Fréttablaðið - 27.08.2010, Page 45
FÖSTUDAGUR 27. ágúst 2010 25
Af og til síðustu árin hefur því verið haldið fram að ösp sé
hættuleg mannvirkjum. Í júlímán-
uði var viðtal við Sigurð Helga
Guðjónsson, formann Húseigenda-
félagsins, í morgunútvarpi Rásar
2 og kom þar fram að rætur aspa
skemmdu eða eyðilegðu gangstétt-
ar, slitlag vega, lagnir og hús, auk
þess sem öspin „trylltist“ við þegar
hún færi að drepast, við 40-50 ára
aldur, og færi að skjóta rótarskot-
um í allar áttir.
Til að leita upplýsinga um þetta
tjón sendi undirritaður byggingar-
fulltrúa Reykjavíkur, Magnúsi
Sædal, erindi og óskaði eftir upplýs-
ingum um umfang tjóns í Reykja-
víkurborg. Spurt var sérstaklega
um skemmdir af völdum aspa á
gangstéttum eða hellum, malbiki,
götum eða vegum, lögnum, bygg-
ingum og dæmi um „árás“ aspa á
umhverfi sitt.
Í svari Magnúsar kemur fram
að engar formlegar kvartanir
séu skráðar hjá embættinu vegna
skemmda af völdum aspartrjáa á
gangstéttum, hellulögnum, mal-
biki, götum eða vegum. Þó sé vitað
að á stöku stað hafi trjárætur vald-
ið lyftingu á gangstéttum og hellu-
lögnum, en ekki sé þar sérstak-
lega um aspartré að ræða. Svipað
gildi um lagnirnar, engar formleg-
ar kvartanir hafi borist embætt-
inu. Þó sé þekkt í einhverju tilviki
að trjárætur hafi þrengt sér inn í
holræsakerfi, en í þeim tilvikum
sé iðulega um bilaðar eða illa frá-
gengnar lagnir að ræða. Í þessu til-
viki virðast það hafa verið rætur af
einhverjum runna sem fóru í lögn-
ina. Hafa verði í huga að lagnir eigi
að liggja í frostfríu dýpi [Skv. upp-
lýsingum hjá Orkuveitu Reykjavík-
ur eru raf- og hitaveitulagnir að
öllu jöfnu lagðar á 70 cm dýpi og
kaldavatnslagnir á minnst 120 cm
dýpi]. Hjá byggingarfulltrúa eru
ekki skráð dæmi um tjón á bygg-
ingum vegna trjágróðurs. Lauf og
annað affall af trjám getur fallið
á þök lægri bygginga, sest í þak-
rennur, stíflað niðurföll og vald-
ið vatnstjóni, ef rennur eru ekki
þrifnar. „Tryllingur“ fimmtugra
aspa er óþekkt fyrirbæri. Taka má
fram að samkvæmt erlendum heim-
ildum geta aspir náð allt að 200 ára
aldri.
Af svari byggingarfulltrúa
Reykjavíkur má ráða að aspir hagi
sér ekki öðruvísi en aðrar trjáteg-
undir gagnvart híbýlum manna og
götum. Við umræðu um trjárækt í
okkar ágætu borg væri því heppi-
legra að beina umræðunni að mikil-
vægari atriðum, s.s. skjóli, skugga-
myndun, rykmengun, útsýni og
hljóðmengun.
Hvað skjólið varðar hefur ösp,
vegna ýmissa flökkusagna um
hana, verið felld í töluverðum mæli.
Verði þetta ekki hamið er veruleg
hætta á að í skjólsælum hverfum
nái vindstrengir sér aftur á strik í
þeim og afleiðingarnar verði aukið
viðhald húsa og minni útivera í
görðum og þar með minni lífsgæði.
Hvort tveggja getur lækkað fast-
eignaverð.
Í þróun borgarinnar hefur þess
lengst af verið gætt að mannvirki
verði ekki mjög há. Við höfum fáa
sólardaga og við viljum njóta þeirra
allra. Þetta er skynsamlegt við-
horf íbúa á norðurslóðum þar sem
skuggar geta orðið langir. Borið
saman við aðrar þjóðir er ekkert
tré orðið stórt á Íslandi, né gamalt,
en þau verða það. Því er mikilvægt
að skipuleggja gróðurinn þannig að
skuggi verði sem minnstur af stór-
um trjám og það er vel hægt. Útsýni
er flóknari hlutur að skipuleggja,
fer eiginlega eftir við hvað maður
er alinn upp við eða er vanur. Að
horfa út um glugga á tré er ákveð-
ið útsýni, ef tréð er höggvið kemur
í ljós hús sem er þá önnur gerð af
útsýni, eða haf eða fjall eða eitthvað
annað.
Einnig er vert að skoða áhrif
trjágróðurs á hljóð- og loftmengun.
Tré geta hafa veruleg áhrif á hvoru-
tveggja. Tré geta, eftir hæð og þétt-
leika, dregið verulega úr hávaða og
liggja fyrir mælingar á því. Einnig
fanga þau rykagnir og binda koltví-
sýring (CO2). Því mætti skoða hvort
ávinningur væri af því að láta gróð-
ursetja verulegt magn krónumikilla
trjáa í og við sem flest umferðar-
mannvirki og bifreiðaplön, en víða
erlendis er markvisst verið að auka
magn trjágróðurs í borgum vegna
mengunarsjónarmiða.
Allar trjátegundir hafa sína kosti
og galla við ræktun, sem og annar
gróður, og er öspin þar engin und-
antekning. Það er hins vegar engin
ástæða til að taka hana sérstaklega
fyrir sem ógn við mannvirki hér í
borg. Ætlum öspinni ekki meira en
henni ber.
Er ösp hættuleg mannvirkjum í Reykjavík?
Skógrækt
Helgi
Gíslason
framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags
Reykjavíkur
AF NETINU
Hanna Birna og Gísli hissa
Mikið er yndislegt
að vita, að Hanna
Birna Kristjánsdóttir
og Gísli Marteinn
Baldursson eru
ósátt. Telja, að
rafmagnskaupendur í Reykjavík
hafi ekki efni á 20% hækkun
orkuverðs. Skrítið samt, að þeim
skyldi ekki detta þetta í hug, þegar
þau stjórnuðu borginni. Þá gengu
þau út á yztu nöf í æðibunugangi í
undirbúningi orkuvera fyrir stóriðju.
Borgarfulltrúar slöguðu þá um ráð-
húsið draugfullir af stóriðjuæsingi.
Orkuveitan varð ekki gjaldþrota
út af neinu nýstárlegu á þessu
ári. Varð gjaldþrota vegna stefnu
meirihluta Hönnu Birnu og Gísla
Marteins. Gjaldþrota vegna óráðs-
drauma um útþenslu og stóriðju.
jonas.is
Jónas Kristjánsson
Allar trjátegundir hafa sína kosti og
galla við ræktun, sem og annar gróð-
ur, og er öspin þar engin undantekn-
ing.
NÁMAN | landsbankinn.is | 410 4000
150 fríar færslur á ári
fyrir Námufélaga
*
G
ild
ir
í L
au
g
ar
ás
b
íó
i,
S
m
ár
ab
íó
i,
H
ás
kó
la
b
íó
i o
g
B
or
g
ar
b
íó
i m
án
.-
fim
. s
é
g
re
it
t
m
eð
N
ám
u
ko
rt
i
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
3
2
6
N
B
I
h
f.
(
L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
Það er leikur að læra með Námunni.
Náman leggur námsmönnum lið með því að bjóða hagstæðari kjör,
betri yfirsýn yfir fjármálin, 2 fyrir 1 í bíó*, 150 fríar færslur á ári,
Námu A-kort með Aukakrónusöfnun auk fjölda annarra fríðinda.
Kíktu á Námuna á Facebook
Jón Benediktsson,
Námufélagi og nemi í
stærðfræði
La
us
n:
P
rí
m
ta
la