Fréttablaðið - 27.08.2010, Síða 25
FÖSTUDAGUR 27. ágúst 2010 3
„Tangó hefur yfir sér ástríðufull-
an blæ því dansinn er bæði þokka-
fullur og fágaður. Í tangó tekur
dansparið sporin mjög þétt saman
og þá myndast náið samband þar
sem þarf að einbeita sér að lík-
amstjáningu mótdansarans í spuna
dansins,“ segir Ólöf Ingólfsdóttir,
tangódansari og formaður Tangó-
félagsins sem um helgina blæs í
sjöunda sinn til tangóhátíðarinn-
ar Tango on Iceland í Iðnó, en með
norrænum fókus í þetta sinn.
„Argentískur tangó er eins og
tungumál, því kunni menn að
dansa hann geta þeir dansað jörð-
ina á enda því alls staðar er hann
dansaður eins. Því viljum við koma
Íslandi meira á kortið sem tangó-
landi og að þessu sinni mynda
sterkari tengsl við tangódansara
á Norðurlöndum, þar sem tangó-
menning er sterk,“ segir Ólöf en
áréttar að ekki megi rugla saman
argentískum tangó og finnskum í
þessu samhengi, þar sem finnskur
tangó sé sérfyrirbæri.
„Íslenskum tangódönsurum
fjölgar jafnt og þétt og á tangó-
hátíðinni gefst þeim tækifæri til
að auka færni sína undir leiðsögn
frábærra kennara sem koma frá
Búenos Aíres, Kaupmannahöfn,
Gautaborg og Málmey. Hátíðin er
líka kjörinn vettvangur fyrir þá
sem vilja kynna sér argentínskan
tangó og þeir geta skráð sig á byrj-
endanámskeið eða litið við á tangó-
dansleik í kvöld eða annað kvöld
í Iðnó. Þar munu kennarar stíga
á stokk til að sýna listir sínar og
tangódansandi almenningur taka
sporið sér til ánægju og yndisauka
undir tangótónum dansks tangó-
plötusnúðs í kvöld en tangósveit-
arinnar Silencio á morgun.“
Spurð hvort allir geti lært að
dansa tangó segir Ólöf svo vera.
„Tangóinn er ekki flókinn, en það
þarf eyra fyrir tónlist og takti.
Tangó liggur misvel fyrir fólki, en
með þjálfun geta allir notið þess að
dansa. Í tangó eru ekki dansaðir
fyrirfram ákveðnir dansar heldur
er grunnsporum raðað saman og
hægt að spinna endalaust. Þá skipt-
ir máli að báðir aðilar séu skap-
andi, en einmitt þetta persónulega
sköpunarfrelsi er svo heillandi
við tangó því enginn heyrir tón-
list á alveg sama hátt og getur því
farið eigin leið í spunanum,“ segir
Ólöf sem hlakkar til að dansa út í
rökkvaða sumarnóttina í Iðnó, þar
sem dansað verður frá morgni til
kvölds.
„Þegar hitnar í hamsi opnum við
út, tangótónar berast út á tjarnar-
bakkann og þá er aldrei að vita
nema svanir og endur dilli sér með
okkur í takt,“ segir hún hlæjandi
og hvetur sem flesta til að koma og
dansa í Iðnó um komandi helgi.
Dagskrá hátíðarinnar er að finna
á heimasíðu Tangófélagsins www.
tango.is. thordis@frettabladid.is
Dansað af
ástríðu í Iðnó
Það verða tignarlegir karlmenn sem leiða konur sínar í kynþokkafull-
um tangódansi í Iðnó um helgina, en þar fer fram tangóhátíð Tangófé-
lagsins og öllum áhugasömum er boðið að stíga hinn exótíska dans.
Ólöf Ingólfsdóttir er formaður Tangófélagsins sem heldur hátíðina Tango on Iceland
í Iðnó um helgina. Í bakgrunni má sjá tangómeistarana Hany Hadaya og Bryndísi
Halldórsdóttur stíga eldheitan tangó. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dalalæðurnar er félag sem stofnað
var í janúar. Í því eru konur sem
búsettar eru í Mosfellsdal eða tengd-
ar dalnum
með einum
eða öðrum
hætti.
Markmið
félagsins
er að láta
gott af sér
leiða.
Fyrsta
góðverk-
ið verður
að styrkja
starfsemina
í Reykjadal. Það
ætla Dalalæðurnar að gera með því
að halda flóamarkað í Reykjadal þann
4. september næstkomandi milli
klukkan 11 og 16.
Þær munu taka á móti
dóti á markaðinn frá
þeim sem gefa vilja
og verður mót-
takan þriðjudag-
inn 31. ágúst
og föstudag-
inn 3. sept-
ember milli
klukkan
17 og 20
í Reykja-
dal. Allur
ágóði af söl-
unni renn-
ur óskipt-
ur til Reykja-
dals.
Dalalæður halda
flóamarkað í
Reykjadal
KVENFÉLAGIÐ DALALÆÐURNAR Í MOS-
FELLSDAL TAKA VIÐ DÓTI Á FLÓAMARK-
AÐ Í NÆSTU VIKU EN ÞAÐ VERÐUR
SELT TIL STYRKTAR STARFSEMINNI Í
REYKJADAL.
Ég hef verið sjúklingur í nokkur ár.
Með vefjagigt og mikla verki um
allan líkamann, auk þess sem ég hef
fengið mikinn bjúg vegna lyfjanna
sem ég hef tekið til að geta komist í
gegnum daginn.
Ég keypti mér í apríl aada drykk-
inn góða í svokallaðri “belju” og
fór að fá mér 1 lítið glas á fastandi
maga á morgnana. Ég hætti jafn-
framt að taka inn öll mín gigtarlyf
og aðrar verkjatöflur.
Eftir viku fann ég ekki fyrir
neinum verkjum. Síðan gerðist það
ótrúlega að ég, sem hef ekki getað
haldið á barnabörnum mínum
vegna handleggjanna á mér sem
voru hálf máttlausir, fór að geta
haldið á þessum elskum og notið
þess að vera með þau í fanginu án
þess að eiga á hættu að fá verki og að maður
tali nú ekki um hræðslu að missa þau.
Brjóstsviði hvarf.
Ég prófaði að hætta í viku til 10 daga að
drekka drykkinn til að sannfærast um að ég
væri ekki ímyndunarveik og verkirnir komu
aftur. Ég fór því og keypti mér aftur brúsa.
Ég tek alltaf inn drykkinn á morgnana og
ætla að halda því áfram um ókomna tíð því
hann hefur breytt lífi mínu algjörlega. Eftir
þessa mánuði hef ég ekki tekið inn nein
gigtarlyf né verkjalyf og ætla ekki að gera
enda engin þörf á því og auk þess hefur
þetta verið mest vökvalosandi drykkur sem
ég hef kynnst.
Í dag tek ég eingöngu blóðþrýstingslyf og
vítamín, er farin að missa mörg kíló og er
verkjalaus.
Takk fyrir að leyfa mér að kynnast þessum
yndislega töfradrykk.
Reynslusaga:
Anna Árnadóttir
hann nú í öllum helstu mat-
vöruverslunum og líkamsrækt-
arstöðvum um allt land. Ólaf-
ur segir virkni og vinsældir
drykkjarins liggja ekki síst í
því að í hann er eingöngu notað
sérvalið og ferskt hráefni.
„Þetta er íslensk fram-
leiðsla úr fersku engifer,
myntu,
límónu,
hrásykri
og vatni
en drykk-
urinn er
búinn
til hér á
landi eftir
minni eigin upp-
s k r i f t . “ I n n a n
skamms mun Ólafur
flytja hráefnið beint
inn frá Indlandi en
á Indlandi er mest
ræktað af engifer í
heiminum. Engifer-
ið sem stefnt er að að
nota í aada-drykkinn
er ræktað á Suður-
Indlandi en Ólafur
segir þar bestu skil-
yrði til ræktunar og
þaðan komi öflugasta
engiferið. „Veðurfar
og loftslag á Suður-
Indlandi er hagstætt en engi-
fer er ræktað í 1500 metrum
yfir sjávarmáli. Við höfum
valið okkur einn rækt-
anda sem við fáum send-
ingar frá en það er lykilatriði
fyrir gæði framleiðslunnar
að ekki sé verið að nota mis-
munandi engifer frá mismun-
andi stöðum.
Við munum
flytja um tvö
tonn af engi-
fer inn á mán-
uði og förum í
lok næstu viku
til Indlands að
hitta bóndann
og þá sem sjá
um að senda
okkur hráefn-
ið. Við ætlum
að taka ferðina
upp á mynd-
band og birt-
um þau myndskeið á heimasíð-
unni okkar, www.mysecret.is.
Þar getur fólk séð hvaðan hrá-
efnið kemur og hvernig það
er unnið. Okkur finnst mikil-
vægt að fólk sjái það en flestir
heilsudrykkir á markaðnum í
dag eru búnir til úr þykkni, en
það munum við aldrei gera með
aada-drykkinn.“
Ég heiti Guðrún og er 38 ára gömul. Mig langaði að segja frá hvaða áhrif
aada drykkurinn hefur á mig.
Ég var búin að vera lasin í 8 vikur, með ennis- og kinnholur mjög
stíflaðar og virkilega slöpp. Ég var komin mjög neðarlega andlega og var
á leiðinni til læknis að fá lyf. Ég hef frá 2 ára aldri átt við ristilvandamál að
stríða. Ég hef ekki sofið vel í mörg ár og vaknað 5 til 7 sinnum á næturnar.
Ég var með verki í öllum líkamanum og orkulaus.
En svo kynntist ég þessum undradrykk. Nú er ég laus við kvefið, öll
miklu léttari andlega og ég sef eins og ungbarn. Ristilvandamálið er úr
sögunni, allir verkir í líkamanum horfnir og mér líður eins og nýrri mann-
eskju, miklu orkumeiri og ánægðari með lífið. Það besta er að ég er bara
búin að nota drykkinn í tæpar 2 vikur en ég fann mun á mér eftir ca 2
daga.
Ég hafði mikla trú á þessum drykk frá upphafi og hef hana ennþá og
miklu meiri. Takk kærlega fyrir mig.
Reynslusaga:
Guðrún Gísladóttir
300 ml
flaskan inni-
heldur 50
prósent af
styrkleika
stærstu
pakkning-
arinnar
aada drykkurinn
fæst nú í 2 lítra
umbúðum og
inniheldur 75
prósent af styrk-
leika stærstu
pakkningarinnar
sem er 5 lítrar. 5
lítra pakkningin
fæst einungis
hjá My Secret á
Digranesvegi í
Kópavogi og hjá
sölufólki á lands-
byggðinni.
Virk efni í aada-engiferdrykknum geta haft áhrif á:
Í engifer eru:
Yfir 100 efnasambönd
12 andoxunarefni
17 efni sem þekkt eru fyrir sótthreinsandi eiginleika
Astma
Depurð
Magasýrur
Meltingu
Bólgur
Sogæðakerfið
Gigt
Orku
Mígreni/höfuðverk
Magavandamál
Tíðaverki
Flensu og hálsbólgu
Ristilvandamál
Sykurfíkn
Eykur grunnbrennslu líkam-
ans
Ýmis húðvandamál
Ýmis ofnæmi