Fréttablaðið - 29.09.2010, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2010
Gegnheil flís 30x60cm
Tegund GENESIS SHELL
Kr. 6.585,- pr. m2 stgr.
Gegnheil flís 30x60cm
Tegund GENESIS LOFT ATLANTIC
Kr. 6.585,- pr. m2 stgr.
Gegnheil flís 30x60cm.
Tegund DIAMANTE MATT
Kr. 4.485,- pr. m2 stgr.
Síðumúla 30 2. hæð, 108 Reykjavík, sími 562 4242, verslun@gallerygolf.is, www.gallerygolf.is
PYRENEES
Eik Pyrenees. Antik planki
með kvistum. Burstað,
hvíttað og matt lakkað.
Borðstærð: 190x1820 mm.
með viðarlæsingu.
Kr. 10.388,- pr. m2 stgr.
„Þetta gólfefni ber vöruheitið Eik Andes
og er antikplanki með kvistum. Hann
er í borðastærðinni 190x1820 mm og
er með viðarlæsingu en það er aðallinn
okkar að vera með nýtt læsingarkerfi á
öllu okkar parketi,“ segir Sigurður Vil-
helmsson eigandi verslunarinnar Gall-
ery Gólf. Læsingarkerfið segir hann
ganga undir nafninu 5G „sem þýðir
bara fimmta kynslóðin í svona læsingar-
kerfum,“ útskýrir hann.
Fermeterinn af Eik Andes segir hann
vera á 10.785, krónur miðað við stað-
greiðslu en tekur fram að einnig sé fá-
anleg þriggja stafa eik rustik með viðar-
læsingu og möttu lakki á 4.995 krónur.
Antikplanki með kvistum
Eik Andes er glæsilegt
gólfefni eins og sjá má.
Gallery Gólf er ný sérverslun
á annarri hæð í Heimahúsinu
að Síðumúla 30. Þar ræður
Sigurður Vilhelmsson ríkjum
en hann hefur 37 ára reynslu
í sölu gólfefna og veit því um
hvað málið snýst.
„Höfuðþátturinn hjá okkur er að
vera með gott úrval gólfefna á
góðu verði. Einnig kappkostum við
við í þessari verslun að hafa and-
rúmsloftið þægilegt og afslappað
og sýna vöruna með stórum pruf-
um sem gefa rétta mynd af gólfun-
um. Þannig ætti að vera hægt að
tryggja að viðskiptavinurinn fái
akkúrat það sem hann leitar að,“
segir Sigurður sem er fagmaður
fram í fingurgóma.
Parketið í Gallery Gólf er flutt
inn frá Indónesíu, frá fyrirtæk-
inu Lite Wood International. Um
er að ræða þriggja stafa parket
eins og flestir þekkja, „standard“
planka og breiða planka. „Þetta er
fyrst og fremst eikarparket sem
við erum með. Yfirborðið er bara
misjafnlega unnið og hægt að sýna
hundrað mismunandi útfærslur á
því,“ segir Sigurður og útskýr-
ir nánar: „Það er hægt að bæsa
eikina dökka, hvítta hana, bursta,
lakka með mismunandi gljástigi
eða olíubera hana.“
Sigurður nefnir vörumerkið
Timber Top í parketi en lykilinn
að góðri endingu þess segir hann
vera notkun gúmmítrés í millilag-
inu og furu í neðsta laginu. „Þessi
samsetning tryggir parketinu
aukinn stöðugleika og þol,“ segir
hann og tekur fram að allt park-
et hjá honum sé með 5G viðarlæs-
ingu sem sé alveg það allra nýjasta
á markaðnum.
Næst snúum við okkur að flís-
unum en þær flytur Gallery Gólf
inn frá tveimur ítölskum framleið-
endum. „Þetta er allt gegnheilt
efni sem notast á gólf og veggi, úti
og inni,“ lýsir Sigurður, en merk-
ir hann einhverjar nýjar áherslur
í efnisvali og litum hjá viðskipta-
vinum sínum?
„Já,“ svarar hann. „Það er að-
eins að draga úr vinsældum þessa
svarta og dökkgráa. Nú eru að
koma meiri jarðlitir, eins og grá-
beis, brúnbeis og fleiri hlýlegri
litir.“ Sigurður segir flísar allar
afréttar til að fúgan geti orðið
minni. „Fólk vill litlar fúgur og ég
er með mikið litaúrval í fúgusem-
entinu þannig að hægt er að fá það
samlitt flísunum.“
Spurður að lokum hvort verslun
með gólfefni sé blómleg um þess-
ar mundir svarar Sigurður: „Það
er auðvitað ekki stór fjöldafram-
leiðsla í nýbyggingum eins og var
en ýmsir eru þó að ljúka við sínar
íbúðir. Við Íslendingar höfum líka,
sem betur fer, sans fyrir því að
halda eignum við, enda felast í því
ákveðin verðmæti.“
Sýnum stórar prufur til að
gefa rétta mynd af vörunni
Sigurður Vilhelmsson, verslunarstjóri
Gallery Gólf, sýnir nýja læsingarkerfið
fyrir parketið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sýningarsalurinn í Gallery Gólf er rúmgóður og þar er auðvelt að átta sig á hlutunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA