Fréttablaðið - 29.09.2010, Síða 26
29. SEPTEMBER 2010 MIÐVIKUDAGUR
Skútuvogi 6 | 104 Reykjavík | Sími 568 6755 | www.alfaborg.is
Gólf í boxi – sjálflímandi vinyl dúkur frá Tarkett.
Einstaklega auðvelt í ásetningu og ekki spillir verðið,
aðeins kr. 2390,- fermeterinn.
Tarkett plastparket
Woodstock 8 mm eikar-
planki fasaður kr. 2890,-
fermeterinn
Tarkett
viðarparket
Eik Rumba
robust 3 stafa
kr. 4990,-
fermeterinn
Velas Blanco
33,3x66,6 flísar frá Venis á Spáni.
Verð kr. 8609,- fermeterinn
Gólf í boxi eru tveir fermetrar af
sjálflímandi dúk í boxi sem fólk
getur lagt sjálft á gólfið. Kolbeinn
Smári Össurarson markaðsstjóri
hjá Álfaborg segir þetta einn lið
í hagstæðum lausnum sem fyrir-
tækið bjóði upp á.
„Við leitum allra leiða við að
finna eitthvað sem fólk getur gert
sjálft núna þegar margir þurfa að
spara. Dúkurinn kemur í mörgum
litum og munstrum á rúllu og ekk-
ert að gera annað en fletta filmu
ofan af límhliðinni og leggja hann.
Þarna fær fólk allt tilbúið á 2.390
fermetrann en boxinu fylgja leið-
beiningar um lögnina.“
Dúkurinn hentar á minni fleti
og á flest herbergi hússins. Þó
ekki blautrými eins og baðher-
bergi. Flöturinn sem dúkurinn er
lagður á þarf að vera sléttur og
hreinn. Límið segir Kolbeinn vera
sterkt og dúkurinn eigi að geta
enst árum saman.
„Dúkurinn kemur frá Tarket,
einum stærsta gólfefnaframleið-
anda í Evrópu, og reynslan af
þessu erlendis er mjög góð.“
Gólf í boxi fást í fjölmörgum litum.
Álfaborg í Skútuvogi 6
býður úrval gólfefna undir
einkunnarorðunum „allt á
gólfið á einum stað“.
„Það er þægilegt fyrir viðskipta-
vini að velja til dæmis saman flís-
ar og parket í sömu versluninni en
við bjóðum úrval af flísum, park-
eti, teppum og dúkum,“ segir Kol-
beinn Smári Össurarson, markaðs-
stjóri hjá Álfaborg, en fyrirtækið
sameinaðist Teppalandi ehf. árið
2007.
Kolbeinn segir viðskiptin ganga
vel. Átak stjórnvalda, „Allir
vinna“, gefi fólki tækifæri á fram-
kvæmdum og frá septemberbyrj-
un hefur einnig staðið yfir sér-
stakt átak hjá Álfaborg þar sem
viðskiptavinum býðst teppi á stiga-
gang og vinna á tilboði.
„Það hefur aldrei verið hagstæð-
ara fyrir fólk að framkvæma en nú
þegar það fær bæði virðisaukann
endurgreiddan og einnig skattaaf-
slátt. Við bjóðum teppin ákomin á
stigagang með vinnu á 6.130 krón-
ur fermetrann. Við sendum mann
á staðinn til að mæla allt upp og
reikna út kostnaðinn og erum í
samstarfi við fyrirtækið Dúkar-
inn Óli Már. Sérstök álagsteppi
eru notuð á stigagangana og fást í
mörgum litum. Við hjálpum einnig
fólki í fjölbýlishúsunum að útfylla
virðisaukaskýrsluna.“
Kolbeinn segir svo víðtæka
þjónustu ekki hafa staðið fólki
til boða áður og viðtökurnar séu
góðar. „Fólk áttar sig oft ekki á því
að þótt margir séu um sameignina
er hægt að deila skattaafslættinum
á íbúana í stigaganginum. Þetta er
eins einfalt og hægt er.“
Gólfefni ganga gegnum tísku-
sveiflur eins og annað. Kolbeinn
segir parket og flísar þó enn þá
algengasta gólfefnið en teppin
séu í sókn. „Þá eru sísalteppi vin-
sæl á stiga milli hæða á heimilum
í fleiri litum en áður, til dæmis
gráu, svörtu og koparlituðu. Filt-
teppi eru að koma inn aftur á ný-
byggingar þegar fólk leitar ódýr-
ari lausna. Við höfum verið dug-
leg að leita nýjunga sem fólk getur
nýtt sér fyrir lítið verð og bjóðum
meðal annars upp á sjálflímandi
gólfdúk sem við köllum Gólf í boxi.
Í flísum erum við að fá nýjungar
í hverjum mánuði, bæði ódýrari
línur og nýjungar frá Porcelanosa
sem er einn fremsti flísaframleið-
andi í Evrópu í dag. Hér er úr nógu
að velja.“
Dugleg að leita nýjunga
Kolbeinn Smári Össurarson, markaðsstjóri hjá Álfaborg, segir nú vera tækifæri til framkvæmda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gólf í boxi sniðug lausn
Gólfefni ganga í gegnum tískusveiflur eins og annað. Kolbeinn segir parket og flísar
þó enn algengasta gólfefnið.