Morgunn - 01.06.1939, Qupperneq 63
M O R G U N N
57
hægt að benda á nokkur dæmi þess, að skynsamleg með-
ferð slíkra hæfileika hafi nokkuru sinni bakað miðlun-
um vanlíðan. En hins vegar eru mörg dæmi þess, að
skeytingarleysi manna um sálræna hæfileika þeirra hafi
bakað þeim mai'gs konar örðugleika og vanlíðan. Ég hef
hlotið töluverða reynslu í þessum efnum, kynnzt fólki, sem
átti við ýmsa örðugleika að stríða vegna ónógrar þekk-
ingar á sálrænum hæfileikum sem hjá því hafa vaknað,
án nokkurs annars tilefnis en þess, að það hefur verið
búið slíkum hæfileikum um fram aðra. Síðan ég kom
til Reykjavíkur, hef ég átt þess kost, að vera á fundum
með nokkrum góðum og þroskuðum miðlum hér í bæ,
sem haldnir hafa verið til hjálpar einstökum mönnum,
er hafa átt við ýmsa örðugleika að stríða, er aðallega
virtust stafa af vanræktum eða lítt umhirtum sálrænum
hæfileikum þessa fólks. Árangurinn af þessum fundum
hefur einatt orðið ágætur og æfinlega til góðs, en fyrsta
skilyrðið til þess að slílc hjálp komi að tilætluðu gagni er
vitanlega, að þeir, sem aðstoðar leita, fari eftir bending-
um þeim og ráðleggingum, sem gefnar eru. Og mér dylst
það ekki, að stundum hefur slík hjálp orðið til þess að
bjarga fólki frá andlegu skipbroti. Og margir þeirra, er
mesta þekkingu hafa á þessum málum, hafa sömu sög-
una að segja, og þeir eru fleiri en tölu verður á komið,
sem telja að þetta mál hafi orðið ljós og huggun lífs
síns. Það kemur því nokkuð undarlega fyrir, þegar menn
sem enga þekkingu hafa á þessum efnum, eru að full-
yrða rnikið um það, að miðilshæfileikinn sé líklegri en
nokkuð annað til að valda truflun í sálarlífi miðlanna.
En það er eins með miðilshæfileikann og hverja aðra
hæfileika, að óskynsamleg meðferð og öfgar í notkun
þeirra getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir miðlana
og framtíð þeirra. Ofstæki og öfgar í trúarlegum efnum
hefur einatt valdið alvarlegum truflunum i sálarlífi
mannanna. Ef mennirnir yfirleitt láta orð sín og athafn-
ir í daglegri lífsbreytni mótast af einhverju öðru en heil-