Fréttablaðið - 02.09.2010, Blaðsíða 4
4 2. september 2010 FIMMTUDAGUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
27°
18°
18°
21°
23°
18°
18°
24°
21°
27°
34°
33°
15°
23°
24°
15°Á MORGUN
10-15 m/s SV-til,
annars hægari.
LAUGARDAGUR
5-13 m/s
og súld sunnan til.
15
15
16
19
19
19
20
12
14
14
10
10
12
3
3
3
3
5
3
6
15
7
14
16
19
16
13 16
14 18
15
12
BLÍÐVIÐRI Enn
leikur veðrið við
landsmenn á norð-
austanverðu land-
inu og ekkert lát á.
Þar verður hlýtt og
bjart með köfl um
næstu daga. Sunn-
an- og vestan til
verður hins vegar
áfram strekkingur,
einkum við strönd-
ina, heldur skýjað
og væta af og til.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
FRÉTTASKÝRING:
Hvaða mál verður helst tekist á um á Alþingi næstu
tvær vikur?
Búist er við því að niðurstöður þingmanna-
nefndar um rannsóknarskýrslu Alþingis verði
fyrirferðarmesta umræðuefnið á tveggja
vikna septemberþingi sem kemur saman í dag.
Von er á fyrstu niðurstöðum nefndarinnar í
næstu viku og í kjölfarið er áætlað að fram
fari nokkurra daga umræða um efni hennar
og hugsanlegar lagabreytingar sem nefndin
leggur til.
Septemberþinginu er að öðru leyti aðallega
ætlað að taka fyrir og afgreiða eldri mál sem
ekki komust á dagskrá á vor- og sumarþingum.
Meðal þess sem rætt verður er lagabálkur
dómsmálaráðherra um flóttamenn og útlend-
inga, en allsherjarnefnd hefur um nokkurt
skeið haft þrjú frumvörp um bætta réttarstöðu
þessara hópa til umfjöllunar.
Þá stendur til að afgreiða frumvarp um
breytingar á stjórnarráðinu, sameiningar
ráðuneyta og tilfærslur verkefna þeirra á
milli, sem og frumvarp til skipulagslaga sem
ítrekað hefur verið lagt fram af umhverfisráð-
herrum undanfarinna ára.
Frumvarp menntamálaráðherra til nýrra
fjölmiðlalaga hefur verið afgreitt úr mennta-
málanefnd þingsins og kemur því til umræðu
á septemberþinginu. Ekki er hins vegar víst að
takist að afgreiða þau sem lög fyrr en á næsta
þingi, sem sett verður í október.
Tvö stór frumvörp hafa verið til umræðu í
viðskiptanefnd í sumar. Annað snýr að breyt-
ingum á lögum um tryggingasjóð innstæðu-
eigenda og hitt er endurskoðun á samkeppnis-
lögum, sem veitir Samkeppniseftirlitinu mun
víðtækari heimildir en áður til að taka á sam-
þjöppun á markaði.
Samkvæmt heimildum blaðsins hafa verið
mjög skiptar skoðanir um bæði frumvörpin í
nefndinni. Fólk er á öndverðum meiði um það
hvort rétt sé að veita Samkeppniseftirlitinu
aukin völd til að grípa inn í á hinum frjálsa
markaði, og þótt frumvarpið um innstæðu-
tryggingasjóðinn sé ekki fullkomið eru marg-
ir á því að það feli í sér nægar umbætur til að
það eigi að verða að lögum sem fyrst. Aðrir
vilja bíða tillagna þar um frá þingmannanefnd
um rannsóknarskýrsluna. Því er alls ekki
víst að þessi tvö mál komi til kasta september-
þingsins.
Hugsanlegt er að þingsályktunartillaga full-
trúa allra flokka nema Samfylkingar um að
draga skuli til baka umsókn Íslands að Evrópu-
sambandinu verði lögð fram á nýjan leik. Hún
var lögð fram á sumarþinginu en ekki mælt
fyrir henni.
Önnur mál, svo sem breytingar á lögum um
erlendar fjárfestingar, breytingar á skattkerf-
inu og tillaga Árna Þórs Sigurðssonar um full-
an aðskilnað ríkis og kirkju, bíða næsta þings.
stigur@frettabladid.is
Niðurstöður þingmanna-
nefndar fyrirferðarmestar
Tveggja vikna septemberþing verður sett í dag. Það er fyrst og fremst hugsað til að afgreiða mál sem ekki
tókst að klára fyrr í ár. Fjölmiðlalög og lagabálkur um útlendinga og flóttamenn meðal þess sem ræða á.
NÓG AÐ GERA Víst er að þingmenn munu hafa nóg fyrir stafni næstu tvær vikur. Þeirra bíða umræður um fjölda
mála, en þyngst munu vega niðurstöður þingmannanefndar Atla Gíslasonar um skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKOÐANAKÖNNUN Samfylkingin og
Vinstri græn bæta við sig fylgi
samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi
Gallup. Fréttastofa Ríkissjón-
varpsins sagði frá í gærkvöldi.
Nú segjast 25 prósent myndu
kjósa Samfylkinguna, en 24 pró-
sent gerðu það síðast. Vinstri
græn fengju 21 prósent atkvæða,
en voru með nítján prósent í síð-
ustu könnun. Nú segjast fjöru-
tíu prósent styðja ríkisstjórnina
sem er um fimm prósentustigum
minna en fylgi stjórnarflokkanna
samtals.
Sjálfstæðisflokkurinn er enn
stærsti flokkurinn, með 35 pró-
sent fylgi eins og í síðasta Þjóðar-
púlsi. Framsóknarflokkurinn
stendur líka í stað á milli kann-
anna, í tólf prósentum.
Könnunin var gerð frá 28. júlí
til 29. ágúst. Úrtakið var 6.300
manns sem svöruðu á netinu og
símleiðis. Svarhlutfall í könnun-
inni var 63,3 prósent. - shá
Sjálfstæðisflokkur stærstur:
Stjórnarflokkar
bæta við sig í
nýrri könnun
HEILBRIGÐISMÁL Álfheiður Inga-
dóttir heilbrigðisráðherra hefur
skipað vinnuhóp sem á að skipu-
leggja aðgerðir til að draga úr
ofnotkun og koma í veg fyrir
misnotkun á rítalíni og tengdum
lyfjum.
Landlæknisembættinu hefur
verið falið að grípa þegar í stað
til aðgerða til að herða eftirlit
með ávísunum á þessi lyf og tak-
marka afgreiðslu þeirra við þann
hóp sem sannarlega þarf á lyfj-
unum að halda, að því er segir í
frétt frá heilbrigðisráðuneytinu.
Notkun rítal-
ínskyldra lyfja
hefur aukist
mjög á Íslandi
síðustu ár, ekki
síst meðal full-
or ð i n n a . Æ
algengara er að
þeir sem koma
til meðferðar
hjá SÁÁ séu
fíknir í slík lyf.
Formaður
vinnuhópsins er Einar Magnús-
son, yfirmaður lyfjaskrifstofu
ráðuneytisins. Í hópnum eru
einnig Geir Gunnlaugsson land-
læknir, Guðrún I. Gylfadóttir
deildarstjóri hjá Sjúkratrygg-
ingum og Jóhann M. Lenharðs-
son frá Lyfjastofnun.
Hópnum eru áætlaðir tveir
mánuðir til að endurskipuleggja
meðferð lyfjaflokksins. Honum
er meðal annars falið að tryggja
að þeir sem þurfi á meðferð með
þessum lyfjum að halda skaðist
ekki, en það eru einkum börn og
ungmenni upp að 20 eða 22 ára
aldri. - sh
Heilbrigðisráðherra lætur herða eftirlit með ávísunum á rítalínskyld lyf:
Ráðist gegn rítalínmisnotkun
ÁLFHEIÐUR
INGADÓTTIR
Þjónustan markvissari
Heilbrigðisráðuneytið og hópur vís-
indamanna við Háskóla Íslands, Land-
spítalann, Háskólann í Árósum og
Háskólann í Reykjavík ætla að hefja
samstarf um verkefni í upplýsinga-
tækni til að gera heilbrigðisþjónustu
markvissari og ódýrari. Yfirlýsing um
samstarfið hefur verið undirrituð.
Málþing á morgun
Landlæknisembættið stendur fyrir
málþingi um þýðingu og orðnotkun
ICF-flokkunarkerfisins á morgun
í fundarsal Læknafélags Íslands.
Málþingið er liður í undirbúningi
fyrir útgáfu íslenskrar þýðingar á
alþjóðlega flokkunarkerfinu um færni,
fötlun og heilsu.
HEILBRIGÐISMÁL
HEILBRIGÐISMÁL Álfheiður Inga-
dóttir heilbrigðisráðherra hefur
ákveðið að leita samninga um
leigu á hluta húsnæðis Heilsu-
verndarstöðvarinnar við Baróns-
stíg undir starfsemi Landlæknis
og Lýðheilsustöðvar. Unnið er að
sameiningu embættanna tveggja
en núverandi húsnæði þeirra
rúmar ekki sameinaða stofnun.
Eftir úttekt Framkvæmdasýslu
ríkisins var það samdóma niður-
staða undirbúningshóps að hús-
næðið hentaði langbest starfsemi
nýrrar stofnunar. - shá
Landlæknir og Lýðheildustöð:
Sameinast á
Barónsstígnum
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 01.09.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,9872
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
119,65 120,23
184,02 184,92
153 153,86
20,549 20,669
19,198 19,312
16,369 16,465
1,4234 1,4318
181,09 182,17
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
OLÍS ÁLFHEIMUM, OLÍS GULLINBRÚ, OLÍS MJÓDD, OLÍS NORÐLINGAHOLTI, OLÍS
AKRANESI, OLÍS AKUREYRI, OLÍS BORGARNESI, OLÍS KEFLAVÍK, OLÍS REYÐARFIRÐI
890kr.
BÁTUR, PEPSI,
SNAKK & SMÁKAKA
BÁTUR MÁNAÐARINS
O
lís
e
r l
ey
fis
ha
fi
Q
ui
zn
os
á
Ís
la
nd
i
PI
PA
R\
TB
W
A
S
ÍA