Morgunn


Morgunn - 01.12.1930, Page 76

Morgunn - 01.12.1930, Page 76
218 MORGUNN leikföngum. Eg gæti ekki talið upp öll leikföngin, sem þar voru, en það nægir að segja, að þar var alt, sem hraustir drengir, glaðir og kátir, geta óskað sér. Við lékum okkur lengi. Við skiftum um leikföng. Við hlupum og kölluðum, mundi vera sagt hjá ykkur. Við urð- um heitir og rjóðir af ákafanum í leiknum, það var eins og hver taug væri spent í okkur. Ákafinn var svo mikill, að við gættum einskis annars, en að leika okkur af því mesta fjöri, sem æskan á til. Alt í einu verður oklcur litið til vesturs. — Annars eru engar áttir, en eg segi þetta til að miða við eitthvað, sem þið skiljið. — Þá sjáum við, að tveir menn koma gangandi. Þeir ráfa eins og í ráðleysi, líkt og þeir viti ekki, hvert á að halda. Þeir fara út af veg- inum, og stefnan er altaf óviss hjá þeim. Við sjáum og finnum, aö það er sem þeir vilji stefna til okkar, eða eins og eitthvert afl dragi þá í áttina.til okkar. Nú flýgur sú hugsun í gegnum okkar, að þarna séu blindir menn á ferð, sem þurfi hjálpar við, en á sama tíma líka sú hugsun, að við megum ekki missa af leiktímanum. Okkur hafði skil- ist, að við mættum leika okkur allan daginn, og nú mætt- um við engan tíma missa. Við snerum okkur frá þeim, og ætluðum að grípa til leikfanganna aftur, en á sama augna- bliki voru þau öll horfin. Við litum skelkaðir í kring um okkur. Við snerum okkur í áttina þangað, sem við höfðum séð blindu menn- ina, en þeir voru líka horfnir. Nú fundum við, að við hefð- um átt að fara til þeirra og hjálpa þeim. Á sama augna- bliki sáum við, að þetta var eitt af þeim tækifærum, sem okkur var veitt til þess að sýna, hvort við værum góðir drengir. Við söfnuðumst allir saman í þéttan hnapp, og sá stærsti af okkur steig upp á stein, sem var á vellinum, og fór að tala við okkur. Hann sagði, að við yrðum að játa, að okkur hefði orðið mikið á. Við hefðum brugðist því trausti, sem borið hefði verið til okkar, með því, að setja okkur á þennan indæla stað, og láta okkur njóta gleði lífs-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.