jónsmessunni. „Þetta sem Ron er að
setja í gang er í raun upphafið að nýrri
bókmenntahreyfingu sem á að skilja sig
frá bít-kynslóðinni á svipaðan máta og
bít-kynslóðin skildi sig frá lost-kynslóð-
inni,“ útskýrir Ólafur.
Til stóð að halda stóra bít-hátíð á Eiðum
á síðasta ári en ekkert varð af henni
vegna kreppunnar. Sigurjón Sig-
hvatsson ætlaði að gera heimild-
armynd um hátíðina og gestir á
borð við leikarana Ethan Hawk,
Mickey Rourke og Johnny Depp,
vinir Whiteheads, voru nefndir til
sögunnar. Hvort þeir láti sjá sig
hér á landi næsta sumar á allt saman
eftir að koma í ljós. Engu að síður er
búist við nokkur hundruð gestum frá
Bandaríkjunum á hátíðina. - fb
Skipuleggja Storm-hátíð á Íslandi
„Þetta er fyrsta stuttmyndin sem
mér fannst nógu góð til að ég þyrði
að senda hana frá mér,“ segir kvik-
myndagerðarmaðurinn Logi Hilm-
arsson. Stuttmynd hans, Þyngdar-
afl, keppir í flokki stuttmynda
á kvikmyndahátíðinni Nordisk
Panorama sem fram fer í Berg-
en í Noregi dagana 24. til 29. sept-
ember.
Þyngdarafl var frumsýnd á stutt-
myndahátíðinni Northern Wave á
Grundarfirði í vetur og voru mót-
tökurnar svo góðar að Logi ákvað
að senda myndina áfram á Nord-
isk Panorama. „Ég varð svolítið
hissa yfir því hvað hún fékk góðar
móttökur. Ég var búinn að liggja
svo lengi yfir henni að ég var kom-
inn með algjört ógeð, en þegar ég
horfði á hana í bíósalnum og sá
viðbrögð fólks áttaði ég mig á því
að myndin var ekki alslæm,“ segir
Logi. Hann stundaði nám við kvik-
myndaskóla í París auk þess sem
hann hefur starfað mikið innan
kvikmyndabransans hér á landi
undanfarin ár.
Að sögn Loga fjallar Þyngdarafl
um ást, vináttu og trú og áhrif trú-
arinnar á samband manna. Leik-
ararnir Magnea Valdimarsdóttir,
Magnús Guðmundsson og Damon
Younger fara með hlutverk í mynd-
inni.
Inntur eftir því hvaða þýðingu
þetta hafi á feril hans segir Logi
þetta fyrst og fremst mikið hrós.
„Þetta er auðvitað mikil viður-
kenning fyrir mig sem kvikmynda-
gerðarmann því það eru fáar
myndir sem komast að á hátíðinni
og vonandi opnar þetta nýjar dyr í
framtíðinni,“ segir hann og bætir
við hlæjandi: „Og nú þarf ég ekki
lengur að skammast mín þegar
ég segist vera kvikmyndagerðar-
maður.“
Sjónvarpið hefur þegar keypt
sýningarréttinn að myndinni og
því ættu landsmenn að geta barið
hana augum innan tíðar. - sm
Logi á Nordisk Panorma
ÓLAFUR GUNNARSSON Ólafur kemur
við sögu nýrri ljóðabók bandaríska
bít-skáldsins Rons Whitehead.
Alexander Rybak, norska Euro-
vision-stjarnan sem sló eftirminni-
lega í gegn með laginu Fairy Tale
í Mosvku 2008, treður upp á jóla-
tónleikum Björgvins Halldórsson-
ar, Jólagestir 2010. Rybak er önnur
erlenda stjarnan sem kemur fram
á tónleikunum. Eins og Frétta-
blaðið greindi frá fyrir skömmu
mun breski óperusöngvarinn Paul
Potts einnig syngja á þeim en tón-
leikarnir verða í Laugardalshöll
þann 4. desember. Því skal hald-
ið til haga að Rybak kemur ekki
fram á tónleikunum á Akureyri
þann 11.desember. Rybak mun
syngja dúett með annarri Euro-
vision-stjörnu, Jóhönnu Guðrúnu
Jónsdóttur, en hún hreppti einmitt
annað sætið í keppninni í Rúss-
landi, sællar minningar.
Lítið hefur farið fyrir Jóhönnu
Guðrúnu að undanförnu en hún
neyddist til að taka því rólega eftir
mikla vinnutörn vegna liðagigtar
sem hún þjáist af. Hún hefur því
eytt tímanum í að semja lög en liða-
gigtinni geta fylgt miklir verkir,
hiti og þreyta. „Það eru allir með
sitt, þetta er bara mitt og ég er
mjög góð þegar ég er á réttum lyfj-
um.“ Þetta verður í fyrsta skipti
sem Jóhanna og Rybak syngja
saman en eflaust hafa margir beðið
eftir að sjá þennan dúett eftir stór-
kostlega frammistöðu í Eurovision.
„Þetta stóð alltaf til en það var svo
mikið að gera hjá okkur báðum
strax eftir keppnina að það gafst
aldrei tími til þess,“ segir Jóhanna,
sem mun einnig syngja á jólatón-
leikum í Svíþjóð á þessu ári.
Rybak hefur tekið Evrópu með
trompi eftir sigurinn í Eurovision.
Og á stundum hefur álagið orðið
helst til of mikið en fyrr í sumar
gengu þær sögur fjöllum hærra
að Rybak væri að fara yfirum í
norskum og sænskum fjölmiðl-
um. Þá hafði hann gengið í skrokk
á fiðlu sinni á tónleikum í Gauta-
borg og neyddist til að hætta við
að koma fram á skemmtun fyrir
sænska ríkissjónvarpið. Rybak
hefur hins vegar sagt að hann
hafi það fínt, hann hafi einfald-
lega ofkeyrt sig enda verið á nán-
ast stanlausu ferðalagi síðan í
Moskvu.
freyrgigja@frettabladid.is
JÓHANNA GUÐRÚN: ÞETTA VERÐUR FLUGELDASÝNING
Jóhanna Guðrún og Alex-
ander Rybak syngja hjá Bó
MIKIÐ HRÓS Stuttmynd Loga Hilmarssonar keppir í flokki stuttmynda á Nordisk
Panorama kvikmyndahátíðinni sem fram fer í Noregi í lok september.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LANGÞRÁÐ STUND
Íslendingar verða þeir fyrstu sem fá að sjá
Jóhönnu Guðrúnu og Alexander Rybak
á sviði en þau koma fram á jólatónleikum
Björgvins Halldórssonar þann 4.desember í
Laugardalshöll.
Ásgeir Þór Davíðsson
hefur um nokkurt
skeið rekið skemmti-
staðinn Eighties við
Grensásveg en nú
hefur hann fengið
nóg af þessum
áratug og stað-
urinn fengið nýtt
nafn. Hann heitir
nú Replay en það er
vísun í nafnið á gamla
staðnum, Steak & Play.
Ásgeir mun ekki sjálfur stjórna
staðnum heldur hefur dóttir hans,
Jakobína, tekið við lyklavöldum.
Eins og Fréttablaðið
greindi frá verður
hápunktur söfnunar-
innar Á allra vörum
í beinni útsendingu
Skjás eins í kvöld.
Tilgangurinn að
þessu sinni er að
safna fyrir Ljósið,
endurhæfingar-og
stuðningsmiðstöð
fyrir fólk sem
hefur fengið krabbamein eða blóð-
sjúkdóma. Fjöldi þekktra andlita
mun svara í söfnunarsíma átaksins
en stjórnendur þáttarins verða þau
Inga Lind og Sölvi Tryggvason.
Meðal þeirra sem sitja við
símtækin í símaveri já.is
verða Dagur B. Eggerts-
son, Sigfús Sigurðsson
og mamma hans,
Margrét Sigfúsdóttir. Þá
mun Vigdís Finnboga-
dóttir einnig svara
nokkrum símtölum
sem og Gaui litli,
Ragnhildur Gísla-
dóttir og Randver
Þorláksson en sá
sem verður eflaust
flottastur í tauinu
er Karl Berndsen.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Þessa dagana set ég daglega
á Sombody gonna get pregnant
með Ninjasonik og dilla mér
aðeins, til að fá jafnvægi á móti
því slaka ég á við að hlusta á
Alesund með Sun Kil Moon. Svo
var ég að enduruppgötva hljóm-
sveitina Grizzly Bear.“
Lilja Hrönn Helgadóttir hjúkrunarfræði-
nemi.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Gildir
ágúst
2010
úsk
orti
ð OP
IÐ KLe
ikhú
sko
rtið
201
0/2
011
Leikhúsk
ort
4 miðar á
aðeins
9.900 kr.
Fíasól (Kúlan)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Hamskiptin (Stóra sviðið)
Nígeríusvindlið (Kassinn)
Lau 11/9 kl. 15:00 Ö
Sun 12/9 kl. 13:00
Sun 12/9 kl. 15:00 Ö
Fim 16/9 kl. 20:00 U
Fös 17/9 kl. 20:00 Ö
Lau 18/9 kl. 20:00 Ö
Sun 19/9 kl. 19:00
Fös 24/9 kl. 19:00
Lau 25/9 kl. 19:00
Sun 29/8 kl. 20:00 Ö
Fös 3/9 kl. 20:00
Lau 11/9 kl. 20:00
Lau 28/8 kl. 20:00
Lau 4/9 kl. 20:00
Lau 4/9 kl. 13:00 Ö
Lau 4/9 kl. 15:00 Ö
Lau 11/9 kl. 13:00
Fös 10/9 kl. 20:00 Ö
Lau 11/9 kl. 20:00 Ö
Sun 12/9 kl. 20:00
Fim 9/9 kl. 19:00 Ö
Fös 10/9 kl. 19:00 Ö
Lau 18/9 kl. 19:00 Ö
Fös 27/8 kl. 20:00 Ö
Fös 27/8 kl. 20:00 Ö
Sun 29/8 kl. 20:00 Ö
Fim 26/8 kl. 20:00
Fös 27/8 kl. 20:00
Lau 18/9 kl. 13:00
Lau 18/9 kl. 15:00 Ö
Sun 19/9 kl. 13:00
Sun 19/9 kl. 19:00
Fim 23/9 kl. 20:00
Fös 24/9 kl. 20:00 Ö
Fös 1/10 kl. 19:00
Lau 2/10 Kl. 19:00
Sun 12/9 kl. 20:00 i
Sun 5/9 kl. 20:00
50 sýningar fyrir fullu húsi á síðasta leikári!
***** Fbl *****Mbl
Leikhúsveisla sem allir verða að upplifa! Sýningar hefjast kl. 19:00
Rómið sýning Vesturports í Þjóðleikhúsinu á ný eftir sigurgöngu víða um heim. Örfáar sýningar!
Aðeins sýnt til 5. september