Fréttablaðið - 27.08.2010, Page 34
6 föstudagur 27. ágúst
tíðin
✽ dularfullt og djarft
ÉG SAFNA ANTÍKMUNUM og á mikið af þeim. Ég valdi
þessa styttu, sem er frá um 1920, því ég held mikið upp á
hana. það á eftir að gera við hana, sem ég mun gera innan
tíðar.
MA CRÈME NATURE Þegar kuldinn skellur á er nauðsynlegt að eiga gott raka-
krem. Ma crème nature frá L‘Occitane blandar þú sjálf og geymir svo í ísskáp. Þar sem
það er blandað rétt fyrir notkun og inniheldur engin aukaefni er það fullkomlega náttúru-
legt, ferskt og frískandi fyrir húðina.
Ég var að leita að einhverri sem tekur sjálfa sig ekki of alvar-
lega og er ófeimin. En ég fann
hana ekki á Facebook, heldur í
næsta húsi,“ segir tónlistarmað-
urinn Steini Einarsson, sem út-
skrifaðist úr Kvikmyndaskóla Ís-
lands árið 2008.
Auglýsing Steina á Facebook
vakti nokkra athygli, en þar lýsti
hann eftir djarfri stúlku til að taka
að sér aðahlutverk í bíómynd.
Handrit myndarinnar er skrifað af
Steina og Bryndísi Helgu Tómas-
dóttur. Myndin fjallar um kúreka
frá Selfossi sem eyðir sólarhring
í að ganga í augun á reykvískri
millistéttargálu í leit að lífsfyll-
ingu. „Þetta verður mynd með
kolbiksvartan húmor með senum
sem fólk á eftir að bregðast mis-
jafnlega við,“ segir Steini.
Með hlutverk kúrekans fer
Brimar Bragi Magnússon og Ásdís
Magnea Egilsdóttir mun túlka
millistéttargáluna. Tökur á mynd-
inni hefjast í næsta mánuði. Tekið
skal fram að þótt leikkonan djarfa
sé fundin er Steini enn að leita að
stelpum í aukahlutverk.
- hhs
Fann djarfa aðalleikkonu í næsta húsi:
Mynd um kúreka
og millistéttargálu
Steini Steini Einarsson, sem útskrifað-
ist úr Kvikmyndaskóla Íslands árið 2008,
leitar að aukaleikurum til að leika í bíó-
mynd með kolbiksvörtum húmor.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÉG HELD MIKIÐ
upp á alla þá
orkusteina og
kristalla sem ég
á og eru Smoky
Quartz og Ame-
thyst mér ávallt
mjög kærir. ÉG HELD MIKIÐ UPP á tarot
spilin mín. ég hef átt þessi hvað
lengst og hafa þau fylgt mér
ansi lengi.
ÞETTA VIVIENNE WEST-
WOOD VESKI nota ég á
hverjum degi það er einstak-
lega rúmgott og ég passa
það mjög vel.
ÞETTA MYNDAALBÚM er frá um 1930,
eða fyrr, og í því er mikið af leikurnum
sem ég held mikið upp á eins og Rudolph
Valentino, Ramon Novarro, Lillian Gish og
Greta Garbo.
ÞESSI HATTAGÍNA er úr fyrstu KRON
búðinni og myndi vera frá um 1940.
Það er fremur fágætt að svona herrag-
ínur finnist í dag og því passa ég vel
upp á hana.
ÉG Á GRÍÐARLEGT SAFN af
vínýlplötum og get ómögu-
lega valið á milli þeirra enda
á ég mikið af ansi verð-
mætum gripum. Ég sérhæfi
mig í að safna skynvillutón-
list sjöunda áratugarins, ‘Li-
brary’ plötum, kvikmynda-
tónlist sjöunda áratugarins,
klassískri tónlist og frönskum
poppsöngkonum frá 1963-
1968.
ÉG Á EINNIG GRÍÐARLEGT
SAFN AF BÓKUM og safna
upprunarlegum útgáfum og
gömlum bókum.
ÉG HELD EINNA MEST upp á fata-
skápana mína en ég get ómögulega
valið eina flík. Ég held mikið upp á allt
frá Dior Homme, Ann Demeulemeester,
Vivienne Westwood og fleirum. Einnig
gjafir frá vinum eins og Aftur og Eygló.
SÆVAR MARKÚS
ÓSKARSSON
fatahönnuður og verslunareigandi
HÁLSMEN sem ég held mikið
upp á. Mér var gefið það þegar
ég bjó í París og það er mjög
falleg saga á bakvið það. .
TOPP
10
FR
É
TT
A
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N