Fréttablaðið - 29.09.2010, Side 36
24 29. september 2010 MIÐVIKUDAGUR24
menning@frettabladid.is
„Ég er fyrst og fremst hrærð og
þakklát,“ segir Þórdís Gísladóttir,
eins og sönnum bókmenntaverð-
launahafa sæmir. Hún átti að mati
dómnefndar besta ljóðahandritið
í samkeppninni um Bókmennta-
verðlaun Tómasar Guðmundsson-
ar, sem afhent voru í Höfða í gær.
Þórdís Gísladóttir er íslensku- og
bókmenntafræðingur og hefur
undanfarin ár starfað við verk-
efnastjórnun, kennslu, greina-
skrif, þýðingar og dagskrárgerð,
auk þess sem hún ritstýrir tímarit-
inu Börnum og menningu.
Bókin samanstendur af eldri og
yngri textum, sem Þórdís hefur
safnað í sarpinn í gegnum tíðina.
„Þeir elstu eru sjálfsagt um það
bil sex ára gamlir en þeir yngstu
eru glænýir. Ég tók handritið
saman gagngert fyrir samkeppn-
ina. Það minnti mig einhver á hana
og mér fannst kjörið að prófa að
senda inn þá texta sem ég hafði
verið að dunda mér við undanfar-
in ár.“
Þórdís segir titil bókarinnar,
Leyndarmál annarra, vera lýsandi
fyrir yrkisefnin, sem séu henni
mjög hugleikin.
„Ég hef alltaf haft áhuga á
hversdagslífi annars fólks. Það er
sífellt verið að segja okkur hvern-
ig við eigum að vera; lífsstílsráð-
in dynja á okkur úr öllum áttum,
en það er enginn eins og hann á
að vera samkvæmt öllum þessum
góðu ráðleggingum.“
Jón Gnarr borgarstjóri afhenti
Þórdísi verðlaunin í gær en dóm-
nefnd skipuðu Kolbrún Bergþórs-
dóttir, Jón Óttar Ragnarsson og
Ingibjörg Haraldsdóttir. Verð-
launaféð nemur 600 þúsund krón-
um en Bjartur gefur ljóðabókina
út.
Aðspurð hvort hún telji að verð-
launin verði til þess að hún skrifi
fleiri bækur segir Þórdís það verða
að ráðast síðar meir.
„Það er aldrei að vita, ég er allt-
af að skrifa eitthvað og á sjálf-
sagt eftir að halda því áfram. Það
á síðan eftir að koma í ljós hvort
einhver kann að meta þetta.“
bergsteinn@frettabladid.is
Af hversdagslífi annars fólks
Rithöfundar
Rithöfundar eru aðdáunarverðir
en njóta oft ekki nægrar virðingar.
Þeir skrifa bækur sem fólk vill kaupa og lesa.
Þeir vinna hægt og yfirvegað og margir þeirra kunna að tala
um sjálfa sig og ljúga því eins og leikarar að þeir séu feimnir,
auðmjúkir og hvorki sjálfhverfir né fáfengilegir.
ÚR LEYNDARMÁLUM ANNARRA
ÚR UMSÖGN
DÓMNEFNDAR:
Það er hispursleysi og hressileiki í
ljóðunum sem eru rík af skemmti-
legri og skarpri hugsun. Ljóðin
eru samin fyrir þá sem langar að
hnýsast í leyndarmál annarra,
gægjast á bak við gluggatjöld
nágrannans, hlera það sem fram
fer í skriftastólnum og þiggja um
leið gagnleg lífstílsráð konu sem
kann að bregðast við óvæntum
uppákomum hvunndagsins.”
TEKIÐ VIÐ VERÐLAUNUNUM Þórdís Gísladóttir tekur við verðlaununum úr hendi Jóns Gnarr borgarstjóra í Höfða í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Þórdís Gísladóttir hlaut í gær Bókmenntaverðlaun Tóm-
asar Guðmundssonar fyrir handrit að ljóðabókinni Leynd-
armál annarra, þar sem gægst er á bakvið gluggatjöld
nágrannans.
ROKKTÓBER
FEST 2010
Á SÓDÓMU
30.9 – 2.10
AUÐNIN TIL DANMERKUR Danska bókaútgáfan Lindhardt og Ringhof hefur tryggt sér
útgáfuréttinn á Auðninni eftir Yrsu Sigurðardóttur. Þetta er fjórða bók Yrsu sem forlagið tekur til
útgáfu en áður hafa komið út hjá því Þriðja táknið, Sér grefur gröf og Aska.
LAUGARDAGS-
KVÖLDUNUM
BJARGAÐ!
SPAUGSTOFAN HEFST 9. OKTÓBER
ÞAÐ ER AUÐVELTAÐ KAUPA ÁSKRIFT Á
STOD2.IS
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sýningar í
fullum gangi
Sýningardagar
Lau. 2/10 kl. 14 Up
pselt
Sun. 3/10 kl. 14 Up
pselt
Lau. 9/10 kl. 13 ör
fá sæti
Sun. 10/10 kl. 14 ör
fá sæti
Lau. 16/10 kl. 13 ör
fá sæti
Sun. 17/10 kl. 14 ör
fá sæti