Fréttablaðið - 27.08.2010, Side 27
FÖSTUDAGUR 27. ágúst 2010 5
HAMRABORGIN
Gagnleg
Almenn skyndihjálp
Á námskeiðinu læra þátttakendur grundvallaratriði í skyndihjálp og
endurlífgun. Markmiðið er að þátttakendur verði hæfir til að veita fyrstu
hjálp á slysstað.
Námskeið 15. september kl. 18-22. Þátttökugjald 4.500 krónur.
Slys og veikindi barna
Á námskeiðinu er fjallað um varnir gegn slysum á börnum og orsakir slysa
almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri. Leiðbeint er í skyndihjálp
við barnaslysum og áverkum af ýmsu tagi, endurlífgun barna, andlegum
undirbúningi við komu barna á sjúkrahús o.fl. Námskeiðið getur gagnast
öllum þeim sem umgangast börn hvort sem er í starfi eða daglegu lífi.
Námskeið 20. og 21. september kl. 18-21. Þátttökugjald er 6.500 krónur
en 5.000 krónur ef maki eða eldra systkyni tekur líka þátt.
Sálrænn stuðningur
Þátttakendur læra að gera sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks
sem lendir í sársaukafullum aðstæðum og hvernig þeir geti veitt stuðning
og umhyggju. Viðfangsefnin verða meðal annars mismunandi tegundir áfalla,
áhrif alvarlegra atvika á einstaklinginn, stuðningur við úrvinnslu, sorg og
sorgarferli.
Námskeið 5. október kl. 17-21. Þátttökugjald er 5.000 krónur.
Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildar fá ókeypis á námskeiðin og félagsmenn sem
greitt hafa félagsgjaldið fyrir 2010 fá 10% afslátt. Nánari upplýsingar og skráning
i sími 554 6626 og á kopavogur@redcross.is
Rauðakrosshúsið Hamraborg 11 - Opið alla virka daga kl. 10-16 - raudikrossinn.is/kopavogur
námskeið
Barnabílstólar
og kerrur
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
„Hamraborgarhátíðin er liður í að
uppfylla niðurlag nýja meirihluta-
sáttmálans í Kópavogi, að gera
Kópavog skemmtilegri,“ segir
Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfull-
trúi og formaður undirbúnings-
nefndar. Fyrsta Hamraborgar-
hátíðin í Kópavogi er á morgun.
Rannveig segir að vinna við
Hamraborgarhátíðina hafi hafist í
sumar. „Viðbrögðin eru alveg frá-
bær. Svo hafa fyrirtæki og þjón-
ustuaðilar allir sem einn verið
tilbúnir að taka þátt í þessu.“ Rann-
veig segir hátíðina alþýðlega bæjar-
hátíð. „Fólk bara kemur og býr til
skemmtunina sjálft. Við sköpum
tækifærið og réttum fólki tæki til
að nota sem eru til dæmis borð og
tjöld, bekkir og stólar.“
Skemmtiatriði, sölusýning mynd-
listarmanna og töframenn frá Hinu
íslenska töframannagildi er meðal
þess sem verður á dagskránni. „Svo
erum við með markaðstorg þar sem
fólk getur komið með afurðir sínar,
sultur, grænmeti og handverk, sýnt
og selt.“
Að sögn Rannveigar verður flóa-
markaður með óhefðbundnu sniði.
„Við köllum hann beint úr skotti
og þá kemur fólk á ákveðin stæði
í Hamraborginni og leggur þar.
Fólk opnar svo skottið sitt og þar er
geymsludótið, bækurnar eða flík-
urnar,“ upplýsir Rannveig og segir
íþróttafélögin verða með í hátíð-
inni og kynna greinar sínar en þar
verða einnig eldri borgarar með
dagskrá. Rannveig segir að búið sé
að útbúa græna bletti á Hálsatorgi
sem annars er steinlagt. „Þar eru
lautarblettir þannig að fólk getur
bara komið með nestið sitt og farið
í lautarferð. Grænu blettirnir munu
lifa áfram út í haustið.“
Er eitthvað fleira á döfinni til
að gera Kópavog skemmtilegan?
„Við byrjum með þessu. Við höfum
áform um það og ætlum að vinna
það áfram með bæjarbúum. Þetta
er gleði sem á að ganga áfram.“
Hátíðin stendur frá ellefu og
Hamraborgin verður göngugata
til klukkan sex.
martaf@frettabladid.is
Gleðin á að halda áfram
Fyrsta Hamraborgarhátíðin er á morgun en hún er liður í að gera Kópavog skemmtilegri og uppfylla
niðurlag nýja meirihlutasáttmálans. Viðtökurnar hafa verið frábærar að sögn Rannveigar Ásgeirsdóttur.
Rannveig Ásgeirsdóttir segir að Hamraborgin verði göngugata til klukkan sex á morg-
un. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN