Morgunn - 01.06.1939, Síða 113
M O R G U N N
107
hatursíullum hugsunum. Hús, er nota á til sálrænna til-
rauna, má aldrei misnota á þann hátt.
Hver hugsandi maður, sem þekkingu hefir á slíkum hlut-
um, mundi t. d. vilja leggja til, að lánuð væri kirkja til
pólitískra æsingafunda?
Menn segja að það vanti fé til að byggja hús fyrir, og
þetta mun satt vera, en það má afla þess á margan hátt.
Eg vil minna á þann sið, er tíðkaðist hér áður og tíðkast
raunar enn þá, að menn í arfleiðsluskrám sínum ánöfn-
uðu kirkjum eða einhverju hjartfólgnu málefni einhvern
hlut eigna sinna. Þetta er göfug hugsun, sem spíritistar
hér á landi ættu að athuga. Mörgum finnst ef til vill, að
þetta nái ekki til sín, því að þeir séu svo fátækir, og allur
þorri manna deyi, án þess að gera arfleiðsluskrá, því að
j>að er ekkert að gera skrá yfir. En mundu ekki vera til-
tölulega fáar kistur, sem bornar eru til grafar nú á dög-
um í stærri kaupstöðum þessa lands, þar sem ekki ein-
hver sveigur er lagður á kistulokið, — sveigur, sem hefir
kostað peninga. Mundu spíritistar ekki vilja fallast á yfir-
leitt, að afbiðja slíkan kostnað, en í stað þess óska eftir
því, að þeim peningum, sem til þess áttu að fara, væri var-
ið til styrktar húsbyggingu S. R. F. í.?
Sem betur fer hafa sjálfsagt margir af velunnurum
spíritisma og sálarrannsókna hér á landi góðar tekjur, —
sumir jafnvel meira en þeir hafa þörf á að eyða. Mundu
nú þessir menn ekki vilja gefa í húsbyggingarsjóðinn svo
sGm */100 hluta af tekjum sinum árlega? Þá sjálfa munar
]jað sáralitlu, en félagið munar það miklu, því að safnast,
þegar saman kemur. Munið ennfremur eftir ekkjunni, sem
gaf aleigu sína í guðskistuna------.
Ýmsir hafa við sérstök tækifæri í gamni og alvöru
„heitið á“ menn eða stofnanir, ef þetta eða hitt gengi að
•óskum. Hafa spíritistar yfirleitt ekki trú á því, að mál-
efni þeirra sé göfugt og þarft? Hvers vegna ekki ad' heita
á það sér til heillu?