Fréttablaðið - 02.09.2010, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 2. september 2010 3
Femíniskar greiningar-aðferðir eru sjaldan eða aldrei notaðar til að skoða tískuhönnun líkt og gert er
við bókmenntir og fleira og kynja-
fræði nú víðast hvar fræðigrein
í háskólum. Það er þó áhugavert
rannsóknarefni að skoða hvort
kvenhönnuðir hanni með öðrum
hætti fyrir konur en karlhönnuð-
ir. Þessi spurning flaug í gegnum
höfuð tískublaðamanns Libérat-
ion eftir að hafa horft á tískusýn-
ingu Stellu McCartney sem fram
fór á Alþjóðlegum baráttudegi
kvenna þann 8. mars síðastliðinn
þegar tíska komandi vetrar var
sýnd í París. Einnig segir blaða-
maðurinn að sama megi sjá hjá
Phoebe Philo sem nýlega tók við
listrænni stjórn hjá Céline. Stella
McCartney hefur löngum notað
miklar víddir í sinni hönnun sem
tískufræðingum hefur ekki allt-
af þótt mjög sexý. Í vetur hikar
McCartney ekki við að bjóða upp
á síðar tölulausar jakkapeysur
sem varla sýna mittið sem og enn
og aftur víðar mussur sem minna
dálítið á móður hennar Lindu á
tímum Wings. Kjólarnir eru þó
mjög stuttir en margir útvíðir
og í laginu líkt og lampaskerm-
ar. Phoebe Philo hjá Céline hann-
ar einnig síðar mussur sem eru
með ásaumuðum leðurvösum
auk mikils úrvals af síðbuxum.
Oft á tíðum ná þessar flíkur í
það minnsta niður fyrir mitti ef
þær eru ekki enn síðari. Reyndar
merkilegt að báðar unnu þessar
konur saman fyrir tískuhús Chloé
þar sem Philo var aðstoðarhönn-
uður McCartney.
Ef litið er til baka má telja held-
ur ólíklegt að sá hönnuður sem
endurlífgaði korselettið, Jean-
Paul Gaultier, noti þá flík daglega
og geri sér grein fyrir því hversu
þægilegt það sé. John Galliano
hjá Dior byggir líklega ekki held-
ur á kvenlegum reynsluheimi
þegar hann tekur upp hið fræga
reyrða mitti frá New look-tíma
meistara Dior sem einmitt má sjá
í vetur hjá Dior. Í nafni kvenleik-
ans hefur löngum þótt við hæfi að
reyra mitti kvenna eða þröngva
þeim í alls kyns búninga, mis-
jafnlega óþægilega, svo mjög að
á tímum lífstykkja féllu þær iðu-
lega í yfirlið og áttu í mestu erf-
iðleikum að komast frjálsar ferða
sinna. Það er kannski ekki tilvilj-
un að Coco Chanel en ekki ein-
hver karlkyns samtímahönn-
uður hennar skuli hafa losað
um mitti kvenna og ekki að
ástæðulausu að talað er um að
hún hafi frelsað konur. Einnig
var það Chanel sem fann upp
þægilegri strandfatnað til þess
að auðvelda konum að hreyfa
sig. Jeanne Lanvin lagði einnig
sitt lóð á vogarskálarnar í byrj-
un tuttugustu aldar og notaði
jerseyefni og síðbuxur sem ekki
tíðkaðist áður og þótti afskaplega
þægilegt. Ef frá er talinn Yves
Saint Laurent eru það þessar
örfáu konur sem hafa skapað sér
nafn í tískuheiminum sem hafa
unnið að því að breyta kventísk-
unni í þágu kvenna. bergb75@free.fr
Konur eru konum bestar
Kjólar Angelinu Jolie á frumsýn-
ingum Salt vöktu mikla athygli.
Angelina Jolie hefur staðið í
ströngu við að kynna nýjustu
kvikmynd sína, Salt, og mætt á
frumsýningar meðal annars í
London og París. Litaval leikkon-
unnar hefur síðasta árið einkennst
af ljósum tónum sem minna á ís,
silfruðum, ljósgráum og jafnvel
daufbleikum.
Kjólarnir á Salt-frumsýningun-
um voru einmitt í þeim dúr þar
sem silfraður Pamellu Roland-kjóll
varð fyrir valinu á frumsýning-
unni í París og við kjólinn
var hún í Salvatore
Ferragamo-satín-
skóm. Áður hafði
hún mætt ti l
leiks í London í
kjól eftir Amöndu
Wakely sem stór
hluti tískupressunn-
ar ytra var óánægð-
ur með. Sömu
aðilar fyrir-
gáfu Jolie þó
þá innkomu
eftir frum-
sýninguna í
París. - jma
Vöktu mis-
mikla lukkuÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Silfurglans-
andi Pamellu
Roland-
kjóllinn sem
Angelina
klæddist í
París vakti
mikla
athygli.
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki